Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 30
30 FÓTBOLTINN 2012 DÓMARAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Garðar Örn Hinriksson er kominn af fullum krafti í dómgæsluna á nýjan leik eftir að hafa tekið sér frí um skeið og er einn af þeim ellefu dóm- urum sem valdir hafa verið til að dæma í Pepsi-deild karla í sumar. Garðar var valinn besti dómari úr- valsdeildarinnar í kjöri leikmanna í þrígang á fjórum árum, 2004, 2006 og 2007. Hann tók sér síðan frí að loknu tímabilinu 2009, hafði þá átt við þrálát meiðsli að stríða, en var kominn aftur af stað síðasta sumar. Þá var hann tekinn inn í Pepsi- deildina á ný og dæmdi þar þrjá leiki á lokasprettinum. Þar með var það hans þrettánda tímabil í efstu deild og hann er næstreyndastur þeirra sem dæma í deildinni í ár með 122 leiki að baki. Garðar dæmdi í fyrsta skipti í efstu deild árið 1998. Hans fyrsti leikur var viðureign ÍR og ÍBV á ÍR- vellinum en hann var sögulegur að því leyti að nýliðar ÍR unnu þar sinn fyrsta sigur í efstu deild, 1:0, gegn ríkjandi Íslandsmeisturum, með marki Selfyssingsins Sævars Þórs Gíslasonar. Það er eina árið sem ÍR hefur spilað í efstu deild. Nítjánda tímabil Kristins Kristinn Jakobsson er reyndasti dómarinn sem fyrr en hann er að hefja sitt 19. tímabil í efstu deild. Kristinn dæmdi í fyrsta skipti í deildinni árið 1994, þá aðeins 24 ára gamall. Hans fyrsti leikur var við- ureign Keflavíkur og Breiðabliks á Keflavíkurvelli 26. maí þá um vorið en Keflavík vann þann leik 4:0 þar sem Óli Þór Magnússon skoraði þrennu og Ragnar heitinn Margeirs- son gerði eitt mark. Kristinn hefur níu sinnum á þeim átján árum sem hann hefur dæmt í deildinni verið kjörinn besti dóm- arinn af leikmönnum í lok tímabils. Síðast fékk Kristinn þá útnefningu haustið 2009. Erlendur Eiríksson, sem var kjör- inn besti dómari deildarinnar í fyrra, og Magnús Þórisson dæma sitt 11. tímabil í efstu deild. Ellefumenningarnir sem dæma eru annars eftirtaldir, leikjafjöldi í efstu deild fyrir aftan: Kristinn Jakobsson .................. 228 Garðar Örn Hinriksson............ 122 Magnús Þórisson...................... 108 Erlendur Eiríksson.................... 79 Þóroddur Hjaltalín jr................. 55 Valgeir Valgeirsson.................... 43 Þorvaldur Árnason..................... 39 Gunnar Jarl Jónsson.................. 31 Örvar Sær Gíslason.................... 28 Vilhjálmur Alvar Þórarinsson... 13 Guðmundur Ársæll Guðmunds . 13 Þeir Kristinn, Þóroddur, Þorvald- ur og Gunnar Jarl eru milliríkja- dómarar Íslands á árinu 2012. Krist- inn hefur verið milliríkjadómari samfleytt frá 1997. Aðstoðardómararnir eru 24 Þá hafa 24 aðstoðardómarar verið valdir til að starfa í Pepsi-deildinni. Þeir eru eftirtaldir: Andri Vigfússon Ásgeir Þór Ásgeirsson Áskell Þór Gíslason Birkir Sigurðarson Eðvarð Eðvarðsson Einar Sigurðsson Frosti Viðar Gunnarsson Gunnar Sverrir Gunnarsson Gylfi Már Sigurðsson Halldór Breiðfjörð Jóhannsson Haukur Erlingsson Ingvar Örn Gíslason Jan Eric Jessen Jóhann Gunnar Guðmundsson Jón Magnús Guðjónsson Leiknir Ágústsson Magnús Jón Björgvinsson Oddbergur Eiríksson Óli Njáll Ingólfsson Sigurður Óli Þórleifsson Sindri Kristinsson Smári Stefánsson Sverrir Gunnar Pálmason Viðar Helgason Þeir Áskell, Birkir, Frosti, Gunn- ar, Gylfi, Jóhann og Sigurður eru al- þjóðlegir aðstoðardómarar. Garðar Örn kemur í dóm- gæsluna af fullum krafti  Valinn bestur í deildinni þrisvar á fjórum árum en tók sér síðan frí  Dæmdi þrjá leiki síðasta haust Morgunblaðið/Ómar Reyndur Garðar Örn Hinriksson á sprettinum í leik í Egilshöllinni í vetur. Hann á næstflesta leiki að baki í efstu deild af þeim sem dæma í sumar. Morgunblaðið/Golli Reyndur Kristinn Jakobsson, hér í leik Fram og Hauka í vetur, hefur dæmt í efstu deild frá 1994 og er lang leikjahæstur af þeim sem dæma í ár. Eftir leiki í Pepsi-deildinni í sumar geta þjálfarar liðanna fengið fund með dómurum hvers leiks fyrir sig og beðið þar um útskýringar á ein- stökum atvikum og spurt spurninga. Um tilraunaverkefni er að ræða en hugmyndin varð til eftir ábendingu Heimis Hallgrímssonar aðstoðar- landsliðsþjálfara, en hann hefur stýrt ÍBV undanfarin ár. Þjálfarar þurfa þó að bíða í 5-10 mínútur eftir að leik lýkur áður en þeim gefst kostur á að ræða við dómarana og var tekið fram á kynningarfundi dómara að kurteisi væri algjört skilyrði. Fleiri áherslubreytingar voru kynntar á sama fundi en ein sú stærsta tengist þeirri þreyttu iðju leikmanna að hópast í kringum dóm- arann séu þeir ósáttir við einhverja ákvörðun hans. Dómurum í Pepsi- deildinni ber nú skylda til að áminna að minnsta kosti einn þeirra sem hópa sér að dómaranum. Einnig á að reyna að taka á leikaraskap í sumar en dómurum ber að veita leik- mönnum „sérstaka athygli ef þeir gerast sekir um að ýkja afleiðingar líkamlegrar snertingar til þess að fiska gult eða rautt spjald á andstæð- inginn“ eins og kom fram á kynning- arfundinum. Þá eru það ekki lengur tilmæli að undirskyrtur og -buxur þurfa að vera í sama lit og búning- urinn heldur regla. tomas@mbl.is Þjálfarar fá fund með dómurum  Geta beðið um útskýringar á atvikum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.