Morgunblaðið - 09.07.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.07.2012, Blaðsíða 8
FRJÁLSAR Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Auðvitað er þetta svekkjandi. Al- veg hundfúlt bara,“ segir Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjáls- íþróttakona úr Ármanni, í viðtali við Morgunblaðið en henni mistókst að ná Ólympíulágmarki í sjöþraut á móti í Frakklandi um helgina. Þetta var hennar síðasti möguleiki til að komast á Ólympíuleikana og þarf hún því að bíta í það súra epli að bíða í fjögur ár eftir leikunum í Ríó. Helga fékk 5.752 stig í Frakk- landi en Ólympíulágmarkið er 5.950. Íslandmet Helgu Margrétar frá árinu 2009 er 5.878 stig. Stefnan var að skora 6.200 stig á árinu 2012 en æfingar hennar í Svíþjóð settu hana út af sporinu. Þarf ekki að afsaka neitt „Ég er bara að reyna að átta mig á að það verða engir Ólympíuleikar hjá mér. Þetta er alls ekki það sem ég lagði upp með. En þegar ég lít til baka veit ekki hvað ég gat meira gert. Mér finnst ég ekki þurfa að af- saka mig neitt. Ég lagði hjartað í þetta og barðist til síðasta blóð- dropa. Þetta er bara svona stundum í íþróttunum. Þetta kemur seinna. Ég trúi því og veit að þetta kemur einn daginn,“ segir hin jarðbundna Helga Margrét sem var þó eðlilega hundsvekkt þegar Morgunblaðið tók hana tali skömmu eftir úrslitin. Verður enn sætara næst „Mig langaði alveg rosalega á Ól- ympíuleikana. Það hefði verið algjör snilld en ég ætla ekki að láta þetta draga mig niður í svaðið. Ég vil bara þakka öllum sem eru búnir að styðja mig á þessari leið minni,“ segir Helga Margrét sem er mikil keppnismanneskja. Það mátti heyra á henni að hún hefði verið tilbúin að fara aftur út á völl og reyna við lág- markið. Hún ætlar ekki að velta sér upp úr fortíðinni. „Ég horfi ekki til baka. Þetta er búin að vera mögnuð leið. Ég er hérna úti með kærastanum, systur minni og mömmu og þó þetta hafi ekki gengið upp núna hefur þetta verið rosalega skemmtilegt. Ég hef alltaf sagt það að maður verður líka að njóta þess að keppa. Þetta tókst ekki núna en það verður þá bara enn sætara þegar ég næ lágmark- inu fyrir næstu leika,“ segir Helga Margrét ákveðin. Hástökkið afgreiddi Helgu Helga þurfti að eiga rosalega góðan seinni dag til að komast á Ól- ympíuleikana eftir að hástökkið klikkaði alveg hjá henni á fyrri deg- inum. „Hástökkið fór alveg með þetta. Ég missti rúm 100 stig bara vegna klaufaskapar. Ég felldi 1,68 metrana tvívegis en var alveg örugg að ég myndi ná því í þriðju tilraun. En ég rak gaddana í tartan- brautina og þar með var það búið. Þetta kennir manni bara að hver einasta tilraun getur skipt máli. Þó ég fari vanalega létt yfir þessa hæð gengur ekkert að hugsa svoleiðis,“ segir Helga sem gerði þó margt gott á mótinu. „Það eru margir ljósir punktar í þessu. Ég hljóp mitt hraðasta 200 metra hlaup í tvö ár og náði mínum besta árangri á árinu í spjótkasti. Ég vil frekar bara horfa jákvætt á þetta,“ segir Helga sem vissi eftir spjótkastið að hún væri ekki á leið á Ólympíuleikana. „Maður gefst samt ekkert upp í þessu og ég hljóp 800 metrana. Maður verður bara að horfast í augu við raunveruleikann og láta ekki deigan síga,“ segir hún. Síðustu þrjú ár verið erfið Fyrir þremur árum, þegar Helga Margrét var aðeins 17 ára gömul, setti hún Íslandsmet í sjöþraut sem stendur enn í dag. Helga var þá á mikilli uppleið og þótt hún hafi bætt sig í sumum greinum eftir dvölina í Svíþjóð, þangað sem hún flutti til að æfa, hefur hún ekki náð að bæta Ís- landsmetið. Helga náði ekki lág- marki fyrir EM í ár né Ólympíuleikana. „Það vita allir að síðustu þrjú ár hafa verið virkilega erfið hjá mér. Árangurinn hefur látið á sér standa vegna þess og mér hefur gengið illa að finna mína eiginleika eins og hraðann,“ segir Helga Margrét sem var ekkert of bjartsýn á að ná lág- markinu í byrjun árs. „Ég hafði ekki góða tilfinningu fyrir þessu úti í Svíþjóð og þess vegna kom ég heim. Ég vildi reyna að gera eitthvað sem ég hafði trú á því annars er þetta ekkert hægt. En ég verð bara að horfast í augu við þetta núna,“ segir Helga Mar- grét. Hló að lágmarkinu 2009 Það verður ekki annað sagt en Helga Margrét sé heiðarleg í svör- um því hún viðurkenndi fúslega að ekki væri eðlilegt að hún hefði ekki bætt Íslandsmet sem hún setti sautján ára fyrir þremur árum. Þá þegar var hún farin að setja sér háleit markmið fyrir 2012. „Þessi 5.878 stig voru yfir Ólymp- íulágmarkinu þá. Þegar maður horf- ir til baka þá hló ég bara að þessu lágmarki. Ég hélt ég myndi leika mér að því. Ég ætlaði að skora 6.200 stig árið 2012,“ segir Helga Margrét. „Maður má bara ekki fara svona fram úr sér. Nú er ég búin að vera þrjú ár í ruglinu. Vissulega er ég búin að bæta mig í einhverjum greinum en ég hef ekki getað sett saman góða þraut. Þetta er drullu- svekkjandi en ég held bara áfram,“ segir Helga Margrét Þorsteins- dóttir sem horfir fram á veginn, ekki til baka. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hreinskilin Helga Margrét Þorsteinsdóttir dregur ekkert undan og er óánægð með að hafa ekki náð settu marki undanfarin þrjú ár. Trúi og veit að þetta kemur  Helga Margrét náði ekki Ólympíulágmarki  Síðasta tilraunin klikkaði í Frakk- landi  Hló að lágmarkinu fyrir þremur árum en er búin að vera „í ruglinu“ Helga Margrét Þorsteinsdóttir » Hún er tvítug, fædd 15. nóv- ember 1991, og setti núgildandi Íslandsmet í sjöþraut aðeins 17 ára gömul árið 2009. » Metið er 5.878 stig og Helga hefur ekki náð að bæta það á þremur árum þrátt fyrir að hafa lagt mikið undir. » Helga ætlaði að vera komin í 6.200 stig á þessu ári en Ól- ympíulágmarkið var 5.950 stig. 8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012 Íslenska 20 ára landsliðið tapaði fyrir Sviss, 22:28, í þriðja og síðasta leik sínum í riðla- keppni EM í handknattleik pilta sem fram fór í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í gær. Íslensku strákarnir þurftu að vinna sex marka sigur til að fara uppfyrir Sviss og Danmörku og komast í átta liða úrslitin. Það var hinsvegar aldrei í spilunum því Sviss- lendingar náðu fimm marka forystu fyrir hlé, 14:9, og voru yfir allan síðari hálfleik- inn. Minnst munaði þremur mörkum þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Íslenska liðið tapaði því öllum þremur leikjum sínum og fer því í milliriðil í neðri hluta keppninnar þar sem spilað er um sæti 9-16. Ísland og Danmörk eru þar í riðli með Frökkum og Serbum en ís- lenska liðið mætir þessum liðum á morgun og á mið- vikudag. Guðmundur Hólmar Helgason gat ekki spilað gegn Sviss vegna meiðsla og munaði það miklu, bæði í sókn og vörn. Mörk Íslands: Garðar Sigurjónsson 6, Geir Guð- mundsson 5, Ísak Rafnsson 4, Árni B. Árnason 3, Víglundur Jarl Þórs- son 3, Leó Snær Pétursson 1.  Úrslit og stöður í keppninni er að finna á bls. 6. vs@mbl.is Sviss reyndist of stór hindrun Geir Guðmundsson Eygló Ósk Gústafsdóttir náði bestum árangri af íslenska sundfólkinu sem tók þátt í Opna Parísarmótinu um helgina. Eygló Ósk sigraði í B-úrslitum í 100 metra baksundi og hafnaði þar með í níunda sæti af 28 keppendum í greininni í heild. Eygló varð í 11. sæti í undanrásunum á 1:04,32 mínútum en synti síðan á 1:03,61 mín- útu í B-úrslitunum og vann þau örugglega. Árni Már Árnason komst í B-úrslitin í 50 metra skriðsundi þegar hann varð í 16. sæti í undanrásum á 23,29 sekúndum. Hann varð síðan í 7. sæti í B-úrslitunum á 23,44 sek- úndum og hafnaði í 15. sæti af 64 keppendum í greininni í heild. Jakob Jóhann Sveinsson var hársbreidd frá því að komast í B-úrslitin í 100 metra bringusundi sem hann synti á 1:04,70. Hann var með 17. besta tímann, einu sæti frá B-úrslitum og aðeins ellefu hundraðs- hlutum frá næsta manni. Eva Hannesdóttir synti 100 metra skriðsund á 57,73 og varð 20. og komst þannig ekki í B-úrslitin frekar en Jakob Jóhann. Hrafnhildur Lúthersdóttir átti að synda 50 og 200 metra bringusund en hún dró sig úr keppni í báðum greinum. tomas@mbl.is/vs@mbl.is Eygló í níunda sætinu í París Eygló Ósk Gústafsdóttir Körfuknatt-leiksmað- urinn reyndi Ray Allen er á leið- inni til NBA- meistaranna Miami Heat en hann hefur spilað með Boston Cel- tics undanfarin fimm ár og varð meistari með liðinu árið 2008. Allen er 36 ára gamall og er mikil þriggja stiga skytta, sá stigahæsti á því sviði í sögu NBA, en hann hefur 10 sinnum verið val- inn í stjörnulið NBA. Að sögn fjöl- miðla á Flórída fær Allen þrjár milljónir dollara fyrir tímabilið með Miami. Allen hefur spilað í NBA- deildinni í 16 ár. Með Milwaukee Bucks í sjö ár og Seattle SuperSo- nics í fjögur ár áður en hann gekk til liðs við Boston árið 2007.    Enska knattspyrnufélagið Tott-enham Hotspur tilkynnti í gær að það hefði náð samkomulagi við hollensku meistarana Ajax um kaup á fyrirliða þeirra, Jan Vertonghen, með fyrirvara um læknisskoðun leikmannsins. Viðræður félaganna hafa tekið nokkrar vikur og erfitt reynst að ná samkomulagi en það er loksins í höfn. Vertonghen er 25 ára gamall belgískur varnarmaður og hefur leikið með Ajax frá 2006.    Guðjón Henn-ing Hilm- arsson varð klúbbmeistari hjá GKG og sigraði með átta högga mun. Guðjón Henning lék Leirdalinn á parinu samtals en hringina fjóra á 70, 70, 73 og 71 höggi. Sigmundur Einar Másson kom næstur en 75 högg á fyrsta hring komu í veg fyrir að hann veitti Guðjóni frekari keppni. Ragna Björk Ólafsdóttir sigraði í kvennaflokki á 86, 80, 76 og 82 höggum. Ingunn Einarsdóttir var aðeins höggi á eftir henni.    Kunn nöfn úr golfsögunni á Suð-urnesjum urðu klúbbmeistarar hjá GS, Örn Ævar Hjartarson og Karen Sævarsdóttir. Örn lék sam- tals á tveimur höggum undir pari og Karen var á tuttugu og níu yfir pari.    KFÍ hefur samið við bandarískanbakvörð, B.J. Spencer, sem hefur talsverða reynslu sem leik- maður í Evrópu, eftir því sem fram kemur á heimasíðu félagsins. Spen- cer er 28 ára gamall og hefur bæði leikið á Spáni og í Portúgal. Hann getur hvort heldur sem er spilað sem skotbakvörður eða leikstjórn- andi. Spencer lék með Jacksonville State-háskólanum á sínum tíma. Fram kemur á síðunni að KFÍ hafi einnig tryggt sér krafta Chris- Miller Williams næsta vetur en hann lék með liðinu í 1. deild í vet- ur. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.