Helgafell - 01.04.1942, Blaðsíða 10

Helgafell - 01.04.1942, Blaðsíða 10
UMHORF Verður Rússland sigrað? Hvernig lízt þér á stríðið núna ? Hvað segir þú nú um horfurrar ? Mjög oft er ég spurður þessara raunalegu spurninga. Ég er óbreyttur borgari úti á hjara veraldar, sem horfi á hrikaleik styrj- aldarinnar með beizkum og angurvær- um trega. Mér hefur aldrei litizt á einn eða annan veg um stríðið, aðeins stundum sagt það, sem ég veit. Og svo veiklundaður er ég, að horfur hins komanda ber mér alltaf síðar fyrir augu en hörmungar hins yfirstand- anda. Hugmyndin um stríðið leiðir mér aðeins fyrir sjónir staði, sem ég ann og nú drúpa í skugga kúgunar- innar og dauðans, svellandi, ólgandi athafnalíf, sem nú er fjötrað við afl og steðja stríðsguðsins, fegurð lífsins og fjölbreytni í vísindum, athöfn og list, þar sem nú ríkir auðnin ein og tor- tímingin, og fólk, sem ég unni og veit ekki einu sinni, hvort er lífs eða liðið. Hvað skyldi hyrr lífshamingjunnar vera slokknaður í mörgu hjarta og ljós gleðinnar í mörgu auga, síðan þessi styrjöld hófst ? Eða kemur þetta ekki málinu við ? Eru þetta ekki verðmæti ? ALLT GETUR j þessari styrjöld getur SKEÐ — allt skeð, — nema eitt. NEMA EITT Þegar í vor kunna Þjóðverjar að hefja tryllta sókn á hend- ur Rússum. Þeir geta snúið sér að því að gera innrás í England, kostað til þess öllum flota sínum og mannafla. Þeir geta ráðizt á ísland, gert tilraun til þess að bíta sig hér fasta og dreifa héðan vá og víti um gjörvallt Norður- Atlantshaf. Bandaríkin og Bretland geta vel átt fyrir höndum að bíða stærra tjón en þau biðu með falli Singapore og árásinni á Pearl Har- bour. Japanar kunna að ráðast inn í Ástralíu og Indland samtímis og gera þar hin mestu hervirki. Brezki loftflot- inn kann að geta lagt iðnaðarborgirnar í Ruhr í ösku og eimyrju og Þjóðverjar kunna einn góðan veðurdag að hafa sprengt Malta í tætlur. Jafnvel Musso- lini gæti fundið upp á því að vinna einhvers staðar sigur. Menn verða að vera við því búnir, að bókstaflega allt geti skeð, og þeir kunni hvað eftir ann- að að heyra tíðindi, svo váleg og skak- andi, að ósjálfrátt verði þeim á að segja: Nú er það búið ! Og samt mun það ekki verða búið, ekki nándar nærri, því að allt getur skeð, nema eitt. Og nú vil ég biðja góða menn að taka á þeirri stillingu, sem þeir eiga til, og einkum þá, sem bíða allsherjarsig- urs Þýzkalands eins og feimin og hlakkandi brúður síns tilkomandi herra. Því að þetta eina, sem ekki skeð- ur, er það, að Rússland verði sigrað. RÚSSLAND Svona fullyrðingu þarf VERÐUR EKKl að rökstyðja, það finn SIGRAÐ ég ofurvel, þó að sennilega væri það hið mesta mis-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.