Helgafell - 01.04.1943, Blaðsíða 74
TÓMAS GUÐMUNDSSON:
„Heim til frú Theódóru“
Frú Theodóra Thorodd-
sen verÖur áttræð 1. júlí.
Hún hefur í langan aldur
verið alþjóð kunn fyrir
skáldskap sinn, þulur,
þjóðvísur og sagnir, og
er það þó ekki mikið að
vöxtum og raunar lítið
annað en sýnishorn þess,
sem hún hefði getað af-
rekað. En jafnvel þótt frú
Theodóru hefði gefizt
nokkru meira næði til rit-
starfa í lífinu, en henni
hefur hlotnazt, mundi
hún aldrei hafa komizt í
tölu þeirra rithöfunda,
sem skrifa svo mikið, að
bókmenntasagan hefur
ekki við að gleyma því.
Hitt er einnig engu síður
merkilegt um frú Theo-
dóru, að þótt svo hefði
farið, að hún hefði aldrei
látið eftir sig staf bund-
ins máls eða óbundins,
er ekkert líklegra, en að bókmenntasagan gerði tilkall til hennar samt sem
áður.
Þegar ég var barn að aldri heyrði ég frú Theodóru oft getið, og jafnan
af meiri virðingu en annarra kvenna. Það var í frásögur fært, hversu hún
hefði staðið örugglega við hlið manns síns í mörgum og næsta fornsögulegum
ofsóknum, en hitt þótti ekki nema sjálfsagt, að hún bæri af öðrum konum
um mannkosti og gáfur. Næst man ég það um frú Theodóru, er ég var ungur
drengur, að ég las Draumvísur hennar í Skírni, þar sem hún leiðir lesandann
THEODÓRA THORODDSEN