Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 72

Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 72
454 HELGAFELL hann gerir. Ég á við 5. kaflann — ÞjóSlífslýs- ingar. Höfundurinn hefur þar aS einkunnarorS- um ummæli Bonalds: La littérature est l'ex- pression de la société — bókmenntirnar eru spegill þjóSfélagsins, — og hafa ekki sannari orS veriS sögS um þaS efni. En mér finnst kaflinn ekki staSfesta einkunnarorSin. Hann er allt of tíningslegur og sundurlaus — spegillinn er í brotum. Um þaS efast enginn, aS skáldsög- ur Jóns Thoroddsens eru aS einhverju leyti spegilmynd þess þjóSfélags, er hafSi fóstraS hann, en maSur er litlu nær um þetta þjóSfélag, þótt talin séu upp búsáhöld þess og klæSaburS- ur, mataræSi og hjátrú. í þessu handtæka, efnis- grófa formi birtist „þjóSfélagiS" aS vísu víSa í skáldsögum Jóns Thoroddsens. En þaS er ekki þjóSfélag í merkingu Bonalds. Ef Steingrímur hefSi túlkaS þjóSfélag Jóns Thoroddsens meS öSrum hætti og nokkru nánar en hann gerir, þá mundu skáldsögur hans birtast lesendum í skýr- ari heijdarsýn. Raunar er þetta svo mikiS efni, aS þaS mundi sennilega hafa aukiS ritiS úr hófi fram, en gaman væri, ef höfundurinn gerSi því einhvern tíma skil.---- Steingrímur Þorsteinsson hefur meS riti þessu unniS íslenzkri bókmenntasögu mikiS og þarft verk. ÞaS er ýtarlegasta og vandaSasta könnun, sem til er á bókmenntum íslendinga á 19. öld. A3 lestri loknum óskar maSur þess eins, aS höfundurinn haldi áfram á þessari braut. Nít- jánda öldin er svo auSug og grózkumikil f sögu vorri, aS hún verSur um langan aldur óþrjót- andi efni íslenzkum fræSimönnum. Til þessa hefur hún aS mestu legiS óbætt hjá garSi, bæSi f bókmenntalegum efnum sem öSrum. Stein- grímur Þorsteinsson hefur meS rannsókn sinni á upphafi íslenzkrar skáldsagnagerSar fært mönnum heim sanninn um þaS, aS 19. öldin launar höfSinglega hverjum þeim, sem leitar fundar viS hana og kann aS krefja hana sagna. Rit Steingríms er höfundinum og háskólanum til mikils sóma. Sverrir Kristjánsson. Árbækur Espólins íslands Arhœk.ur i sögujormi aj Jóni Espólín, I. deild. LjósprentaÖ í Litho- prent 1943, 35 + 127 bls. Fyrir nokkrum árum kom til orða, aö Ár- bækur Elspólíns yrðu gefnar út af nýju, og var í ráði, að ég semdi leiðréttingar við þær. En er ég fór að vinna að því, komst ég fljót- lega að raun um, að slíkt verk myndi verða ærið fyrirhafnarsamt, en ekki að sama skapi gagnlegt, þar eð meginhluti Árbókanna er nú mjög lítils virði. Var útgáfan því játin niður falla. Nú hefur verið hafizt handa í Lithoprent um að ljósprenta Árbækurnar, og er það miklu skynsamlegra ráð, ef þær eru gefnar út á annað borð. 1. deild kom út skömmu fyrir jólin, og er auðsælega ætlunin að vanda til útgáfunnar eftir föngum. Þó er auðvelt að benda á nokk- ur atriði, sem betur hefðu mátt fara, eins og oftast vill verða. Útgefandi skýrir frá því, að hinar deijdirnar verði ljósprentaðar eftir ein- taki, sem EÆpólín átti sjálfur og er með leið- réttingum og innskotum eftir hann. Það er vel ráðið, en orðalag útgefanda er ekki alls kostar nákvæmt, þar eð Espólín hefur einungis átt níu fyrstu deildirnar. Hinar voru prentaðar eftir lát hans. Þess er ekki getið, hvort Espólín hef- ur bætt nokkuð um 1. deild í þessu eintaki, en sé svo, þá er leitt, að eintakið skyldi ekki koma í Jeitirnar fyrr en hún var fullprentuð. Þó skiptir það varla miklu máli. Ljósprentun- in hefur verið ýmsum örðugleikum háð. Vel vönduð tæki til hennar hefur ekki verið hægt að fá nú á tímum, og sjást þess nokkur merki. Eftirmynd letursins er misskýr, og sums staðar vantar brot úr stöfum. Þó má hún teljast sæmi- leg. í frumútgáfunni sést letrið víða gegnum blöðin, en tekizt hefur að varna þess, að það kæmi fram við ljósprentunina. Hefur eflaust farið í það mikil vinna. Annars má vænta þess, að Jjósprentunin taki framförum í hin- um deildunum, ef um hægist, svo að unnt verði að afla nauðsynlegra tækja. Framan við 1. deild er ritgerð eftir Árna Pálsson um Espólín og Árbækurnar. Þar er rakin ævi Espólíns og varpað skíru ljósi á lífs- kjör hans og skapgerð. Nokkuð er vikið að rit- störfum Espólíns, einkum Árbókunum, og drep- ið á hæfileika hans til sagnaritunar. Á einum stað rak ég mig á lítils háttar ónákvæmni. Þar segir, að Espójín hafi ritað formáia fyrir öllum deildunum, nema hvað einn formálinn sé lát- inn nægja tveimur deildum. En því er á ann- an veg fariS. Deildaskiptingin er ekki runn- in frá Espólín. heldur útgefendum. Hann skipti Árbókunum sjálfur í þætti eSa hluta og rit- aSi formála fyrir hverjum. Þættirnir eru mis- langir, og var 3.—5. þætti skipt í fjórar deild- ir. ViS þaS komst ruglingur á formálana. For- máli 4. þáttar var settur framan viS 4. deild, inni í 3. þætti, og formáli 5. þáttar framan viS 5. deild, inni í 4. þætti, en enginn formáli fylgir 6. deild, af því aS 5. þáttur nær út hana alla. — Annara er ritgerS Árna mjög
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.