Morgunblaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Ámeðal þeirra sem eigaverk á sýningunni á Nor-den Rundt eru 12 nem-endur Myndlistaskólans í Reykjavík á aldrinum 13-16 ára sem allir sóttu námskeiðið Teikning, mál- un, grafík við skólann síðastliðinn vet- ur. Sýningin var opnuð í Nuuk á Grænlandi nú í byrjun mánaðar en hún samanstendur af verkum eftir ungmenni frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Álandseyjum og Finn- landi. Sköpuðu litla veröld Verkefnið er samstarfsverkefni norrænu húsanna í þátttökulönd- unum fimm og fólst í því að ungmenni frá öllum löndunum unnu verk í flutn- ingsgám sem merktur var með þjóð- fána þeirra. Gámarnir voru síðan allir fluttir til Nuuk þar sem sýningin var opnuð og vinnubúðir haldnar fyrir nemendur. Sýningin mun síðan ferðast um Grænland og fara þaðan til Helsinki, Kaupmannahafnar, Mar- íuhafnar og Þórshafnar, en gert er ráð fyrir að hún komi til Reykjavíkur í apríl á næsta ári og verði sett upp við Norræna húsið í Reykjavík á Barnamenningarhátíð 2013. Íslensku nemendurnir ákváðu að gera innsetningu í gáminn sinn, skuggateikningu af lítilli veröld eða borg þar sem ákveðnar byggingar og fyrirbrigði minna á Ísland. Kennari á námskeiðinu var Þorbjörg Þorvalds- Skuggamyndir íslenskra bygginga Hópur nemenda frá Myndlistaskólanum í Reykjavík tók nýverið þátt í sýningu sem opnuð var í Nuuk á Grænlandi. Hópurinn bjó til verk sem sýnir skuggamynd- ir þekktra bygginga í Reykjavík en hver hópur á sýningunni fékk úthlutað gámi sem sýningarsvæði. Ungmenni frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Álandseyjum og Finnland taka þátt í sýningunni sem ferðast mun um þátttökulöndin næsta ár- ið og verða í Reykjavík í apríl næstkomandi. Innsetning Hópar frá fimm löndum sýndu listaverk sín í gámum. Íslenska verkið Skuggamyndir þekktra bygginga í Reykjavík. Hún Svava er ung kona sem heldur úti skemmtilegu og einkar fögru matarbloggi undir slóðinni www.ljuf- meti.com. Hún segir bakstur og elda- mennsku vera sitt helsta áhugamál og á blogginu heldur hún utan um sínar gömlu uppskriftir, prófar nýjar og segir frá og sýnir árangurinn. Hún sækir hugmyndir meðal annars í ann- arra matarblogg og býður fólki að hafa samband í gegnum netfang sitt. Svava tekur mjög fallegar myndir af því sem hún eldar eða bakar og skipt- ir það ekki litlu máli þegar matar- blogg er annars vegar, að þau séu fyr- ir augað. Enda stendur á forsíðunni hennar: Ljúfmeti og lekkerheit. Upp- skriftirnar eru aðgengilegar og bloggið persónulegt, ekki aðeins um mat heldur líka um fjölskylduna og hversdagslífið. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á blogginu hennar Svövu. Vefsíðan www.ljufmeti.com Brúnar Heldur betur eru þær girnilegar þessar brúnu kökur hennar Svövu. Ljúfmeti og lokkandi uppskriftir Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Vor í smábæ í leik- stjórn Fei Mu. Myndin sem er frá árinu 1948 segir frá heimili sem er illa farið eftir stríðið. Þegar fyrrver- andi elskhuga húsfreyjunnar ber að garði vakna gamlar tilfinningar sem reyna á samband hennar við eig- inmann sinn og fjölskyldu. Myndin hlaut ekki viðurkenningu fyrr en á 9. áratug síðustu aldar og árið 2005 var hún nefnd besta kínverska kvikmynd allra tíma. Hún verður sýnd í stofu 101 í Odda á morgun, þriðjudaginn 18. sept. kl. 17. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis Endilega … … sjáið Vor í smábæ Elskendur Svipmynd úr kvikmyndinni. Fuglavernd skorar á veiðimenn að virða friðun blesgæsar, nú þegar gæs- irnar eru að streyma til landsins frá varpstöðvum sínum á Grænlandi. Fuglavernd skorar einnig á lög- reglumenn og sýslumannsembætti í Borgarfirði og á Suðurlandi að auka eftirlit með gæsaveiðum og skoða afla veiðimanna. Fullorðnar blesgæsir eru auðþekkjanlegar á svörtum rákum á kviði og hvítri blesu. Ungar blesgæsir þekkjast frá öllum öðrum gæsum á gulum fótum, heiðagæs og grágæs eru með bleika fætur, svo og á rödd- inni. Sérstaklega vill Fuglavernd hvetja veiðimenn sem hyggjast stunda gæsa- veiðar á Vesturlandi og Suðurlandi til að hafa varann á sér, en þar eru aðal- viðkomustaðir þessarar fágætu gæs- ar. Sérstaklega er mikil hætta á að blesgæsir komi inn á skotvölinn þar sem gæsir eru lokkaðar að í korn- ökrum og stillt er upp gervigæsum. Grágæsir og heiðagæsir á Íslandi standa hinsvegar betur og er óhætt að veiða nokkuð af þeim stofnum á sjálf- bæran hátt. Fuglavernd vill einnig hvetja veitingahúsaeigendur til að vera á varðbergi gagnvart gæsum sem þeim eru boðnar til kaups, að þeir séu vel meðvitaðir um hvaða gæsir eru friðaðar. Grænlandsblesgæsin er enn í hættu og stofninn lítill. Því er áfram- haldandi friðun nauðsynleg og að hún sé virt af veiðimönnum. Áskorun frá Fuglavernd Veiðimönnum ber að virða friðun blesgæsa Blesgæsir Auðþekkjanlegar á svörtum rákum á kviði og hvítri blesu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.