Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 57
* Þá er það víst að bestu blómin gróaí brjóstum sem að geta fundið til.Jónas Hallgrímsson - „Vísur Íslendinga“ Ung kona hittir dularfullan og einstaklega mynd- arlegan mann sem býr yfir myrku leyndarmáli. Hann hefur þau áhrif á hana að hún roðnar og kiknar í hnjánum í návist hans. Hann kynnir henni Rauða herbergi sársaukans þar sem svip- ur, handjárn og annað dót kemur mjög við sögu. Nokkur textabrot gefa góða mynd af því hvers konar bók er um að ræða og í hvaða stíl hún er skrifuð: - „Hjartað er næstum að kæfa mig – vegna þess að það er í hálsinum á mér að reyna að flýja út um munninn.“ - „Maginn í mér steypist í kollhnís – hann þráir mig … á undarlegan hátt, það er satt en þessi fallegi, einkennilegi, kinký maður þráir mig.“ - „Ég sundrast við orð hans, spring utan um hann þegar ég næ há- punktinum og splundrast í milljón mola undir honum.“ Ástæða er til að taka fram að bókin er 488 síður og tvær framhaldsbækur í sama dúr eru væntanlegar í íslenskri þýðingu innan nokkurra mánaða. Enginn les þessar bækur vegna bókmenntagildis þeirra. Hinar gríðarlegu vinsældir sanna hins vegar að konur vilja lesa klám. Hvað gerist í rauða herberginu? Hinn heimsfrægi franski rit- höfundur Michel Houelle- becq er væntanlegur hingað til lands. Nýjasta bók hans, Kortið og landið, kemur út í kringum næstu mánaða- mót en sú bók hefur fengið gríðarlega góða dóma þar sem hún hefur komið út. Houellebecq hefur lengi langað til að heimsækja Ís- land en hann á fjölmarga aðdáendur hér á landi, eins og svo víða annars staðar. Skáldsögur hans Öreindirnar og Áform hafa komið út í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar, sem þýðir einnig Kortið og landið. Á sínum tíma var búið að skipuleggja heimsókn Houellebecqs til landsins en þá fór Eyjafjallajökull að gjósa og rithöfundurinn komst ekki. Vonandi gengur allt upp núna. Michel Houellebecq MICHEL HOUELLE- BECQ KEMUR TIL ÍSLANDS Í lok mánaðar kemur út bókin Room eftir Emmu Donoghue. Íslenski titillinn er Herbergi. Bókin hefur vakið gífurlega at- hygli erlendis og þykir óhugn- anleg en einnig falleg. Þar er fjallað um mæðgin sem haldið er nauðugum í herbergi. Móð- urinni var rænt af kvalara sínum sem nauðgar henni á hverju kvöldi og sonurinn, sem er afkvæmi þeirra, þekkir ekkert annað en þessa tilveru. Móðirin reynir að gera heim hans fallegan með því að eiga hvers- dagslíf í herberginu. Emma Donoghue ÓHUGNANLEGT HERBERGI Hungurleikarnir, Eldar kvikna og Hermiskaði, allar þrjár bækurnar í þríleiknum um Hungurleikana, eru á metsölu- lista Eymundsson. Hermi- skaði situr í toppsætinu á list- anum, Eldar kvikna og Hungurleikarnir eru á met- sölulista barnabóka. Þetta rímar við það sem hefur verið í gangi erlendis. Bækurnar þrjár hafa setið í toppsætum allra lista og hreiðrað um sig þar svo vikum skiptir. Nú er þessum vel heppnaða þríleik lokið en höfundurinn Suzanne Collins hefur afrekað það sem allir barna- og unglingahöfundar hljóta að þrá, sem er að fá ungmenni til að sökkva sér ofan í bækur. Það skemmir svo ekki fyrir sölunni að bæk- urnar hafa verið kvikmyndaðar með miklum ágæt- um og ungmenni hafa streymt í bíó til að horfa á kvenhetjuna Katniss. ÞRÍLEIKUR Á METSÖLULISTUM Suzanne Collins Rigning í nóvember eftir Auði Övu Ólafsdóttur er sautjánda best selda bókin í Frakklandi þessa vikuna. Bókin hefur slegið í gegn í Frakklandi og verið til- nefnd til nokkurra verðlauna og nú síðast var hún tilnefnd til Femina-verðlaunanna, sem eru ein virtustu bókmenntaverðlaun þar í landi. Rigning í nóvember er rétt óútkomin á Spáni og rétturinn hefur verið seldur til Þýskalands og Ítalíu. Ný skáldsaga eftir Auði Övu kemur út hjá Bjarti í haust og hefur fengið titilinn Undantekningin. Undirtitill bókarinnar er de arte poetica, af skáld- skaparfræðum, en í kjallaranum hjá söguhetjunni býr dvergurinn, rithöfundurinn og hjónabandsráðgjafinn Perla, sem þreytist ekki á að velta fyrir sér lífinu og listinni. FRAKKAR HRIFNIR AF AUÐI ÖVU OG NÝ BÓK Á LEIÐINNI Auður Ava Ólafsdóttir Hermiskaði er lokabindið og myrkasta verkið í þríleiknum um Hungurleikana þar sem ung- mennin Katniss, Peeta og Gale eru í aðalhlutverkum. Persónur hafa meira og minna skaðast af blóðsúthellingum og átökum, því stríð kosta ekki einungis mannslíf heldur gjörbreyta einnig þeim sem eftir lifa. Hermiskaði er mögnuð stríðsádeila fyrir unglinga – með fallegum endi. Höfundurinn kann sannarlega þá list að skapa samúð með persónum, spennan er gríðarleg og lokakaflarnir eru áhrifamiklir. Ungmenni verða ekki svikin af þessari bók. Magnað lokabindi Átakamikið kynlíf og unglingar í stríði BÆKURNAR SEM HEILLA UMHEIMINN TVÆR BÆKUR SEM NÝKOMNAR ERU ÚT Í ÍS- LENSKRI ÞÝÐINGU HAFA FARIÐ SIGURFÖR UM HEIMINN OG SELJAST Í MEIRA MAGNI EN AÐRAR BÆKUR. ÞETTA ERU FIMMTÍU GRÁIR SKUGGAR EFT- IR EL JAMES OG HERMISKAÐI EFTIR SUZANNE COLLINS, EN BÁÐAR ERU HLUTI AF ÞRÍLEIK. KLASSÍK Saga Elenu Ponia- towsku um hina þrjósku og hug- rökku Jesúsu má með sanni kall- ast meistaraverk. Sumar bækur eru þannig að maður les þær og mælir síðan með þeim við alla sem maður hittir. Þetta er þannig bók. Aðalpersónan Jesúsa er bæði ómótstæðileg og ógleymanleg. Þrautseigja hennar í erfiðri lífsbaráttu hlýtur að hafa sterk áhrif á þá sem lesa. Lesið þessa bók. Þið munuð ekki sjá eftir því! Ógleymanleg Jesúsa BÓKSALA Listinn er byggður á upplýsingum frá Pennanum-Eymundssyni. 1 Hermiskaði - kiljaSuzanne Collins 2 Létta leiðinÁsgeir Ólafsson 3 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.L. James 4 Leyndarmál englannaMärtha Louise prinsessa / Elisabeth Nordeng 5 Flöskuskeyti frá PJussi Adler Olsen 6 Múffur - í hvert málNanna Rögnvaldardóttir 7 23 atriði um kapítalismaHa-Joon Chang 8 Iceland Small World - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson 9 Jesúsa - kiljaElena Poniatowska 10 Hermiskaði - innbundinSuzanne Collins Kiljur 1 Fimmtíu gráir skuggarE.L. James 2 Flöskuskeyti frá PJussi Adler Olsen 3 Hin ótrúlega pílagrímsgangaRachel Joyce 4 FantasíurHildur Sverrisdóttir ritst. 5 Kona tígursinsTéa Obreht 6 VögguvísaElías Mar 7 NæturóskinAnne B. Ragde 8 Sér grefur gröfYrsa Sigurðardóttir 9 DjöflastjarnanJo Nesboø 10 Reglur hússinsJody Picoult 12.-18. september MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Tíminn læknar öll sár 23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.