Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 6

Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Lísa Hafl iðadóttir lisa@monitor.is stíllinn Nýja línan ykkar kom út á dögunum, hvernig er hún? Hún er bæði rómantísk og dularfull í senn, algjörlega haustið. Lita- pallettan er ótrúlega falleg en hún samanstendur af plómufjólubláum, grænbláum og heiðbláum augn- skuggum í bland við dökkfjólubláa og nude varaliti. Hvaða trend eru heitust í förðun- arheiminum í dag? Stór og þykkur eyeliner, bæði svartur og litaður verður mjög áberandi í haust við dökkar varir í burgundy, brúnum og fjólubláum lit. Smokey-augnförðun heldur áfram að vera vinsæl, þá helst í dökkum lit en ekki endilega svörtum. Hvaða vara er vinsælust í búðinni þessa dagana? Við erum með nokkrar vörur sem eru alltaf ótrúlega vinsælar allan ársins hring en það eru Cover All Mix þrískipti hyljarinn okkar, Refl ex Cover sem er léttur hyljari og „highlighter“ undir augun og svo hefur Wonder Powder- ið okkar án efa aukist í vinsældum. En dökku varalitirnir eru að verða vinsælustu vörurnar okkar. Hvernig förðun er nauðsynleg fyrir hversdags lúkkið? Vel grunnuð húð og frísklegar bleikar eða ferskjulit- aðar kinnar með léttri augnförðun er alltaf klassísk, sérstaklega í hversdagsleikanum. Getur þú gefi ð lesendum einhver góð fegurðarráð þegar kemur að förðun? Það er helst að hafa í huga að það þarf ekki alltaf að fylgja tískunni þegar kemur að förðun, heldur er best að velja það lúkk sem fer manni vel og svo auðvitað alltaf það klassíska „less is more“. Make Up Store er með puttan á púlsinum þegar kemur að helstu straumum og stefnum förðunarbransans. Stíllinn hitti á förðunarfræðinginn og verslunarstjóra Make Up Store í Smáralind Steinunni Eddu Steingrímsdóttir og sýndi hún okkur heitustu trendin í haustförðuninni. Rómantískt og dularfullt Í HAUST Ég notaði gott rakakrem, Base Prep-primerinn og Sport Foundation sem er léttur farði á Elínu Lovísu enda er hún með ótrúlega góða og fallega húð. Ég notaði Cover All Mix-hylj- arann og smá Refl ex Cover undir augun til að lýsa upp svæðið. Einnig notaði ég Wonder Powder til að gefa húðinni smá- ljóma og svo notaði ég kinnalitinn Nut til að skyggja kinnbeinin. 1 Mér fi nnst fallegast að nota nude-varalit við dökkt smokey og notaði því vinsælasta varalitinn okkar Baby til að fullkomna lúkkið. Ég bretti svo örlítið upp á augnhárin og setti hæfi legt magn af Drama-maskar- anum okkar. Til að skerpa örlítið augabrúnirnar notaði ég þrískipta augabrúnalitinn okkar Tri Brow, sem er æðislegur til að fá náttúrulega áferð á augabrúnirnar. Ég gerði klassíska Smo- key-förðun með augnskugganum Deadly sem er grábrúnn augnskuggi sem hefur verið rosalega vinsæll hjá okkur, en með honum notaði ég eyelinerinn Darkest Shadow sem er mjúkur kolablýantur sem er fullkominn í alla förðun. Til að mýkja út brúnirnar á Deadly-skugganum notaði ég ljósa augnskuggann Muff in sem gefur fallega sanseringu og lýsir upp augnbeinið. 2 3 Á Indíönu notaði ég létt rakakrem sem heitir Ice Cream Time, Base Prep-primerinn, Sport Foundation og Wonder Powder til að fá ljómandi húð. Einnig notaði ég hyljarann okkar vinsæla Cover All Mix undir augun og á t-svæðið og smá af Refl ex Cover undir augu og augabrúnir. 1 Á varirnar notaði ég nýjasta varalitinn okkar Magic Spell sem er skær- fjólublár og til að dekkja hann og tóna niður notaði ég varablý- antinn Awesome Performance sem hefur verið ótrúlega vinsæll í haust. Í kinnarnar setti ég svo steinefnapúðrið Chocolate til að skyggja kinnbeinin og kinnalitinn Must Have til að gefa smá-frískleika í kinnarnar. Í lokin bretti ég upp á augnhárin og setti svo maskarann okkar Max Lashes. Ég notaði helstu haustlitina í þessari förðun, en þetta myndi ég segja að væri ekta haustlúkk. Ég byrjaði á því að skerpa augabrúnirnar aðeins með Tri Brow og setja Darkest Shadow- eyelinerinn inn á milli augnhárana og innan í vatnslínuna. Því næst notaði ég nýja augnskuggann okkar Spellbinding sem er plómufjólublár til að gera létta skyggingu á augun, ég notaði líka Muff in í þetta skiptið til að mýkja út brúnirnar á þeim plómufjólubláa. 2 3 ELÍN LOVÍSA INDÍANA

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.