Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  284. tölublað  100. árgangur  LAUK 1.200 KM GÖNGU OG 120 KM SUNDI JR VILDI EYÐSLUFREKA GLÆSIBÍLA VILHJÁLMUR OG KATRÍN EIGA VON Á ERFINGJA BÍLABLAÐ HIMINLIFANDI FJÖLSKYLDA 20AFHENDIR SÖFNUNARFÉ 12.12.12 10 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég mun bjóða helstu hagsmunaaðil- um upp á kynningu á frumvarpinu þannig að þeir sjái það áður en það kemur fram í þinginu … Strax í sam- tölum okkar forystumanna stjórnar- flokkanna í haust var haft í sigti að málið næði vonandi til nefndar fyrir jól,“ segir Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra um stöðu kvótafrumvarpsins svonefnda. Steingrímur segir þannig ekki stefnt að afgreiðslu frumvarpsins fyrir jól, en þing kemur aftur saman eftir jólahlé hinn 14. janúar nk. Kvótaþing auki sveigjanleika Spurður út í áherslur frumvarps- ins segir Steingrímur stefnt að því að mynda virkan markað með aflaheim- ildir í gegnum kvótaþing sem ætlað „sé að auka sveigjanleika í kerfinu og opni það svolítið“. „En þetta eru engar grundvallar- breytingar. Handhöfum veiðiheim- ilda býðst að fá þær að stærstum hluta í formi nýtingarleyfa til all- langs tíma, þannig að það myndist tiltekið jafnvægi í þessu,“ segir hann. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir fyrir- hugaðan leigupott ekki munu styrkja sjávarbyggðir, enda sé ekki hægt að byggja útgerð á leiguafla. Ekki afgreitt fyrir jól  Atvinnuvegaráðherra segir ekki stefnt að því að ljúka kvótafrumvarpi fyrir jól  Kvótaþing auki sveigjanleika  LÍÚ telur leigupott ekki styrkja sjávarbyggðir MKvótaþing »2 Morgunblaðið/RAX Auðlind Stofna á kvótaþing. Frænkurnar og landsliðskonurnar Karen Knútsdóttir og Stella Sigurðar- dóttir komu ásamt liðsfélögum sínum í landsliði Íslands í handknattleik til Vrsac í Serbíu í gær. Þar mæta þær Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum í úr- slitakeppni Evrópumótsins í dag klukkan 17.05 en síðan mæta þær Rúmen- um og Rússum á miðvikudag og föstudag. Karen og Stella voru brosmildar þegar Morgunblaðið hitti þær fyrir utan hótelið í Vrsac. » Íþróttir Frænkurnar tilbúnar í slaginn með Íslandi í Vrsac Morgunblaðið/Ívar Benediktsson Úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í handbolta hefst í dag  „Það kom mér verulega á óvart hvað þetta voru fáir kópar,“ sagði Erlingur Hauksson, sjávarlíffræð- ingur og yfirmaður selarannsókna við Selasetur Íslands, um nýaf- staðna talningu á útselskópum. Kóparnir voru einungis rúmlega eitt þúsund talsins og er stofn út- sela talinn vera um 4.100 dýr. „Árið 2008 taldi ég mun fleiri út- selskópa en 2005. Þá hélt ég að út- selsstofninn væri kominn á ferð upp á við. Það er alls ekki svo. Hann er nú kominn niður fyrir það sem hann var árið 2005.“ »4 Morgunblaðið/RAX Útselum hefur fækkað við landið „Við eigum von á að fá leyfi til olíu- leitar fljótlega eftir áramótin ásamt Faroe Petroleum. Svo barst okkur sú gleðifregn að norska ríkis- olíufyrirtækið Petoro yrði með okk- ur með 25% hlut og það er út af fyrir sig viðurkenning fyrir Drekasvæð- ið,“ segir Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Íslensks kolvetnis. Félagið fékk úthlutað leyfi til olíu- leitar á Drekasvæðinu frá Orku- stofnun ásamt Faroe Petroleum Norge AS og norska félaginu Petoro. Sérleyfi til rannsókna Orkustofnun úthlutaði tveim olíuleitarleyfum í gær og kom hitt í hlut Valiant Petroleum og Kolvetnis ehf. en Petoro er þar einnig þátttak- andi. Fá báðir hópar sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis – þ.e. olíu og gass – á Drekasvæðinu. Kristján segir rannsóknarþrepin þrjú. „Leyfið felur í sér skuldbind- ingu um rannsóknir í þrem þrepum til sex ára. Fyrst er byrjað á grunn- rannsóknum, svo er farið í sýnatöku á hafsbotni og endurkastsmælingar. Þetta tvennt tekur um fjögur ár. Ef útkoman er jákvæð er farið í til- raunaboranir og frekari þróun á svæðinu sem tekur sex til sjö ár. Það eru því 15-20 ár í olíuvinnslu ef allt gengur upp,“ segir Kristján sem tek- ur fram að leyfið sé ekki formlega komið. baldura@mbl.is »6 „Viðurkenning fyrir svæðið“  Íslenskt kolvetni fagnar áhuga norsks olíufyrirtækis á olíuleit á Drekasvæðinu  Í nýlegri PISA- könnun OECD, sem náði meðal annars til Íslands kom í ljós að yfir 40% ungmenna hérlendis hafa hug á háskóla- gráðu. Af getu- meiri nemendum hyggja um 10% ekki í háskóla en af þeim getuminni hafa rúmlega 20% væntingar um háskólanám. Hvatt er til þess að ríki á borð við Ísland hugi betur að staðsetningu skóla og að því að virða betur verð- leika nemenda fremur en bak- grunn, en einnig að betri undirbún- ingi fyrir vinnumarkaðinn. »4 Hugi að verðleikum fremur en bakgrunni Háskóli Verkefni kynnt í verkfræði. Allt um jólasveinana á www.jolamjolk.is dagar til jóla 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.