Morgunblaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 3
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hin 16 ára gamla Sara Rún Hinriks-
dóttir hefur látið mjög að sér kveða
með toppliði Keflavíkur í Dominos-
deildinni í körfuknattleik í vetur. Sara
hefur skorað 15 stig að meðaltali í leik í
deildinni og tekið 9 fráköst að með-
altali. Hún var í gær verðlaunuð fyrir
frammistöðu sína þegar hún var valin í
úrvalslið fyrri hluta deildarinnar.
„Þetta er auðvitað bara annað tíma-
bilið mitt í meistaraflokki og ég held að
það sé ekki algengt að leikmenn fái að
vera í byrjunarliði 16 ára gamlir. Ég
bjóst ekki við því en ég var stundum í
byrjunarliðinu í fyrra ef einhverja leik-
menn vantaði,“ sagði Sara þegar Morg-
unblaðið ræddi við hana á blaðamanna-
fundi í gær. Hún sagðist hafa lagt
áherslu á það á undirbúningstímabilinu
að sanna sig fyrir þjálfaranum, Sigurði
Ingimundarsyni, sem í gær var valinn
besti þjálfarinn í fyrri hluta deild-
arinnar. „Ég ákvað á æfingunum síð-
asta sumar að sýna mig fyrir Sigga af
því að ég hafði aldrei spilað fyrir hann
áður. Ég vildi sýna að mig langaði til að
gera stóra hluti,“ bætti Sara við og það
hefur gengið eftir því hún er í stóru
hlutverki í Keflavíkurliðinu sem hefur
unnið alla leiki sína til þessa í deildinni.
Við höldum okkar striki
„Við höldum okkar striki og gerum
okkar besta. Við reynum að halda okk-
ur á toppnum og ná heimaleikjarétti í
úrslitakeppninni. Ég gæti trúað því að
það verði Snæfell, Valur og KR sem
muni verða með okkur í fjórum efstu
sætunum. Mér finnst það líklegast eins
og staðan er núna,“ sagði Sara sem á
eftir að ná ófáum leikjum áður en þessu
keppnistímabili lýkur því hún spilar
með þremur flokkum þar sem hún er
einnig gjaldgeng í stúlkna- og ung-
lingaflokki.
„Ég spila nánast alla leiki hjá
stúlknaflokki en þar eru alls fimm helg-
armót á tímabili með úrslitakeppninni.
Stundum kemur fyrir að helgarmót eru
á laugardegi og sunnudegi hjá yngri
flokkunum og meistaraflokksleikur um
kvöldið. Þá reyni ég að spila minna í
leikjum stúlknaflokks,“ sagði Sara og
vill ekki kannast við að hún sé alger yf-
irburðamanneskja í leikjum stúlkna-
flokks en viðurkennir að hafa skorað
meira en 40 stig í leik í fyrra.
Dagskráin er nokkuð þétt hjá Söru
en hún gengur í Versló þó hún búi í
Reykjanesbæ. „Það er svolítið mikið að
gera hjá mér en ég næ þessu samt.
Stundum tek ég æfingafötin með mér í
skólann til að komast á æfingu strax
eftir skóla,“ sagði Sara Rún við
Morgunblaðið.
Pálína valin best
í fyrri hlutanum
Pálína Gunnlaugsdóttir, samherji
hennar, var valin besti leikmaður
fyrri hluta mótsins. Pálína skoraði
tæplega 17 stig að meðaltali og er
auk þess lykilmaður í varnarleik
Keflavíkurliðsins. Þær Sara Rún og
Pálína eru báðar í úrvalsliðinu en
Snæfell á þar einnig tvo leikmenn:
Hildi Sigurðardóttur og Hildi
Björgu Kjartansdóttur. Þá er Lele
Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkur,
í liðinu.
KR-ingurinn Helga Einarsdóttir
fékk nafnbótina Dugnaðarforkurinn
í fyrri hluta mótsins.
Valin í úrvalsliðið
aðeins 16 ára gömul
Morgunblaðið/Ómar
Sextán Sara Rún Hinriksdóttir er komin í hóp bestu leikmanna úrvals-
deildarinnar þó hún sé kornung og spili líka með tveimur yngri flokkum.
Sara Rún Hinriksdóttir spilar með þremur flokkum hjá Keflavík Er í úrvalsliði
fyrri hluta deildarinnar Ákvað að sanna sig fyrir meistaraflokksþjálfaranum
Körfuboltinn
» Keflavík er með örugga for-
ystu í Dominos-deild kvenna en
liðið vann alla sína leiki fyrir
áramót og er með 28 stig eftir
14 umferðir.
» Snæfell er með 22 stig, KR
18, Valur 14, Haukar 12, Grinda-
vík 8, Njarðvík 6 og Fjölnir 4
stig.
» Fyrsta umferðin á nýju ári fer
fram á morgun. Þá mætast
Snæfell – Valur, Njarðvík –
Fjölnir, Grindavík – KR og Kefla-
vík – Haukar.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2013
SundmaðurinnÁrni Már
Árnason var á
dögunum út-
nefndur íþrótta-
maður ársins
2012 í Reykja-
nesbæ. Árni
keppti á Ólympíu-
leikunum í Lond-
on síðastliðið sumar og á Evr-
ópumeistaramótinu. Besti árangur
hans á árinu var á móti í Frakklandi
þar sem hann varð í 4. sæti og bætti
Íslandsmet sitt í 50 metra skrið-
sundi.
Svo getur farið að knattspyrnu-samband Zimbabwe neyðist til
að draga karlalið sitt úr und-
ankeppni heimsmeistaramótsins.
Varaforseti knattspyrnusambands-
ins sagði í viðtali við AFP-fréttastof-
una að ekki væru til peningar til að
senda landsliðið til Egyptalands en
þar á liðið að mæta Egyptum í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins í
mars. „Það eru ekki peningar til að
greiða ferðakostnað og annan tilfall-
andi kostnað,“ sagði varaforsetinn.
Ryan Shawc-ross, fyr-
irliði enska knatt-
spyrnuliðsins
Stoke City, hefur
skrifað undir nýj-
an samning við
félagið sem gildir
hvorki meira né
minna en til vors-
ins 2018. Mörg önnur félög höfðu
rennt hýru auga til þessa öfluga mið-
varðar sem er uppalinn hjá Man-
chester United. Þá skrifaði Phil Ja-
gielka, miðvörður enska
landsliðsins, í gær undir nýjan samn-
ing við Everton til vorsins 2017.
Karlalið Hauka í körfuknattleiksem leikur í 1. deildinni er búið
að fá til liðs við sig Bandaríkjamann-
inn Terrence Watson og mun hann
leika með Hafnarfjarðarliðinu til
loka leiktíðar. Watson lék með
Skagamönnum á síðustu leiktíð og
var einnig þjálfari liðsins. Hann er 24
ára gamall, tæpir 2 metrar á hæð og
getur leyst margar stöður á vell-
inum. Haukarnir skiptu nýlega um
þjálfara en þeir réðu Ívar Ásgríms-
son í staðinn fyrir Pétur Guðmunds-
son.
Tottenham Hotspur, lið GylfaÞórs Sigurðssonar, keypti í
gær enska unglingalandsliðsmann-
inn Zeki Fryers frá belgíska félaginu
Standard Liege. Fryers er tvítugur
varnarmaður sem hefur spilað með
öllum yngri landsliðum Englands.
Hann er fæddur í Manchester og var
á mála hjá Manchester United frá
2009 til 2012. Hann spilaði tvo leiki
með liðinu í ensku úrvalsdeildinni og
þrjá í deildabikarnum á síðasta tíma-
bili. Standard Liege fékk hann í sín-
ar raðir síðasta sumar og Fryers
spilaði sjö leiki með liðinu í efstu
deildinni í Belgíu fram að áramótum.
Fólk sport@mbl.is
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21
árs landsliðs karla í knattspyrnu,
hefur valið 30 manna leikmannahóp
sem kemur saman til æfinga í
Kórnum um komandi helgi.
Fyrsta verkefnið hjá nýju 21 árs
liði, sem byrjar í Evrópukeppni
næsta haust, er æfingaleikur gegn
Wales sem fram fer í borginni Lla-
nelli hinn 6. febrúar.
Þrjátíu manna hópurinn sem
Eyjólfur valdi er þannig skipaður:
Markverðir: Árni Freyr Ásgeirsson, Keflavík, Aron
Elís Árnason, Reyni S., Magnús Gunnarsson, Hauk-
um.
Aðrir leikmenn: Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki,
Sindri Snær Magnússon, Breiðabliki, Sverrir Ingi
Ingason, Breiðabliki, Tómas Óli Garðarsson, Breiða-
bliki, Einar Karl Ingvarsson, FH, Emil Pálsson, FH,
Kristján Gauti Emilsson, FH, Bergsveinn Ólafsson,
Fjölni, Bjarni Gunnarsson, Fjölni, Hólmbert Aron
Friðjónsson, Fram, Orri Gunnarsson, Fram, Andri
Már Hermannsson, Fylki, Ásgeir Eyþórsson, Fylki,
Davíð Þór Ásbjörnsson, Fylki, Elís Rafn Björnsson,
Fylki, Andri Adolphsson, ÍA, Brynjar Gauti Guð-
jónsson, ÍBV, Víðir Þorvarðarson, ÍBV, Bojan Stefán
Ljubicic, Keflavík, Sigurbergur Elísson, Keflavík,
Emil Atlason, KR, Hilmar Árni Halldórsson, Leikni
R., Ólafur Karl Finsen, Stjörnunni, Ingólfur Sigurðs-
son, Val, Sigurður Egill Lárusson, Val, Tómas Guð-
mundsson, Víkingi R., Halldór Orri Hjaltason, Þór A.
gummih@mbl.is
Eyjólfur valdi þrjátíu til undirbúnings
Eyjólfur
Sverrisson
Framtíð ítalska fram-
herjans Mario Balotellis
hjá Englandsmeisturum
Manchester City virðist
enn óráðnari en áður
eftir að honum lenti
saman við knatt-
spyrnustjórann Roberto
Mancini á æfingu liðsins
í gærmorgun. Ljós-
myndari sem var á æf-
ingunni náði myndum
af uppþoti sem varð þegar Mancini reiddist heiftarlega við landa sinn eftir að
hann braut harkalega á einum samherjanna. Leikmenn og þjálfarar þurftu að
ganga á milli og skilja Mancini og Balotelli að, en eins og sjá má á myndinni var
stjóranum heitt í hamsi. vs@mbl.is
Hvað verður um Balotelli?