Morgunblaðið - 20.03.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.03.2013, Blaðsíða 1
ÍSHOKKÍ Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Langþráð úrslitaeinvígi í íshokkíi er loks hafið hjá körlunum. Í því eigast við SA Víkingar og Björninn. Spilað verður þar til annað liðið hefur unnið þrjá leiki og er spilað þétt, mjög þétt. Leikið er annan hvern dag og þeytast liðin norð- ur og suður á víxl. Liðin hafa boðið upp á hvern háspennuleikinn á fætur öðrum í vetur og var þessi fyrsti leikur engin undantekning frá því. Fyrsti leikhlutinn var þó fremur bragðdaufur og fátt sem gladdi augað, kannski einhver tauga- titringur í leikmönnum. Bjarnarmenn voru öllu aðgangsharðari en þegar þeir misstu mann í refsiboxið tóku heimamenn við sér. Seint í leik- hlutanum kom eina markið en það skoraði ald- ursforseti Akureyringa, Sigurður Sveinn Sig- urðsson, eftir góðan undirbúning Danans Lars Foders. Eftir markið lifnaði aðeins yfir leiknum en í öðrum leikhluta hélt baráttan áfram. Leik- urinn fór samt aldrei almennilega á flug og ein- kenndist af alls kyns mistökum og hálfdapurri spilamennsku. Daniel Kolar jafnaði um miðan leikhlutann. Undir lok leikhlutans komu tvö mörk á örskotsstundu frá Birninum. Hið fyrra skoraði gamla brýnið Sergei Zak en Gunnar Guðmundsson hið síðara. Staðan var því 1:3 þeg- ar liðin blésu til lokabardagans. Þar voru heimamenn ekki lengi að jafna með tveimur mörkum fyrirliðans, Andra Más Mika- elssonar. Var leikurinn æsispennandi allt til loka en það var Daniel Kolar sem tryggði Birninum sigur. Má án vafa krýna Daniel mann leiksins. Við ætlum okkur alla leið Björninn er nú búinn að brjóta af sér hlekkina sem Víkingar höfðu haft þá í. Eftir fjóra tapleiki í röð gegn Akureyringum kom loks sigur og það á hárréttum tíma. Næst verður spilað í Reykja- vík á fimmtudag og svo aftur á Akureyri á laug- ardag. Bjarnarmaðurinn Gunnar Guðmundsson var í viðtali eftir leik og sagði m.a. þetta: „Við ætlum okkur alla leið og þessi sigur var þar mikilvægt skref. Við lögðum áherslu á að stöðva Lars Fo- der en hann er allt í öllu í sóknarspili SA Vík- inga. Það gekk bara vel en við hefðum þurft að halda okkur betur frá refsiboxinu. Við vitum að þeir eru gríðarlega sterkir manni fleiri svo við þurfum að halda betri einbeitingu og fækka refs- ingunum. Það er lykilatriði gegn þeim því þeir eru góðir í að refsa. Nú er bara að koma sér suður og á morgun er vídeófundur og æfing. Þetta er keyrt rosalega stíft og maður þarf að hugsa vel um skrokkinn,“ sagði Gunnar ánægður með dagsverkið. Mörk/stoðsendingar: SA Víkingar: Andri Már Mikaelsson 2/0, Sig- urður Sveinn Sigurðsson 1/0, Lars Foder 0/1, Sigurður Reynisson 0/1. Björninn: Daniel Kolar 2/1, Sergei Zak 1/1, Gunnar Guðmundsson 1/0, Birkir Árnason 0/1, Róbert Freyr Pálsson 0/1, Úlfar Jón Andrésson 0/1, Hjörtur Geir Björnsson 0/1, Matthías Skjöldur Sigurðsson 0/1. Varin skot: Ómar Smári Skúlason SA Víkingar: 21 Snorri Sigurbergsson Björninn: 25 Refsingar: SA Víkingar: 10 mín., Björninn: 16 mín. Björninn byrjar af krafti  Eftir fjögur töp í röð fyrir SA Víkingi náði Björninn að landa sigri í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkíi  Annar leikur á morgun Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Barningur Það var oft hart barist í viðueign SA Víkinga og Bjarnarins á Akureyri í gærkvöld. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2013 ÍÞRÓTTIR Bestur Michael Craion leikmaður Keflavíkur var í gær valinn bestur í umferðum 12-22 í Dominos-deildinni í körfuknattleik. Craion er frá Kansas í Bandaríkjunum og er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður. 3 Íþróttir mbl.is Jakob Örn Sig- urðarson og Hlynur Bærings- son áttu báðir af- ar góðan leik fyr- ir Sundsvall þegar liðið hafði betur á móti Stockholm á úti- velli, 98:90, í öðr- um leik liðanna í 8-liða úrslitunum í sænsku úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í gærkvöld. Jakob var stigahæstur leikmanna Sundsvall með 26 stig og hann tók að auki fimm fráköst og átti tvær stoðsend- ingar. Hlynur skoraði 17 stig, tók 13 fráköst og átti átta stoðsend- ingar. Sundsvall hefur unnið báða leiki liðanna og er einum sigri frá sæti í undanúrslitum. Pavel Ermolinskij og félagar hans í Norrköping steinlágu fyrir Borås, 104:80, og er staðan 1:1 í ein- vígi liðanna. Pavel skoraði 10 stig, tók níu fráköst og átti tvær stoð- sendingar. gummih@mbl.is Jakob og Hlynur góðir Jakob Örn Sigurðarson Það gengur ekk- ert hjá lærisvein- um Kristjáns Andréssonar í sænska hand- knattleiksliðinu Guif. Liðið tapaði fjórða deildar- leiknum í röð í gær þegar loka- umferðin var leikin en fram- undan er úrslitakeppni átta efstu liðanna. Guif var á toppi deild- arinnar ekki alls fyrir löngu en end- aði í sjötta sæti. Liðið mætir Säve- hof í átta liða úrslitunum en Guif, án Heimis Óla Heimissonar og Hauks Andréssonar, tapaði í gær fyrir Drott, 29:28. gummih@mbl.is Fjögur töp í röð hjá Guif Kristján Andrésson Stjórn Körfu- knattleiksfélags Ísafjarðar og Pétur Már Sig- urðsson, yfir- þjálfari félags- ins, hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samstarfs- samning sín á milli en samning- urinn rennur út í lok apríl. Þetta kemur fram á vef félagsins. Pétur tók við starfi yfirþjálfara fyrir tveimur árum. KFÍ lagði KR í loka- umferð Dominos-deildarinnar á sunnudaginn og tókst þar með að bjarga sér frá falli en liðið endaði í 10. sæti. gummih@mbl.is Pétur hættir með KFÍ Pétur Már Sigurðsson Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna verður í öðrum styrkleiksflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni Evrópumótsins sem haldið verð- ur í Króatíu og Ungverjalandi í desember 2014. Ís- land hefur hækkað sig um einn flokk á þeim tveim- ur árum sem liðnir eru síðan dregið var síðast í undankeppni Evrópumótsins. Sú staðreynd að ís- lenska landsliðið hefur hækkað sig um einn flokk eykur líkurnar á að landsliðið komist áfram í loka- keppnina því fyrir vikið ættu andstæðingarnir í undankeppninni að vera veikari. Röðun í styrkleikaflokka er byggð á árangri á þremur síðustu stórmótum en Ísland hefur tekið þátt í þeim öllum og hafnaði m.a. í 12. sæti á HM í Brasilíu 2011. Með Íslandi í öðrum styrkleikaflokki verða: Rúmenía, Serbía, Þýskaland, Holland, Úkraína og Tékkland. Íslenska landsliðið getur þar af leiðandi ekki dregist gegn þessum þjóðum. Dregið verður í riðla í vor en undankeppnin hefst í lok október og lýkur í júní á næsta ári. Í fyrsta styrkleikaflokki verða: Noregur, Dan- mörk, Frakkland, Svartfjallaland, Svíþjóð, Rúss- land og Spánn. Í þriðja flokki verða: Makedónía, Slóvenía, Tyrk- land, Austurríki, Hvíta-Rússland, Pólland og Sló- vakía. Í fjórða flokki verða: Sviss, Ítalía, Portúgal, Portúgal, Litháen og Finnland. Færri þjóðir með Aðeins 26 þjóðir hafa skráð sig til leiks í und- ankeppni EM 2014. Af þeim sökum eru aðeins fimm þjóðir í fjórða og neðsta styrkleikaflokki. Dregið verður í sjö riðla. Fimm þeirra verða með fjórum þjóðum hver, en í tvo riðla verða dregnar þrjár þjóðir. Tvær þjóðir hvers riðils að und- ankeppninni lokinni, vorið 2014, tryggja sér keppn- isrétt í lokakeppni Evrópumótsins auk gestgjaf- anna Króata og Ungverja. iben@mbl.is Ísland upp um styrkleikaflokk  Kvennalandsliðið í betri stöðu fyrir EM 2014  Dregið í riðla fyrir keppnina í vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.