Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 3
Morgunblaðið/Kristinn Stopp Simona Vintale, leikmaður ÍBV, stöðvar Stellu Sigurðardóttur í leiknum í Safamýr- inni í gærkvöld. þarf framlag frá fleirum en sex til að vinna Grindavík í fimm leikja seríu og því er Justin Shouse alveg sam- mála. „Þarna mætast tvö gæðalið. Nú snýst þetta ekki um útlendingana. Þeir geta komið þér í úrslit en á end- anum vinna Íslendingarnir titilinn. Það lið sem fær framlag frá rulluspil- urunum vinnur seríuna. Grindavík fékk flott framlag frá Þorleifi, Jó- hanni Árna og Sigga Þorsteins gegn KR og það munaði um það. Við feng- um Dag Kár í gang í dag. Hann var flottur, skoraði góðar körfur og tók skynsamlegar ákvarðanir. Það mun skipta öllu í úrslitunum hvaða lið fær rulluspilarana til að taka af skarið,“ sagði Justin Shouse. var að Threatt væri jafnmeiddur og raun bar vitni. Þær áhyggjur áttu fyllilega rétt á sér því með honum fór heilinn í liðinu, einn besti leikmaður tímabilsins og sama hversu mikið Snæfell barðist bætti það ekki upp missinn á herforingjanum. Snýst um Íslendingana Stjarnan er komin í úrslit í annað skipti á þremur árum og í annað skipti í sögu félagsins. Garðbæingar máttu sín lítils gegn KR í úrslitum 2011 en nú eru þeir til alls líklegir. Byrjunarlið Stjörnunnar plús Jov- an Zdravevski er ógnarsterkt og þá vaknaði ungstirnið Dagur Kár Jóns- son af værum blundi í gærkvöldi og setti nokkrar flottar körfur. Stjarnan unblaðið eftir tapið en Íslandsmeistararnir frá því 2010 eru komnir í sumarfrí. Gestirnir spiluðu feiknaflotta vörn í fyrri hálfleik og tóku Shouse alveg út úr spilinu. „Ég var ekki lélegur. Snæfell var bara spila svo góða vörn,“ grínaðist Shouse við Morg- unblaðið eftir leikinn. Sóknarlega voru Snæfellingar líka að hitta vel og fá fleiri stig í teignum en áður í einvíginu. Staðan var jöfn í hálfleik, 38:38, en í seinni hálfleik slokknaði á varnarleik Hólmara og Shouse gekk á lagið. „Við vorum ekki að stoppa þá í vagg og veltu. Justin fór þá að splundra vörninni. Ef hann fékk ekki þriggja stiga skot keyrði hann inn í miðjuna og bjó eitthvað til fyrir Mills og aðra. Það er alltof erfitt að stoppa þetta,“ sagði Jón Ólafur. Threatt of mikill missir Snæfell var án leikstjórnandans Jays Threatts vegna meiðsla á loka- kaflanum í leik tvö, allan leik þrjú og þá gat hann lítið beitt sér í gær. Hann spilaði 15 mínútur og skoraði þrjú stig. Threatt er búinn að vera frábær í allan vetur og var stoðsend- ingakóngur deildarinnar. „Pálmi Freyr stóð sig frábærlega sem leikstjórnandi þegar Jay datt út en það er erfitt að missa jafnsterkan mann út og Jay gegn liði eins og Stjörnunni. Sóknarleikurinn okkar riðlaðist mikið,“ sagði Jón Ólafur. Margir fengu það á tilfinninguna að einvígið væri búið um leið og ljóst Í ÁSGARÐI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Mér leið vel en eini gallinn var að vinur minn Nonni Mæju [Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli] ákvað að hitta úr öllum sínum þriggja stiga skotum líka,“ sagði Justin Shouse, leik- stjórnandi Stjörnunnar, glaðbeittur við Morgunblaðið eftir sigur Garðbæinga á Snæfelli, 94:84, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta. Sigurinn tryggði Stjörnunni farseðil í lokaúrslitin, 3:1, gegn Grindavík sem hefjast á miðvikudaginn. Shouse átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik vegna gríðarlega öflugs varnarleiks Snæfells en hlutirnir fóru að detta fyrir hann í seinni hálf- leik. Þá sérstaklega í fjórða leikhluta þar sem hann og Jón Ólafur buðu upp á skotsýningu. Jón Ólafur vann stigakeppnina, skoraði 30 gegn 24 stigum Justins, en Shouse var sá sem fagnaði í leiksloks enda Stjarnan komin í úrslit í annað sinn á þremur árum. Vörnin brást í seinni hálfleik „Við vorum að spila flotta vörn í fyrri hálfleik. Það var barátta, tal- andi og fá mistök af okkar hálfu. Við erum ekki búnir að spila mjög góða vörn undanfarið þannig að kannski leið okkur of vel með þetta í hálf- leik,“ sagði Jón Ólafur Jónsson, stór- skytta Snæfells, svekktur við Morg- Baráttan bætti ekki upp fyrir Threatt  Stjarnan í úrslit eftir sigur á Snæfelli í fjórða leik  Söknuðu Jay mjög mikið Á HLÍÐARENDA Stefán Stefánsson ste@mbl.is Fáir ef einhverjir hefðu trúað að á ferðinni væru Íslands-, deildar- og bikarmeistarar þegar flautað var til leikhlés hjá Val og Stjörnunni að Hlíð- arenda í gærkvöldi en eftir hlé komu Valskonur með sparihliðarnar sem dugðu til 27:23 sigurs. Þar með er Val- ur kominn með 1:0 í undanúrslitum úrslitakeppninnar í handbolta en ljóst er að Hlíðarendaliðið kemst ekki upp með svona leik aftur. Þrátt fyrir mun betri leik í vörn og sókn tókst Garðbæingum ekki að hafa nema eins marks forskot í hálfleik, 12:13, því of mörg færi þeirra fóru for- görðum auk þess að Guðný Jenný Ás- mundsdóttir í marki Vals varði 8 skot. Það var því ótrúlegt að sjá gestina koðna niður eftir hlé enda var Vals- konum í lófa lagið að taka sig á og taka um leið leikinn í sínar hendur. Komumst upp með þetta „Við áttum ekki að komast upp með að taka svona rólegan fyrri hálfleik en einhvern veginn tókst það, við verðum hinsvegar að vera tilbúnar í meiri átök,“ sagði Guðný Jenný eftir leik- inn. „Ég hef oft sýnt betri frammi- stöðu og var ekki sátt við mína frammistöðu í fyrri hálfleik þó hann hafi svo sem verið í lagi en við náðum síðan að skerpa á vörn og sókn þegar við komum betur inní seinni hálfleik- inn. Við ræddum um að gera það í hálfleik og líka að ná meira floti í sóknina því hún var of hæg í fyrri hálf- leik og auðvelt fyrir Stjörnuna að stöðva hana. Við ætluðum líka að vera fljótari til baka því Stjarnan náði að skora úr tveimur hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik, þær fengu reyndar fjög- ur en klúðruðu tveimur og fjögur er of mikið.“ Framan af hélt Þorgerður Anna Atladóttir Val á floti og það var ekki fyrr en í seinni hálfleik að Hrafn- hildur Skúladóttir, Sonata Viunajte og fleiri höktu í gang. Slökknaði á neistanum Það má alveg hrósa Stjörnunni fyr- ir fínan fyrri hálfleik en líka gagnrýna fyrir að nýta ekki færin, ekki síst þeg- ar búið var að galopna vörn Vals. Það var síðan óskiljanlegt að sjá neistann slokkna eftir hlé. „Við hættum alveg að keyra í seinni hálfleik og það varð okkur að falli,“ sagði Jóna Margrét Ragnarsdóttir sem skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna, fimm af þeim fyrir hlé þegar hún var í ham. „Mér finnst fyrri og seinni hálfleikur eins og svart og hvítt. Við eigum nokkur stang- arskot og missum trúna. Við getum al- veg unnið Val enda trúi ég að við séum með ekki síðra lið og við ætlum bara vinna. Til þess þurfum við tvo hálfleiki sem voru eins og sá fyrri í dag en að- allega megum við ekki hætta að halda hraðanum eins og við gerðum í seinni hálfleik.“ Esther V. Ragnarsdóttir skoraði einnig 6 mörk en það vantaði meira framlag frá öðrum. Höktu í gang eftir hlé  Valskonur unnu Stjörnuna 27:23 eftir slakan fyrri hálfleik  Meistararnir komast ekki upp með annan svona leik ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Skagamennkomust í gærkvöld í átta liða úrslit Lengjubikars karla í knatt- spyrnu þegar bæði Selfoss og Víkingur R. töp- uðu sínum leikj- um. Bæði lið hefðu getað hirt þriðja sætið í 2. riðli af ÍA. Almarr Orm- arsson skoraði tvö mörk fyrir Fram sem vann Víking R. 3:0 og Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Val sem vann Selfoss 3:1. Þar með er ljóst að Víkingur Ó. og ÍA mætast í Vesturlandsslag í 8- liða úrslitum og KR mætir Breiða- bliki. Stjarnan leikur við Fylki eða FH og Valur mætir FH eða Fylki, eftir því hvort liðanna endar í 2. sæti 1. riðils.    Jupp Heynckes, þjálfari BayernMünchen, segist ekki ætla að leita ráða Pep Guardiola, fyrrum þjálfara Barcelona, fyrir leik sinna manna gegn Börsungum í undan- úrslitum Meistaradeildarinnar en Guardiola tekur við starfi Heynckes hjá Bæjurum í sumar. „Ég þarf engan annan til að kynna sér and- stæðinga okkar. Sýnið mér virðingu og mínu starfi. Ég hef aldrei leitað ráða hjá öðrum,“ sagði Heynckes. Í hinu einvíginu mætast Dortmund og Real Madrid. Í Evrópudeildinni leikur Basel við Chelsea og Fener- bache við Benfica.    Ekkert verðuraf því að Avaldsnes, með fimm íslenska leikmenn innan- borðs, þar á með- al Hólmfríði Magnúsdóttur og Guðbjörgu Gunnarsdóttur, leiki fyrsta leik sinn í efstu deild í Noregi í dag. Vegna frosts er völlur Avaldsnes ónothæfur og leik liðsins við Klepp hefur verið frestað ásamt fleiri leikjum í deildinni. Fólk sport@mbl.is Ásgarður, undanúrslit karla, 4. leikur, föstudag 12. apríl 2013. Gangur leiksins: 0:8, 6:12, 11:14, 20:16, 27:21, 30:26, 31:28, 38:38, 42:47, 49:48, 59:53, 66:59, 74:63, 80:68, 89:76, 89:81, 97:84. Stjarnan: Jarrid Frye 27/9 fráköst, Justin Shouse 24/4 fráköst/9 stoð- sendingar, Jovan Zdravevski 21, Brian Mills 10/4 fráköst, Dagur Kár Jóns- son 10, Marvin Valdimarsson 4/5 frá- köst, Fannar Freyr Helgason 1. Fráköst: 25 í vörn, 3 í sókn. Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 30/4 fráköst, Ryan Amaroso 20/14 frá- köst, Sigurður Á. Þorvaldsson 9/7 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 8, Sveinn Arnar Davíðsson 7, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 4/6 stoðsend- ingar, Ólafur Torfason 3/7 fráköst, Jay Threatt 3. Fráköst: 27 í vörn, 11 í sókn. Dómarar: Kristinn Óskarsson, Rögn- valdur Hreiðarsson, Björgvin Rún- arsson. Áhorfendur: 991.  Stjarnan vann einvígið 3:1 og mæt- ir Grindavík í úrslitum. Stjarnan – Snæfell 97:84 Vodafonehöllin á Hlíðarenda, undan- úrslit kvenna, 1. leikur, föstudag 12. apríl 2013. Gangur leiksins: 10, 2:1, 2:4, 5:4, 6:8, 7:11, 10:13, 12:13, 14:13, 17:15, 17:17, 19:18, 24:20, 26:20, 27:21, 27:23. Mörk Vals: Þorgerður Anna Atladóttir 9, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 4, Sonata Viunajte 4, Dagný Skúladóttir 4/2, Karólína Bæhrenz Lárusdóttir 1. Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds- dóttir 20 (þar af 2 til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 6, Esther V. Ragn- arsdóttir 6, Kristín Clausen 4, Hanna G. Stefánsdóttir 3, Rakel Dögg Braga- dóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 1. Varin skot: Hildur Guðmundsdóttir 6 (þar af 2 til mótherja), Sunneva Ein- arsdóttir 5 (þar af 1 til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson. Áhorfendur: 160.  Staðan er 1:0 fyrir Val. Valur – Stjarnan 27:23 HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, 1. leikur: Kaplakriki: FH – Fram.......................... L15 Schenkerhöllin: Haukar – ÍR ................ L17 Undanúrslit kvenna, 2. leikur: Vestm.eyjar: ÍBV – Fram (0:1).............. S15 Mýrin: Stjarnan – Valur (0:1) ................ S16 Umspil karla, undanúrslit, oddaleikur: Mýrin: Stjarnan – Víkingur (1:1)........... S18 KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, 4. leikur: Vodafonehöll: Valur – Keflavík (2:1)..... L16 DHL-höllin: KR – Snæfell (2:1) ............ L16 Umspil karla, 2. leikur: Hveragerði: Hamar – Valur (0:1) ..... S19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Egilshöll: Fylkir – BÍ/Bolung. .............. L13 Leiknisvöllur: Leiknir R. – KF ............. L14 Egilshöll: Fjölnir – Tindastóll ............... L15 Gróttuvöllur: Grótta – Ægir ............. L11.30 Fellavöllur: Hug/Einh.– Fjarðab.......... L14 Fagrilundur: HK – Sindri...................... L14 Reykjaneshöll: Víðir – Hamar............... L16 Akraneshöll: Kári – KV.......................... L16 Boginn: Magni – Höttur ......................... S15 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Akraneshöll: ÍBV – Þór/KA .................. L14 Egilshöll: FH – Valur ............................. S14 Egilshöll: HK/Víkingur – Fylkir ........... S16 Egilshöll: KR – Afturelding................... S18 SUND Íslandsmeistaramótið í 50 m laug heldur áfram í Laugardalslauginni. Úrslit hefjast kl. 17 bæði í dag og á morgun. BADMINTON Íslandsmótið sem hófst í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær heldur áfram í dag og lýkur á morgun með úrslita- leikjum. Lokaúrslit í meistaraflokkum hefj- ast kl. 13.50 á morgun. JÚDÓ Íslandsmót fullorðinna fer fram í Laugar- dalshöll í dag. Mótið hefst kl. 10 og lýkur um kl. 16. UM HELGINA!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.