Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Það er nokkuð lunkin hug-mynd fyndins höfundar aðláta aðalpersónuna verameð tilvitnanabók í smíð- um. Með því getur hann bæði gert grín að hinum grunna samtíma og sáldrað hnyttni í eigið verk án þess að vera ómerkilegur. Kannski má einmitt skoða verkið Mann að mínu skapi sem einn allsherjarleik með gamlar tuggur. Verkið er kynnt sem stofuleikur sem er ekki alveg það nýjasta og flottasta í dag. Þá er þar að finna margkveðin stef bæði hvað varðar söguþráð, framsetningu og jafnvel hugmyndina um átök penn- ans og sverðsins sem höfundur fjallar um í leikskrá. Maður að mínu skapi gerist í einni stofu, anddyri og aðlægum her- bergjum á heimili Guðgeirs Vagns Valbrandssonar sem Eggert Þor- leifsson leikur. Guðgeir býr einn, hann er háskólakennari, lífsnautna- maður og hefur mögulega áhuga á ungum piltum. Guðgeir, eða jafnvel öllu heldur aðstoðarmaður hans, laganeminn Ársæl Daði leikinn af Þorleifi Einarssyni, er að ganga frá stórri tilvitnanabók til prentunar. Þrifin á menningarlegu og grónu heimilinu, sem meðal annars skartar myndarlegu billjardborði, annast Bertha sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur. Þetta er aukastarf hjá Berthu því hún er einnig leikkona og næt- urvörður. Ótalinn er þá Klemens Magnason, leikinn af Pálma Gests- syni. Hann er fyrrverandi ráðherra og vinur Guðgeirs Vagns. Enn frem- ur koma svo við sögu Dóróthea, móð- ursystir og uppeldismóðir Guðgeirs, leikin af Kristbjörgu Kjeld og Agnar, bróðir Berthu sem er löglærður en Þorsteinn Bachmann leikur hann. Verkið fer af stað með því að per- sónur eru kynntar og í ljós koma margs konar „óvænt“ tengsl þeirra sem eru söguvönum áhorfendum gamalkunnug þó að sjaldnast sé þau öll að finna í einu verki. Til viðbótar eru höfundur og leikstjóri natnir við að nota lausnir á borð við að láta mann liggja á njósn á bak við hús- gagn, fela fólk í herbergi og fleira svona hálftrúlegt sem leikhúsáhorf- endum hefur verið boðið upp á í gegnum tíðina. Maður að mínu skapi er um tveir tímar í flutningi og fyrri hlutinn fer að mestu í að setja upp allar að- stæður. Segja má því að ballið byrji ekki almennilega fyrr en í seinni hluta verksins þegar þræðirnir koma saman. Þetta veldur því að verkið er umtalsvert fjörugra eftir hlé. Í Manni að mínu skapi er stundum stigið út fyrir rammann og horft á áhorfendur og jafnvel verkið sjálft. Þetta á sérstaklega við um þjón- ustustúlkuna Berthu. Í blálokin stíga svo allir leikararnir út úr verkinu. Það er fremur erfitt að lofa eða lasta leikara verksins. Persónurnar eiga það sammerkt að hugsa fyrst og fremst um eigin hag. Ég tel að varla nokkur þeirra nái að snerta við áhorfendum eða vekja mikla forvitni hans. Leikmyndin gefur ágæta hug- mynd um íverustað dálítið snobbaðs einhleyps menntamanns með list- rænar tilhneigingar. Búningar eru sömuleiðis eins og manni finnst við- eigandi í hefðbundnum stofuleik. Þá bregður meðal annars fyrir tónlist sem hentar síðmiðaldra fagurkera. Hafi það verið hugmynd höfundar og leikstjóra að snúa á klisjur stofu- leiksins og jafnvel hálfgerðar flökku- sögur samtímans með svo yfir- gengilegum hætti að það yrði tilkomumikið í sjálfu sér hefur það ekki heppnast. Dýpri merkingu er jafnauðvelt eða erfitt að finna í verk- inu Maður að mínu skapi og í hvaða tilvitnanabók sem er. Hugsanlega hefði verið betra að senda áhorfand- anum skýrari skilaboð um hvað það væri sem hann væri að fara að taka þátt í. Þá held ég að þetta verk hefði gert sig betur í smærra rými. Ég verð að lokum að hrósa Egg- erti fyrir að setja niður, að því er mér sýndist, fimm billjardkúlur í röð í skotum sem sum hver virtust ekki auðveld. Ljósmynd/Eddi Stofuleikur „Hafi það verið hugmynd höfundar og leikstjóra að snúa á klisjur stofuleiksins og jafnvel hálfgerðar flökkusögur samtímans með svo yfirgengilegum hætti að það yrði tilkomumikið í sjálfu sér hefur það ekki heppnast,“ segir m.a. í dómi um leikritið Maður að mínu skapi. Leikur með klisjur? Þjóðleikhúsið Maður að mínu skapi bbnnn Maður að mínu skapi – stofuleikur eftir Braga Ólafsson. Leikarar: Eggert Þor- leifsson, Kristbjörg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Þorleifur Einarsson og Þorsteinn Bachmann. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson, bún- ingar: Agnieszka Baranowska, hljóð- mynd: Halldór Snær Bjarnason, lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson, dramatúrg: Stefán Hallur Stefánsson. Leikstjórn: Stefán Jónsson. 2. sýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins, 19. september SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Sjötta sýningin af sjö í sýn- ingaröðinni Mat- ur er manns gaman í Leir 7 við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi, verður opnuð í dag kl. 14. Að þessu sinni sýna Helga Pál- ína Brynjólfs- dóttir, Ingibjörg Helga Ágústs- dóttir og Páll Kristjánsson textíl, útskurð og hnífa. Litbrigði haustsins er viðfangs- efni sýningarinnar, að því er segir í tilkynningu og á opnun verður gestum boðið að bragða á villibráð fjallanna. Textíll, útskurður og hnífar í Leir 7 Ingibjörg Helga Ágústsdóttir Hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir gáfu út sína fyrstu plötu, Hjalti og Lára, 30. ágúst sl. Á morgun halda þau út- gáfutónleika kl. 17 í Laugarnes- kirkju. Á plötunni flytja Hjalti og Lára rólegar ballöður í bland við kántrískotna slagara, eins og þau lýsa því í tilkynningu. Flest lag- anna hafi þau verið beðin um að flytja við ýmis tilefni og lögin hafi fylgt þeim í gegnum árin. Platan var tekin upp í Hofi á vor- dögum. Hjalti og Lára halda útgáfutónleika Tónlistarhjón Hjónin músíkölsku, Hjalti og Lára, á tónleikum. Leiklistarskóli Leikfélags Akureyr- ar hefst mánudaginn 23. september. Samkvæmt upplýsingum frá Ragn- heiði Skúladóttur, leikhússtjóra LA, hafa aldrei jafn margar umsóknir, eða 75 talsins, borist skólanum. „Áherslan í náminu er á frumsköpun nemenda, radd- og líkamsbeitingu. Með þátttöku í náminu þjálfast nem- endur í samvinnu, frumkvæði og skapandi hugsun þar sem hugur og líkami vinna sem eitt. Þar sem um helmingur nemenda hefur stundað nám við skólann lengur en eitt ár hvílir sú ábyrgð á forsvarsmönnum skólans að námið sé í sífelldri þróun og að nemendum sé boðið upp á fjöl- breytt námskeið,“ segir m.a. í til- kynningu frá leikhúsinu. Þar kemur jafnframt fram að María Sigurðardóttir, fyrrv. leik- hússtjóri LA, hafi stofnað skólann haustið 2009. „Leiklistarskóli LA er eini leiklistarskólinn á landinu sem rekinn er af atvinnuleikhúsi. Auk þess að sækja tíma í leiktúlkun og skapandi leiklist er hluti námsins fólginn í því að heimsækja æfingar og eiga í gagnrýnum umræðum um verkefni LA.“ Næst verður opnað fyrir umsóknir í byrjun janúar. Kennarar skólans eru Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Ásta Sig- hvats Ólafsdóttir leikkona. Metaðsókn í leikaranám Tjáning Frá fyrra námskeiði. Verið velkomin Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands: Sunnudagur 22. september kl. 14: Ókeypis leiðsögn um Silfur Íslands Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Sigfús Eymundsson myndasmiður - Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal Silfur Íslands í Bogasal Silfursmiður í hjáverkum í Horni Ég fæ ekki af mér að flýja af hólmi - Hinsegin fólk í máli og mynd á Torgi Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu: Þúsund ár - Fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands og safnbúð Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is www.thjodmenning.is www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17, Þjóðmenningarhúsi alla daga 11-17. Listasafn Reykjanesbæjar ÁFRAMHALD - CONTINUITY Gunnhildur Þórðardóttir sýnir ný tví- og þrívíð verk. 5. sept. – 27. okt. Bátasafn Gríms Karlssonar Byggðasafn Reykjanesbæjar Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Óvænt kynni - Innreið nútímans í íslenska hönnun (7.6.-13.10.2013) Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is UPS AND DOWNS - Kees Visser 6.9. - 27.10. 2013 LEIÐANGUR 2011 6.9. - 27.10. 2013 GERSEMAR 18.5. - 27.10. 2013 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 um sýningar safnsins í fylgd Rakelar Pétursdóttur safnafræðings SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur. KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600. Opið daglega kl. 10-17, lokað mánud. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Safnið er lokað 15. sept. - 6. október FORYNJUR - Sýningin opnar 6. október. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616 • www.listasafn.is LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Vísar – húsin í húsinu Elín Hansdóttir Ilmur Stefánsdóttir Marcos Zotes Theresa Himmer Gordon Matta-Clark Listamannaspjall með Elínu Hansdóttur og Theresu Himmer sunnudag 22. september kl. 15 Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is • Sími 585 5790 Aðgangur ókeypis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.