Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013 Fátt var skemmtilegra í leikfimi- tímum í gamla daga en að fá að fara í Tarsanleik. Þá var búið að leggja allan salinn undir hesta og stökkbretti, allir kaðlar dregnir út og dýnum dreift um gólfið. Minnið nær reyndar ekki til þess ná- kvæmlega út á hvað leikurinn sjálfur gekk. Aðalmálið var að fá að nota allan salinn og fá útrás. Magnús Jónsson, leikari og tón- listarmaður, lýsir því í viðtali á heilsuopnu Sunnudagsblaðsins í dag hvernig hann nýtir Öskjuhlíð- ina sem risastóran leikfimisal þegar hann fær mikla hreyfiþörf, en hann er greindur með ADHD. Hreyfingu er hægt að stunda víða og þótt speglasalir, tæki og tól séu gagnleg jafnast fátt á við góðan „útisal“. Nóg er af þeim, jafnt í sveit og borg. Yesmine Olsson og Arngrímur Fannar Haraldsson segja skemmtilega hvort frá öðru í við- tali í blaðinu í dag. Yesmine gefur út matreiðslubók fyrir jólin og hefur auk þess verið með eigin sjónvarpsþætti um matargerð sem Arngrímur framleiddi. Yesm- ine er sænsk en hún var ættleidd frá Sri Lanka og tengir við upp- runa sinn í gegnum matargerð. Hún hefur alltaf stundað íþróttir og varð sænskur meistari í tramp- ólínhoppi á sínum tíma. Þau kynntust einmitt í ræktinni, þegar Arngrímur kom í þjálfun til henn- ar. Gunnar Eyjólfsson leikari segir frá því í viðtali í blaðinu að hjá stórum tæknifyrirtækjum á borð við Google og Facebook sé hug- leiðsla og hreyfing hluti af vinnu- degi starfsfólks. Hann slær hvergi af í iðkun á qigong og segir hug- leiðslu leiða okkur á braut kær- leika og friðar. Hvort sem við kjósum kraft- mikil útihlaup, trampólínhopp eða yfirvegaða hugleiðslu getum við vonandi öll notið helgarinnar. RABBIÐ Helgarhreyfingin Eyrún Magnúsdóttir Endi var bundinn á sjálfstæði Íslands með Gamla sáttmála árið 1264 og landið formlega sett undir Noregskonung. Nú er öldin önnur; ekki það að sjálf- stæði Noregs sé ógnað en Nýi sáttmáli segir einfaldlega til um það að Íslendingar eru betri en gamla herraþjóðin í fótbolta. Nú ríður enginn Gissur jarl um héruð heldur Eiður Smári, Gylfi, Kolbeinn, Aron og þeir hinir sem fögnuðu af einlægri gleði á Ullevaal-leikvanginum í Ósló í vikunni. Að vísu „bara“ jafntefli en úrslitin dugðu til þess að íslenskt karlalandslið er komið skrefi lengra en nokkru sinni fyrr. Upp í hugann kemur frækinn sigur á Norðmönnum í september 1987, í undankeppni Evrópumótsins árið eftir; Atli fyrirliði Eðvaldsson gerði þá markið í óvæntum 1:0-sigri á sama stað og fagnaði innilega eins og sjá má. Hannes Þór Halldórsson var ekki síður ánægður, sem vonlegt var, eftir leikinn á sama velli á þriðjudaginn. skapti@mbl.is AUGNABLIKIÐ NÝI SÁTTMÁLI HM-DRAUMUR ÍSLENDINGA ER ENN FYRIR HENDI OG STAÐAN Á HEIMSLISTA ALÞJÓÐAKNATTSPYRNUSAM- BANDSINS SEGIR SÍNA SÖGU: ÍSLENDINGAR TELJAST Í FYRSTA SKIPTI BETRI EN NORÐMENN Í FÓTBOLTA! Reuters Morgunblaðið/Eva Björk Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Mýs og menn Hvar? Borgarleikhúsið, stóra sviðið Hvenær? Laugardag kl. 20 Nánar Tekið aftur til sýningar eftir hlé og sýnt að minnsta kosti út nóvember Aftur á svið Hvað? Fatamarkaður Kormáks og Skjaldar Hvar? KEX hostel Hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 12-17 Nánar: Herrafata- verzlun Kormáks og Skjaldar selur föt á lágu verði Herraföt á KEX Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Örsmiðja fyr- ir börn 6 ára og eldri Hvar? Listasafn Reykjavíkur Hvenær? Sunnudag kl. 14-16 Nánar: Þátttakendur vinna teikningu og þrívítt verk í tengslum við sýningu Önnu Hallin í Ás- mundarsafni Leit að fígúru Hvað? Íslandsmót í tölvuleiknum FIFA14 Hvar? Spot Kópavogi Hvenær? Fyrsta um- ferð er á sunnudags- kvöld kl. 19 Nánar: Keppt er í tölvuleiknum FIFA14 og vegleg verðlaun í boði fyrir sigurliðið. Verð: 5.000 kr. 18 ára aldurstakmark FIFA-fótboltamót Hvað? Fjölskylduferð í Þjóðminjasafnið Hvar? Suðurgötu 41 Hvenær? Sunnudag Nánar Tveir fyrir einn af aðgangseyri Þjóðminjasafnsins og frítt fyrir börn yngri en 18 ára Fjölbreyttar sýningar Hvað? Kórahátíð Hvar? Hörpu Hvenær? Sunnudag kl. 15 Nánar: Landssamband blandaðra kóra er 75 ára og því verður efnt til kórahá- tíðar. Verð: 3.200/3.700 kr Kórar í hóp * Forsíðumyndina tók Golli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.