Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Blaðsíða 22
Heilsa og hreyfing „Tilgangurinn með æfingunni er ekki síst að virkja vöðvana í kringum herðablöðin og axlagrindina ásamt því að liðka brjóstbakið og bæta þar með hreyfanleika í öxlum, baki og hálsi,“ segir Fannar Karvel, íþróttafræð- ingur og framkvæmdastjóri Spörtu heilsu- ræktar. „Þar að auki er æfingin einstaklega kjána- leg og ætti að knýja fram bros hjá flestum ef ekki öllum samstarfsfélögum, fjölskyldu- meðlimum og vegfarendum sem til þín sjá og vonandi hjá þér líka.“ Stattu upp og komdu þér fyrir með u.þ.b. axlabreidd á milli fóta og alveg þráð- bein/n í baki. Gerðu a.m.k. 20 snúninga og hvíldu þig svo í hálfa mínútu áður en þú gerir a.m.k. aðra 20 snúninga. Gerðu þetta á hverjum einasta degi og oft á dag ef þig langar að bæta þig enn frekar og gleðja náungann. ÆFING VIKUNNAR Egyptinn 1. Hafðu upphandleggi alveg samsíða gólfinu og láttu hægri hönd vísa beint upp í loft en vinstri höndina beint niður að gólfi. 2. Snúðu höndunum um upphandlegginn þannig að vinstri höndin vísi upp og sú hægri niður án þess að upphandleggurinn hreyfist neitt að ráði. 3. Endurtaktu síðan æfinguna og þegar þú ert komin/n í upphafsstöðuna aftur ertu komin/n með einn snúning. Hafragrautur er hollur og margir borða hann við morgunverðarborðið. Oft er eldað meira af hafragraut en matarlystin þolir og þá endar umframmagnið gjarnan í ruslakörfunni. Slíka afganga er hins vegar hægt að nýta ofan á brauð sem hollt snakk á milli mála. Gott er að kæla grautinn í stutta stund áður en honum er skellt ofan á gróft heilhveitibrauð. Kaldur hafragrautur ofan á brauð 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2013 E rla Eyjólfsdóttir, sérfræðingur hjá fjármálaráðu- neytinu, var valin hlaupari ársins í kvenna- flokki hlaupahópsins FH á dögunum. Hlaupa- hópurinn var stofnaður árið 2010 og eru nú um það bil 100 virkir þátttakendur í honum. Erla hef- ur stundað hópinn af krafti frá upphafi og fékk hlaupadelluna strax. Hópinn segir hún samheldinn og kröftugan. „Þetta er stór og góður hópur og þarna eru sterkir félagar. Þetta er ekki síður félagslegt en að mæta bara og hlaupa,“ segir Erla. „Það hefur orðið al- gjör sprenging í hlaupum hér á landi undanfarin ár og maður finnur hvernig áhugi fólks er sífellt að breiða úr sér,“ segir Erla sem æfir með hópnum þrisvar í viku. „Ég get alveg viðurkennt að maður fær pínulítið samviskubit ef svo ber undir að maður komist ekki á æfingu. Auðvitað reynir maður að mæta en ef ekki þá er bætt upp fyrir það með því að fara t.d. í spinning morguninn eftir eða eitthvað slíkt. Maður reynir að standa sig vel í þessu.“ Í október síðastliðnum fór Erla til Amsterdam og tók þátt í maraþoni þar. Hún endaði í 11. sæti í sínum aldursflokki en um 12.000 manns tóku þátt í hlaupinu. „Þetta var alveg meiriháttar og gekk mjög vel. Ég var gríðarlega ánægð með þetta,“ segir Erla sátt við af- rekið. Láta veðrið ekki stöðva sig Hópurinn hleypur mikið í Hafnarfirði á æfingum sín- um og aldrei fellur æfing niður, þrátt fyrir slæmt veð- ur. „Maður venst bara veðrinu. Æfingar falla aldrei niður og margir sem láta það alls ekki trufla sig. Við hlupum til að mynda Laugaveginn í sumar á tveimur dögum. Það var brjálað veður, slabb og rok, sem var sérstök upplifun og aðeins meira krefjandi.“ Hlaupahópur FH er orðinn ansi stór. Æft er þrisvar í viku og er hópurinn náinn og góður eins og sjá má. Morgunblaðið/Eggert HLAUPA Í HAFNARFIRÐI Samheldinn hlaupahópur HLAUPAHÓPURINN FH ÆFIR SAMAN ÞRISVAR Í VIKU OG ER ERLA EYJÓLFSDÓTTIR EIN AF ÞEIM. HÚN VAR VALIN HLAUPARI ÁRSINS Í FLOKKI KVENNA Á UPPSKERUHÁTÍÐ HÓPSINS. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.