Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkis-
útvarpsins (RÚV), hyggst ræða við
lögregluna um hvers vegna frétta-
stofa RÚV og aðrir fjölmiðlar voru
ekki látnir vita af
umsátursástand-
inu í Hraunbæ í
gærmorgun.
„Mér finnst það
mjög umhugs-
unarvert,“ sagði
Óðinn. Ljóst er
að fólki stafaði
þar hætta af
vopnuðum manni.
Mbl.is birti
fyrstu frétt af málinu klukkan 05.19 í
gærmorgun og þá næstu kl. 05.58.
Vísir.is var með sína fyrstu frétt kl.
06.21 og fréttavefur RÚV kl. 06.29.
Þetta kveikti spurningu um öryggis-
hlutverk RÚV.
„Ríkisútvarpið er liður í öryggis-
kerfi landsins. Það tekur í öllum til-
vikum mið af því sem til þess bær yf-
irvöld, lögregla, almannavarnir og
aðrir slíkir, láta vita af vá eða öðru
sem varðar almannahagsmuni,“
sagði Óðinn. „Við tökum það ekki
upp hjá sjálfum okkur að vara fólk
við, sé það ekki staðfest eða til þess
bær yfirvöld fara ekki fram á það.“
Hann sagði að fréttastofa RÚV
hefði reynt að fá staðfestingu lög-
reglunnar snemma í gærmorgun en
ekki fengið hana. Óðinn nefndi að
fréttastofunni hefði borist tölvu-
póstur frá lögreglunni klukkan
05.12. Þar voru tíunduð hefðbundin
verkefni næturinnar en ekki minnst
á ástandið Hraunbæ.
„Morgunblaðið skúbbaði þarna,
en enginn lét okkur vita, hvorki íbúi
né til þess bær yfirvöld,“ sagði Óð-
inn. Hann sagði að fréttamaður á
vakt hefði verið kominn á vettvang í
Hraunbæ um sexleytið. Í kjölfarið
hóf RÚV að segja fréttir af málinu.
Óðinn sagði að mbl.is hefði verið
helsta heimild fréttastofu RÚV í
fyrstu fréttum auk fréttamanns
RÚV á staðnum. gudni@mbl.is
Lögreglan lét
fjölmiðla ekki
vita af umsátrinu
RÚV fékk ekki staðfestingu
Óðinn Jónsson
Um 3.500 til 4.000 ferðamenn, lang-
flestir útlendingar, lögðu leið sína
niður í Þríhnúkagíg á þessu ári, að
sögn Björns Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Þríhnúka ehf. Ferð-
irnar voru í boði frá miðjum maí og
fram í byrjun september. Tímabilið
var það lengsta í sögu Þríhnúka ehf.
Um 24-25 starfsmenn unnu við
ferðaþjónustuna í sumar.
„Sumarið var mjög erfitt vegna
veðurs. Við lærðum margt á fyrsta
starfsárinu 2012 og ennþá meira á
síðasta sumri,“ sagði Björn. Hann
segir að í Bláfjöllum hafi suðaust-
anáttir verið mjög ríkjandi. „Þær
eru mjög slæmar þarna uppfrá, bæði
hvassar og mikil úrkoma. Við þurft-
um að fella niður allt of margar ferð-
ir vegna veðurs,“ sagði Björn. Hann
segir að svo hvasst geti orðið við
hnúkinn að ekki sé hægt að koma
fólki þar upp til að fara í lyftuna.
Ferðamennirnir þurfa að ganga 3
km leið að og frá hnúknum. Í mikilli
úrkomu og vindi getur þeim orðið
mjög kalt, þrátt fyrir að þeim séu út-
veguð hlífðarföt.
„Við getum ekki teflt öryggi gest-
anna í tvísýnu. Það er langt frá því að
þetta fólk sé vant íslensku sumar-
veðri – eins og það birtist þarna,“
sagði Björn. Hann vonast til þess að
hægt verði að hefja ferðaþjónustuna
á ný um miðjan maí næsta vor. Það
er þó háð ýmsum leyfum.
„Við höfum óskað eftir leyfi til að
leggja rafstreng úr Bláfjöllum að
gígnum,“ sagði Björn. Rafmagnið
verður notað til að knýja lyftur sem
ganga niður í gíginn og ljós sem lýsa
gímaldið upp. Hugmyndin er að
leggja strenginn ofan á snjó í vetur
og láta svo bráðna undan honum.
Unnið er að undirbúningi þess að
gera göng inn í Þríhnúkagíg. Skipu-
lagsstofnun afgreiddi mat á um-
hverfisáhrifum um síðustu áramót.
Hún setti tvö skilyrði fyrir fram-
kvæmdum: Að vegur sem lagður
yrði frá Bláfjöllum hefði 70 km há-
markshraða og að heildarendurskoð-
un á skipulagi vatnsverndarsvæðis
höfuðborgarsvæðisins yrði lokið.
Henni lýkur væntanlega á næsta ári,
að sögn Björns. Eins þarf að breyta
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis-
ins og aðalskipulagi Kópavogs.
Hvort tveggja þarf að bera undir
Skipulagsstofnun til samþykktar. Þá
þarf framkvæmdaleyfi hjá Umhverf-
isstofnun. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Þríhnúkagígur Ferðamenn síga niður í dýpstu hraunhvelfingu í heimi í
lyftu. Gígurinn hefur vakið mikla athygli víða erlendis undanfarin ár.
Þúsundir ferða-
manna í gíginn
Vilja leggja rafstreng að Þríhnúkagíg