Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÍstjórnarskráÍslands segirað allir skuli „njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu“. Þar er einnig kveðið á um að sú friðhelgi verði ekki rofin nema með dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Í nútímasamfélagi er varð- veisla friðhelgi einkalífsins ekki bara undir borgurunum sjálfum komin. Samskipti þeirra fara fram í tölvupósti, smáskilaboðum og með ýms- um öðrum hætti. Samfélagið byggir á því að þessi samskipti séu örugg. Fyrirtækjum sem veita slíka þjónustu er því fal- in mikil ábyrgð. Þeim er treyst fyrir svo umfangs- miklum upplýsingum að ein- ræðisherrar eftirlitsríkja lið- innar aldar hefðu aldrei þorað að láta sig dreyma um annað eins. Ef öryggið bregst getur líf viðskiptavina þeirra orðið eins og opin bók. Traust er fjöregg fjarskiptafyrirtækja. Um helgina var gerð net- árás á Vodafone og marg- víslegum upplýsingum um við- skiptavini fyrirtækisins stolið. Í gögnunum voru lykilorð, smáskilaboð og persónu- upplýsingar, sem deilt var á netinu. Í fréttum hefur komið fram að 30 þúsund lykilorðum að tölvupóstföngum Íslend- inga hafi verið stolið og aðeins hluti þeirra verið dulkóðaður. Um er að ræða í kringum 80 þúsund smáskilaboð, sem ná allt aftur til 2010. Meðal þeirra eru samskipti þing- manna og afar persónuleg skeyti einstaklinga. Þetta er grafalvarlegt mál og virðist sem forráðamenn Vodafone hafi ekki gert sér grein fyrir því í upphafi. Furðu sætir að fyrirtækið skuli í fyrstu hafa sagt að engar trúnaðarupplýs- ingar hefðu komst í rangar hendur, en síðan þurft að draga það til baka skömmu síðar. Ekki er síður alvarlegt að í ljós kom að fyrirtækið hefur geymt gögn mun lengur en kveðið er á um í lögum. Í fjar- skiptalögum segir að fjar- skiptafyrirtæki skuli „í þágu rannsókna sakamála og al- mannaöryggis, varðveita lág- marksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í sex mánuði“. „Eyða ber um- ferðargögnunum að þessum tíma liðnum,“ segir síðan, enda sé ekki þörf fyrir þau lengur. Þarna er ekkert óskýrt. Fyrirtækið ber því við að eldri skilaboð hafi verið á síðunni vegna þess að viðskiptavinir hafi getað valið að geyma send sms. Til viðbótar hafi verið eldri gögn í kerfum Vodafone og þeim hafi verið eytt. Jafn- framt kom fram að við athug- un hjá Símanum eftir að árás- in var gerð á Vodafone hefði komið í ljós að ein tegund gagna hefði verið geymd hálfu ári lengur en heimilt væri, en hefði nú verið eytt. Það er undarlegt að fjar- skiptafyrirtæki skuli ekki vera með skýrar vinnureglur um eyðingu gagna þegar skyldubundnum geymslutíma lýkur. Hvaða hag hafa þau af að geyma slíkar upplýsingar? Þeirra hlutverk er að veita þjónustu, ekki að safna upp- lýsingum um viðskiptavini sína og geyma á laun. Eftir þessa uppákomu er full ástæða til þess að fara rækilega yfir það hvernig ör- yggismálum er háttað hjá fjar- skiptafyrirtækjum. Í fyrsta lagi þurfa þau að tryggja ör- yggi fyrir árásum, en eins verður að vera tryggt að þau virði lög um eyðingu gagna. Viðbrögð við árásinni vekja líka spurningar. Upplýsing- arnar, sem árásarmaðurinn setti á netið, mátti með ýms- um hætti rekja til ein- staklinga. Á vefsíðunni já.is er hægt að rekja símanúmer og þar með komast að því hver hafi sent smáskilaboð, sem birt voru á netinu. Þar var þó ekki boðið upp á að fjarlægja upplýsingar fyrr en á hefð- bundnum afgreiðslutíma í gær. Vodafone gaf viðskiptavin- um kost á að kanna hvaða upp- lýsingar um þá hefðu birst á netinu. Myndaðist röð fyrir utan sérstakt gagnaherbergi, þar sem fyrirtækið hafði kom- ið upp aðstöðu og átti aðeins að vera opið í gær og í dag. Ljóst er að þessi aðgerð dugar ekki til. Nægir þar að benda á að færri komust að en vildu auk þess sem viðskiptavinir fyrirtækisins eru ekki allir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mál vekur margar spurningar og er nauðsynlegt að fjarskiptafyrirtæki fari rækilega yfir öryggisreglur sínar. Að þessu sinni voru gögnin birt á netinu og ætl- unin að koma höggi á fyrir- tækið með þeim hætti, en árásarmenn gætu rétt eins brotist inn í tölvukerfi án þess að skilja eftir sig spor og gert sér leik að því að sækja upp- lýsingar yfir lengra tímabil. Fjarskiptafyrirtækjum er sýnt mikið traust og þau verða að standa undir því. Traust er fjöregg fjarskiptafyrirtækja}Friðhelgi einkalífs O ft er sagt að hinn fullkomni glæpur sé svo vel geymt leyndarmál að á endanum sé alltaf kjaftað frá. Einhver segi frá málavöxtum og hverjir gerendurnir voru. Oft er sagan upplýst til að verja aðra hagsmuni en stundum hendir að flóðgáttir bresta af slysni svo allt míglekur, eins og gerðist um helgina þegar tyrkneskur dólgur gerði áhlaup á kerfi Vodafone á Íslandi með kunnum afleiðingum. Ýmsum sprekum úr gagnabanka fjarskipta- fyrirtækisins hefur skolað á land síðustu sólar- hringa, svo sem pornósögum, bankaupplýs- ingum, hversdagsmálum í lífi fjölskyldna og lýsingum á pólitísku brölti. Ekkert hefur komið fram sem eru atriði sem marka skil, stóra málið er hins vegar að þetta þarf ekki að koma mjög á óvart. Er nokkuð til lengur sem er leyndarmál? Rafrænan hefur raskað jafnvægi og fullkomni glæpurinn verður ekki falinn. En þarf endilega tölvuvædda veröld svo allt fréttist? Fyrir rúmum áratug þegar til stóð að koma upp gagna- grunni í þágu erfðarannsókna var tekin umræða um frið- helgi heilsufarsupplýsinga. Ýmis sjónarmið heyrðust og ýmsum þótti teflt á tvær hættur; því það sem við segðum við lækna um heilsu og líðan væri það allra heilagasta. Flest sem á þessum tíma var sagt gæti staðist enn – og munum að fólk sem veikist er oft óðfúst til að deila þeirri reynslu með öðrum. Mér bláókunnugt fólk fer stundum með slíkar rullur á förnum vegi svo kjaftar á því hver tuska. Sjúkrasögur eru vinsælt efni í blöðum og sömuleiðis bókum og ekki verður annað séð en að þetta sé þakklátt efni. Fleiri prívatmál, sem svo eru kölluð eru sömuleiðis fólki sem hefur af persónulegri reynslu af miðla oft býsna kær umræðuefni svo rökin um friðhelgi einkalífsins eru stundum kátlegt hjal. Lekamál síðustu missera eru mörg. Julian Assange og félagar hans Wikileaks komust inn fyrir virkisveggi stjórnvalda í Bandaríkjunum og í áhugaverðar upplýsingalindir þar. Hvað nákvæmlega er þaðan komið er utan efnis þessa pistils; punkturinn í málinu er sá að ríki halda úti heilum herdeildum spæjara sem liggja á gægjum og rýna í skráargöt. Það eru raunar velþekkt vinnubrögð en vert umræðu er hvað auðvelt er orðið að fylgjast með öllu og öllum. Njósnastofnanir í ríkjunum rauðu, sem liðu undir lok fyrir aldarfjórðungi, voru alræmdar. Væru þó sakleysislegir sunnudagaskólar í samanburði við þau tækifæri til leynilögguleikja í rafheimum sem nú bjóðast. Eftir hrunið voru uppi háværar raddir um að leyndar- hyggju skyldi aflétta. Allt upp á borðið og enga þöggun, var gjarnan sagt og orðunum sérstaklega beint til manna í stjórnmálum og viðskiptum. Og nú virðist vera að rofa til, með lekanum um helgina hefur ýmislegt komið fram í dagsljósið og þöggunin er á undanhaldi þó það hafi gerst með öðrum hætti en vænst var í byltingunni. Við höfum hins vegar alveg óvart fengið að sjá beint í sárið í voðalegu máli hjá Voðafón. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Alveg óvart er engin þöggun STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Mikill álagstími er hjástarfsfólki verslana umþetta leyti. Salan fyrirjól er mest frá miðjum nóvember og allan desembermánuð. 12. desember næstkomandi mun afgreiðslutími margra verslana lengjast. Opið verður víða til kl. tíu öll kvöld fram að aðfangadegi jóla, m.a. í verslunarmiðstöðvunum í Kringlunni og Smáralind sem og í miðborginni. „Fleiri koma að verslunar- störfum en áður. Sami ein- staklingurinn vinnur hvorki jafn mikið og lengi í einu eins og áður tíðkaðist,“ segir Ólafía Björk Rafnsdóttir, formaður VR, spurð út í álag á starfsfólk í verslunum um þetta leyti. Þetta eigi einkum við um félagsmenn sem starfa í matvöru- verslunum. Þar dreifist vinnuálag meira vegna vaktavinnu og fleiri hlutastarfsmanna. Það eigi við um desember eins og aðra mánuði. Í verslunum þar sem afgreiðslu- tími er ekki eins langur, t.d. í sér- verslunum, á þetta þó ekki við. Ljóst er að þeir starfsmenn vinna umtals- vert lengri vinnudag í desember en aðra mánuði. „Alltaf er þarft að minna á lög- bundinn hvíldartíma verslunarfólks í desember. Við höldum áfram að gera það,“ segir Ólafía og vísar til auglýs- ingaherferðar VR sem hófst árið 2004 og eigi alltaf við. Eftir að þeirri herferð var hrundið af stað, þar sem m.a. úrvinda verslunarfólk sofnar í kvöldverði á aðfangadegi, hafi orðið ákveðin vitundarvakning, jafnt með- al atvinnurekenda og starfsfólks. Eðli málsins samkvæmt berast ekki kvartanir um hvíldartíma frá starfsfólki fyrr en eftir jól. „Við greinum aukinn þunga í málefnum tengdum hvíldartíma á þessum tíma árs.“ Lögbundin hvíld er 11 klukku- tímar milli vakta. Kostar ekkert að vera kurteis Í dag hefst átak VR þar sem fólk er minnt á að sýna kurteisi í samskiptum. Starfsfólk ýmissa verslana verður með barmmerki með slagorðum sem verslanir geta valið um. Skilaboðin eru m.a.: „Það kostar ekkert að vera kurteis“, „virðum störf verslunarfólks“, „hrós kostar ekkert“, „allir brosa á sama tungu- máli“. Ástæðan fyrir þessari vitundar- vakningu sem VR hvetur til er fjöldi dæma um kúnna sem hafa látið geð- vonsku sína hafa áhrif á starfsfólk. „Slíkt er algjörlega óviðunandi. Þarft er að minna á almenna kurteisi á þessum tíma, ef við erum kurteis þá minnkar það álag á alla. Í kjölfarið ítrekum við að virða skuli umsaminn hvíldartíma,“ segir Ólafía. Jólin í miðborginni „Það er góður hugur í mann- skapnum. Þetta fór vel af stað [í fyrradag] með glæsilegri tendrun ljósa á jólatrénu við Austurvöll. Mið- borgin er orðin fullskreytt og hefur mikið aðdráttarafl,“ segir Jakob Frí- mann Magnússon, framkvæmda- stjóri Miðborgarinnar, spurður út í jólaverslunina þar á bæ. Ýmsar uppákomur hafa verið skipulagðar í jólamánuðinum til að fá fólk til að koma í miðborgina. Sem dæmi má nefna fjölskylduratleik og jólavættina en myndum af þeim verður varpað upp á ýmsar bygg- ingar í borginni. Jakob segir kaup- menn almennt jákvæða og eflaust spili inn í sýnilegur fjöldi erlendra gesta. Vinnuálag starfs- manna dreifist betur Morgunblaðið/Styrmir Kári Jólaverslun Starfsfólk í sérverslunum vinnur lengri vinnudag í desember en aðra mánuði. Ljós á Óslóartrénu á Austurvelli eru hér tendruð. Ólafía Rafnsdóttir „Okkur finnst jólaverslunin al- mennt fara frekar rólega af stað. Reyndar er það þannig hjá okkur að hún tekur yfir- leitt seint við sér. Fólk kaupir skartgripi oft á síðustu stundu þegar það vill gjarnan bæta við í pakkann,“ segir Hákon Jónsson, framkvæmda- stjóri Jóns og Óskars, úra- og skartgripaverslunar. Verslunin er á þremur stöðum; á Lauga- vegi og í Kringlunni og Smáralind. Hákon segir að nú sé sala í versluninni á Lauga- veginum í rólegri kantinum miðað við hina staðina. Eftir hrunið 2008 dróst verslunin saman. Síðustu ár hefur hún verið með svipuðum hætti og er útlit fyrir að hún verði einnig ámóta í ár. Hákon bendir á að honum þyki mjög margir fara til út- landa að kaupa jólagjafir. Það hefur töluverð áhrif á jóla- verslun hér á landi. Margir versla í útlöndum JÓLAVERSLUNIN FER RÓLEGA AF STAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.