Morgunblaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 1
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Eins og er get ég ekkert annað en
beðið eftir að mér batni. Hversu lang-
an tíma það tekur veit enginn,“ segir
Stella Sigurðardóttir, landsliðskona í
handknattleik og leikmaður danska
liðsins SönderjyskE.
Stella hlaut tvö þung höfuðhögg í
leikjum með skömmu millibili og hef-
ur ekki bitið úr nálinni með afleið-
ingar þeirra.
Fyrra höggið fékk hún í landsleik í
lok nóvember og hið síðara í byrjun
janúar. Þess utan skaddaðist vinstra
augað við fyrra höggið sem var á
gagnaugað. Hún hefur endurheimt
sjónina en lítill svartur blettur sem
hún sér, einkum við snöggar hreyf-
ingar fylgir henni hugsanlega ævi-
langt. Bletturinn er afleiðing þess að
taugaþræðir í auganu sködduðust.
„Ég veit ekki hversu langur tími
líður til viðbótar áður en ég get farið
af stað á nýjan leik og æft af krafti,“
segir Stella sem getur lítið sem ekk-
ert reynt á sig líkamlega. „Tíu mín-
útur á þrekhjóli eru þrekraun,“ segir
Stella sem fær höfuðverk við nánast
minnstu áreynslu.
Var hálfslöpp í desember
Stella segir að eftir fyrra höggið
hafi hún mest haft hugann við augað
sem skaddaðist. Hún hafi ekki leitt
svo mikið hugann að höfuðhögginu
sem slíku og afleiðingum þess. „Ég
var þó alltaf hálfslöpp í desember,
eins og það væri slen yfir mér og
kraftleysi. Ég hafði oft orð á þessu
við Tandra [Má Konráðsson] sam-
býlismann minn. Stundum var eins
um mígrenishöfuðverk væri að ræða.
Þrátt fyrir það hélt ég áfram að æfa
en í fyrsta leik í janúar með Sönder-
jyskE í dönsku deildinni fékk ég ann-
að högg. Eftir það var ég alveg úr leik
og hef verið síðan,“ segir Stella.
„Ég hef verið heima og helst ekki
getað gert neitt. Eins og gefur að
skilja hefur það verið andlega mjög
erfitt. Ég gat ekki farið í heimsókn á
æfingar með liðinu eða á leiki. Það
var mér um megn líkamlega. Þar af
leiðandi hef ég einangrast sem er leið-
inlegt fyrir sálina. Það er ferlegt að
vera kippt út úr daglegum venjum.
Undanfarnir mánuðir hafa tekið
hrikalega á.“
Heilaskaði og minnistruflanir
Stella hefur farið í rannsóknir bæði
í Danmörku og hér heima á Íslandi.
Hún var t.d. í hálfan mánuð í rann-
sóknum og æfingum á Grensásdeild-
inni í síðasta mánuði. „Þá komu meðal
annars í ljós minnistruflanir. Ég
kveiki ekki alveg á réttu orðunum til
dæmis ef mér er réttur hlutur sem ég
á að þekkja þá þarf ég stundum tíma
til þess að segja hvaða hlutur þetta er
þótt ég þekki hann. Ég er lengi að
kalla fram rétta orðið.
En þetta er semsé heilaskaði. Mér
er sagt að hann sé ekki alvarlegur og
muni ganga til baka. Þessu hefur ver-
ið líkt við að bækur falli niður úr hillu.
Það tekur sinn tíma að raða þeim upp
í hilluna á nýjan leik,“ segir Stella
sem segir andlega líðan hafa verið
slæma á síðustu mánuðum fyrir utan
linnulítinn höfuðverk og ógleði.
Stellu hefur verið ráðlagt að lesa og
reikna til þess að þjálfa heilann. Einn-
ig slíkt reynir mjög á og segist Stella
ekki geta setið við lestur eða reikning
meira en í klukkustund á dag. Ef ég
sit lengur við þá kostar það enn meiri
höfuðverki. Engu að síður reynir hún
eftir megni að sinna fjarnámi í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands.
Óttaðist það versta
„Fyrst eftir síðara höggið velti ég
öllu því versta fyrir mér og hvort það
væri ekki eitthvað alvarlegra að. Ég
fór svo loks í heilaskanna og eftir
hann létti mér mjög þegar ljóst var
að ekkert slæmt var á ferðinni svo
sem heilaæxli,“ segir Stella.
Læknar geta ekki fullyrt hvað ná-
kvæmlega kom fyrir heilann í Stellu
en talið er að um heilahristing hafi
verið að ræða og jafnvel hafi komið
mar á heila. Hinsvegar leið of langur
tími frá síðara högginu og þangað til
Stella fór í heilaskanna til að hægt
væri að greina hvort heilinn hefði
marist eða ekki.
Það er alvarlegt að fá einu sinni
heilahristing um ævina, hvað þá
tvisvar með fárra vikna millibili. Í
hvert skipti tekur lengri tíma fyrir
heilann að jafna sig. Stella segir að
þessi tvö þungu högg í desember og
janúar bætist við högg og heilahrist-
ing sem hún fékk í kappleik með
Fram í leik við Val í úrslitum Íslands-
mótsins vorið 2010. „Þá fékk ég högg
á gagnaugað og rotaðist og var tíu til
tólf daga að jafna mig,“ segir Stella
sem nýverið var minnt á þetta atvik
sem hún hafði gleymt. „Ég var svo
fljót að jafna mig og mundi ekki eftir
þessu atviki fyrr en móðir mín rifjaði
það upp á dögunum.“
Aðalatriði að ná heilsu
„Ég verð að sjá til hvernig heilsu-
farið verður áður en ég get ákveðið
hvenær ég spila handbolta á nýjan
leik. Sumir segja að kannski geti ég
farið af stað í haust aðrir að raunhæf-
ara sé að það verði í byrjun næsta
árs. Ég veit ekkert um það. Aðal-
atriðið er að ná heilsu á nýjan leik.
Læknar segja mér að ég verði að ná
að verða „gamla Stella“ aftur áður en
ég fer af stað. Það er enn svolítið
langt í hana,“ segir Stella.
„Það er ljóst að það mun taka lang-
an tíma að komast í líkamlegt form
aftur. Þess utan þarf ég vinna til baka
sjálfstraustið, að þora að fara út í
leikinn aftur. Það mun kosta mikla
vinnu að koma til baka á nýjan leik en
verður ekki óyfirstíganlegt,“ segir
handknattleikskonan Stella Sigurð-
ardóttir.
Enn langt í „gömlu“ Stellu
Hefur nánast verið rúmliggjandi síðan í byrjun janúar eftir tvö þung höfuðhögg Óvíst hvenær
landsliðskonan Stella Sigurðardóttir getur hafið æfingar á ný Einangrunin hefur tekið mjög á
Morgunblaðið/Golli
Óvissa Stella Sigurðardóttir spilar ekki handbolta á næstunni.
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2014
ÍÞRÓTTIR
Undankeppni HM Ísland mætir Möltu á útivelli í dag og freistar þess að vinna fimmta leikinn í röð.
Gert ráð fyrir að Malta verjist mjög aftarlega. Getur reynt á þolinmæðina, segir Freyr Alexandersson 4
Íþróttir
mbl.is
HK sigraði Stjörnuna í fyrsta úr-
slitaleik liðanna um Íslandsmeist-
aratitil karla í blaki þegar liðin
mættust í gærkvöld í Fagralundi í
Kópavogi. Leiknum lauk 3:2 fyrir
HK eftir oddahrinu.
HK virtist hafa leikinn í hendi sér
eftir að liðið vann fyrstu tvær hrin-
urnar, 25:16 og 25:21, og komst í
2:0. Þá tók Stjarnan við sér og jafn-
aði leikinn í 2:2 með því að vinna
næstu tvær hrinur, 25:20 og 25:14,
og lítið gekk upp í leik HK.
HK vann svo oddahrinuna 15:12
og leikinn um leið 3:2 og hefur nú
1:0 forystu í einvíginu þar sem
vinna þarf þrjá leiki til að verða Ís-
landsmeistari. Liðin mætast næst á
laugardag. thorkell@mbl.is
HK vann
fyrsta leik eft-
ir oddahrinu
Morgunblaðið/Golli
Barátta Það var hart barist í fyrsta úrslitaleik HK og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í Fagralundi
í gærkvöld. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari og er HK nú yfir í úrslitaeinvíginu 1:0.
10. apríl 1980
Ísland vinnur stórsigur á Noregi,
83:58, í fyrsta leik á Norður-
landamóti karla í
körfuknattleik sem
fram fer í Bærum í
Noregi. Afburða-
góður leikur, segir
Einar Bollason
landsliðsþjálfari
við Morgunblaðið.
Pétur Guðmundsson skorar 23
stig og Jón Sigurðsson 14.
10. apríl 1984
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik leggur Frakka að velli í
annað sinn á tveimur dögum,
22:18, í vináttulandsleik á Akra-
nesi. Kristjána Aradóttir og Ing-
unn Bernótusdóttir skora sex
mörk hvor.
Á ÞESSUM DEGI