Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 242. tölublað 102. árgangur
MEÐFRAMLEIÐANDI
KVIKMYNDAR Í
AFGANISTAN
GOTT AÐ
BÚA Á
ÍSLANDI
ENDURNÝJUN
BÍLAFLOTANS
AÐKALLANDI
TÆLENDINGAR 18 VIÐSKIPTAMOGGINNANTON MÁNI 38
Bátasmiðir og
aðilar tengdir
siglingaiðnaði
hafa fundað um
stofnun hags-
munasamtaka,
en þeir eru ósátt-
ir við samskipti
sín við Sam-
göngustofu.
„Það er gríðarlega erfitt að leita
réttar síns og við getum ekkert snú-
ið okkur þegar kemur að túlkun
reglna,“ segir Sverrir Bergsson,
framkvæmdastjóri bátasmiðjunnar
Seiglu. »4
Hafa fundað um
stofnun samtaka
Árlegur ábati af lagningu sæ-
strengs milli Íslands og Bretlands
gæti numið allt að 420 milljónum
evra, jafnvirði um 65 milljarða
króna. Það jafngildir um 3,5% af
landsframleiðslu Íslands.
Þetta er niðurstaða kostnaðar-
og ábatagreiningar sem ENTSO-E,
Evrópusamtök fyrirtækja á sviði
raforkuflutninga, hafa framkvæmt.
Er strengurinn talinn einn sá þjóð-
hagslega hagkvæmasti í hópi yfir
hundrað verkefna sem koma helst
til álita við uppbyggingu raforku-
kerfa í Evrópu á næstu tíu árum.
Björgvin Skúli Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og við-
skiptaþróunarsviðs Landsvirkjun-
ar, segir að niðurstaðan af
greiningu ENTSO-E gefi sterklega
til kynna að Íslendingar gætu náð
enn meiri arðsemi af orkuauðlind-
um sínum í framtíðinni. „Það sem
liggur fyrir núna er að hefja við-
ræður við bresk stjórnvöld um
hvort þau hafi áhuga á slíkum
streng,“ segir Björgvin.
hordur@mbl.is »Viðskipti
Ábati af sæstreng
Lagning sæstrengs til Bretlands skoðuð
Samsett mynd/Bj.Snæ-arkitektar og ÞÖK
Laugardalsvöllur Ein tillaga KSÍ að nýjum þjóðarleikvangi í Laugardal.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við höfum ekki fjárhagslegt bol-
magn til að standa einir að bygg-
ingum á Laugardalsvelli, höfum nóg
með okkar rekstur. Forsendan fyrir
nýrri og stærri knattspyrnuvelli er
að hlaupabrautin fari, og um það
hefur náðst samkomulag við frjáls-
íþróttahreyfinguna,“ segir Geir Þor-
steinsson, formaður KSÍ, en sam-
bandið hefur látið vinna fyrir sig
teikningar að nýjum þjóðarleikvangi
í Laugardal sem tæki minnst 15 þús-
und manns í sæti. Ein útfærslan sést
hér til hliðar, sem gerir ráð fyrir
fimm þúsund fermetra byggingum
til viðbótar við þær sem fyrir eru.
„Við teljum að fjármögnun svona
framkvæmda geti ekki orðið að
veruleika nema með aðkomu áhuga-
samra fjárfesta. Eignarhaldið yrði
hjá borginni, sem fengi auknar
tekjur af byggingarmagninu en
gerði afnotasamning til langs tíma
við rekstraraðilana,“ segir Geir.
Þórgnýr Thoroddsen, formaður
ÍTR, segir ljóst að ríkið verði að
koma að framkvæmdum í Laugardal
og beðið sé fundar með mennta-
málaráðherra. »6
Tillaga að þjóðarleikvangi
KSÍ með hugmyndir um yfirbyggðan völl sem tæki minnst 15 þúsund í sæti
Það er misjafnt hvernig fólk kýs að fagna því að
hafa látið pússa sig saman í hjónaband.
Norska parið Charlotte Hidle og Magnus Jens-
sen fóru kannski heldur óvenjulega leið í gær.
Eftir að hafa gift sig skáluðu þau í kampavíni í
kristalsglösum með gestunum sínum þremur
fyrir utan pylsuvagninn Bæjarins bestu í miðbæ
Reykjavíkur og auðvitað var boðið upp á pylsur
með kampavíninu.
Boðið upp á pylsur í brúðkaupsveislu á Bæjarins bestu
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningur að nýju skipu-
lagi svonefnds Kassagerðarreits í
Reykjavík er að fara af stað.
Í aðalskipulagi er gert ráð fyr-
ir 200 íbúðum á reitnum og að
byggingarmagn verði aukið um
80.000 fermetra. Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir
Olís eiga lóð við reitinn sem geti
nýst undir höfuðstöðvar félags-
ins. » 16
Áforma 200 nýjar
íbúðir í Laugarnesi
„Það leikur sér
enginn að því að
breyta um stað-
setningu á lands-
móti. Veðrið hef-
ur sett strik í
reikninginn á
síðustu mótum.
Þá þarf að búa
mótunum þann
stað að þau geti mætt því á sem
bestan hátt ef við lendum í vondu
veðri. Þetta er erfið spurning sem
snýst ekki um: með eða á móti ein-
um stað, heldur ískaldur veruleiki,“
segir Haraldur Þórarinsson, for-
maður Landssambands hesta-
mannafélaga. Hann tilkynnti Skag-
firðingum að Landsmót hesta-
manna 2016 yrði líklega ekki haldið
í Skagafirði. »4
Landsmótið líklega
ekki í Skagafirði
Fyrir f lottan málstað
er bleikur miði
hugsaðu um heilsuna
200KR.
húð, bein og l iði .
www.gulimidinn.is
„Að óbreyttu stefnir annað árið í
röð í mjög slaka loðnuvertíð, sem
hefði mikil fjárhagsleg áhrif á af-
komu fyrirtækja og samfélagið
allt,“ segir Kolbeinn Árnason,
framkvæmdastjóri LÍÚ um nið-
urstöður loðnumælinga. Lagt er til
aflamark á vertíðinni verði 260 þús-
und tonn en væntingar höfðu verið
um að það yrði 450 þúsund tonn.
Vegna veiða skipa nágrannaríkja
og samninga liggur fyrir að í hlut
íslenskra veiðiskipa kemur að
óbreyttu 150 þúsund tonn og enn
minna ef samningur við Færeyinga
verður endurnýjaður.
Loðnustofninn verður mældur að
nýju eftir áramót og verða tillögur
um heildaraflamark endurskoð-
aðar gefi niðurstöður þeirra tilefni
til þess. Mælingar gengu illa á þeim
tíma í fyrra vegna breytts göngu-
mynstur loðnunnar. »12
Útlit fyrir að loðnukvóti íslenskra fiski-
skipa verði undir 150 þúsund tonnum
Vinnsla Minna verður af loðnu til vinnslu.