Málfríður - 15.03.2010, Blaðsíða 19
Nám á ferð og flugi er tilraunaverkefni í byrjenda-
kennslu í spænsku við Menntaskóla Borgarfjarðar
sem hófst á haustönn 2009. Tilgangur verkefnisins
var að þróa og prófa þá möguleika sem farsímar
bjóða upp á í tungumálakennslu.Verkefnið, sem
flokkast undir það sem kallast á ensku „mobile
learning“, var unnið í samvinnu við Símann sem
gaf fimm farsíma af gerðinni Nokia Music Express.
Símarnir eru með snertiskjá, auðveldir og þægilegir
í notkun og því aðlaðandi kostur fyrir nemendur.
Útbúin var taska með fimm farsímum til notkunar
í kennslustundum. Nemendur í tveimur spænsku-
hópum á byrjunastigi hafa núna notað símana til að
vinna munnleg verkefni sem flokkast undir svoköll-
uð portfolioverkefni.
Eftir fyrstu tvo mánuðina í spænskunámi sínu hafa
nemendurnir lært að miðla og taka við ýmsum upp-
lýsingum varðandi sjálfa sig, svo sem nafn, aldur,
þjóðerni, fjölskylduhagi, lýsingu á útliti, stjörnu-
merki, búsetu, nám, skóla og skólahúsnæði, náms-
greinar. Þeir hafa unnið þrjú verkefni hingað til:
1. Samtal – skipst á upplýsingum
2. Kynning á sjálfum sér
3. Kynning á skólanum.
Í fyrstu tveimur verkefnunum var nemendunum
skipt í tveggja manna hópa þar sem þeir unnu verk-
efnin saman, hjálpuðust að við að setja saman text-
ann og leiðrétta hvorn annan. Þeir æfðu framburð
saman, lásu textann hvor fyrir annan, og tóku síðan
upp samtalið og kynninguna á símann í videoformi.
Mælt var með að taka upp nokkrum sinnum og
velja besta bútinn. Síðan var efnið fært yfir í tölvu
og unnið úr því myndband á spænsku.
Í þriðja verkefninu fóru nemendurnir saman um skól-
ann og tóku myndir af öllu rýminu innan skólans. Þeir
mynduðu einnig skólann utan frá. Myndirnar voru sett-
ar inn í tölvu og raðað saman í þeirri röð sem hópunum
fannst koma best út. Eftir það settu nemendurnir texta á
spænsku inn á myndirnar, bjuggu til texta til að tala inn
á sem kynningu á skólanum og unnu myndband.
Í fyrsta verkefninu lærðu nemendurnir á tæknina og
fengu samtímis ögrandi verkefni – að setja saman sam-
tal á framandi tungmál, taka það upp og sýna öðrum.
Þeir æfðu sig og reyndu eftir fremsta megni að vera
eins eðlileg og hægt var. Í næsta verkefni var tæknin
engin fyrirstaða og nú voru gæði innihaldsins mun
betri. Úrvinnsla verkefnisins fól í sér umræður, sam-
vinnunám og jafningjamat innan nemendahópsins.
Í þriðja verkefninu unnu nemendurnir á svipaðan
hátt, röðuðu saman því sem þeir höfðu tekið upp, sömdu
texta, þar sem þeir studdust við námsefnið sem þeir
höfðu verið að vinna, og töluðu inn á myndbandið.
Þar sem námsefnið verður notað í e@twinning
verkefni sem við vinnum með spænskunemum í
skóla í Frakklandi, voru nemendur ákveðnir í að
vinna verkefnið vel. Því voru umræður varðandi
framburð, orðaforða og orðaröð í setningu efst á
baugi, ásamt hugleiðingum varðandi hvernig það
ætti að setja saman myndband, texta og tal.
Spænskunemarnir hafa notað símana við gerð verk-
efna á vorönn 2010 og væntanlega verður tekin saman
skýrsla í lok vorannar þar sem fram koma kostir og
gallar verkefnisins og fjallað verður um afrakstur þess.
Hugmyndin að baki notkun farsíma við verk-
efnavinnu í spænsku er kannski fyrst og fremst
óbein hvatning til notkunar tungumálsins og þjálfun
munnlegrar færni. Nemendur fá tækifæri til að nýta
sér farsíma sem passar í vasann, fara út úr kennslu-
stofunni og taka upp hljóð og myndir. Lokastig verk-
efnsins er að búa til myndband í farsímanum og full-
vinna það í tölvunni. Svona verkefni má síðan setja
á veraldarvefinn og hugsanlegt er að ferðamenn geti
nálgast upplýsingar á spænsku, unnar af nemendum
skólans, í sínum farsímum um til dæmis Borgarnes,
Borgarbyggð, um skólann, svo dæmi séu tekin.
Nám á ferð og flugi eða „mobile learning“, er ný
leið í tungumálanámi, bæði tæknilega og fræðilega
séð, sem er að ryðja sér til rúms með tilkomu smart-
símanna. Framlag nemenda, námsferlið og endan-
lega útkoma er á þeirra eigin forsendum og því má
segja að verkefnið sé þeirra frá upphafi til enda.
Það er von okkar, sem skipulögðum verkefnið og
héldum utan um allt ferlið, að þessi nýja leið í tungu-
málanámi ýti undir meira nemendasjálfstæði, meira
samvinnunám og um leið einstaklingsmiðað nám.
Ida Semey er spænskukenn-
ari við Menntaskólann í
Hamrahlíð.
MÁLFRÍÐUR 1
Ida Semey
Nám á ferð og flugi