Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 8

Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 8
SKÁLDASÍÐAN HARMONIKUBLAÐIÐ Þröstur Sigtryggsson Þröstur Sigtryggsson er þekktastur sem skipherra hjá Landhelgisgæslunni. Hann hefur gert fleira um dagana en að stjórna varð- skipum í þorskastríðum, m.a. hefur hann samið mörg góð lög. Hér birtum við, með góðfúslegu leyfi hans, eitt þeirra ásamt texta. Þröstur fæddist að Núpi í Dýrafirði 7.júlí 1929 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sigtryggur Guðlaugsson prestur og skóla- stjóri og kona hans Hjaltalína Margrét Guðjónsdóttir kennari. Hann hóf sjó- mennskuferil sinn á síldveiðum með frænda sínum Valdimar Kristinssyni skip- stjóra og bónda á Núpi á Jökli frá Vest- mannaeyjum 1947. Sumarið eftir var hann á síld á Sæhrímni frá Þingeyri með Guð- mundi Júní. Hann var svo viðvaningur og háseti hjá landhelgisgæslunni frá 1949, stýrimaður 1954 og skipherra 1960. Hann lét af störfum hjá Gæslunni um haustið 1990, kenndi íslensku, ensku og dönsku við Grunnskóla Þingeyrar í tvo vetur '90-‘92 og réri á eigin trillu, Palla krata, sumrin '93 og '94. Þetta er nú nánast allur starfsferill- inn ef frá eru talin 10 sumur við arfatínslu og vökvun blóma í Skrúð og kúskur í vega- vinnu hluta úr tveim sumrum. Æviminn- ingabrot Þrastar, SPAUGSAMl SPÖRFUGL- INN kom út hjá Erni og Örlygi 1987 og hann var sæmdur Riddarakrossi hinnar ís- lensku Fálkaorðu 17,júní 1976. Þröstur eignaðist aldrei hljóðfæri í æsku, en synir móðursystur hans, Arnór og Brynjólfur Árnasynir er áttu heima á Kotnúpi stutt frá Núpi áttu harmoniku, fyrst einfalda, fljótlega tvöfalda og svo pí- anóharmoniku af stærstu gerð. Þresti var ávallt heimilt að æfa sig á þessi hljóðfæri og dró það síður en svo úr heimsóknum hans að Kotnúpi. Þar var líka móðuramma hans Rakel, er oftast lumaði á kandís í rúmhorninu og bauð gestinum mola sem enn jók á ánægju heimsóknarinnar. Leyfi til heimsóknar að Kotnúpi fengust samt ekki í hvert sinn er um var sótt. Fyrstu kynni Þrastar af lagasmíð urðu er hann tók eftir því 6-7 ára að pabbi hans var Þröstur Sigtryggson sífellt að humma einhverja tóna ef hann var ekki við orgelið. Hann var þá 73 eða 74 ára. Þresti þótti þetta humm hálf asnalegt eða óþægilegt og spurði mömmu sína hverju sætti. Séra Sigtryggur samdi mörg falleg lög. Frændfólk og vinir kostuðu ljós- prentun og útgáfu á "70 SÖNG-LÖGUM" rödduðum fyrir safnaðarsöng og harmoní- um 1947 á 85 ára afmælinu. Ellefu eða tólf ára fór Þröstur að stelast í orgelið þegar tækifæri gafst og reyndi að búa til lög. Þá varð til vals í G-dúr sem ekki hefur farið lengra. Guðmundur Vilbergsson og Óli B. fengu reyndar að heyra og spiluðu þennan vals eftir dansleik í Mjólkurstöðinni heima hjá Hlyni bróður Þrastar. Þar og þá þótti sumum valsinn nokkuð góður en öðrum alltof hávær kl.3 að nóttu og þar lauk hans för. Orðinn háseti á vs. Óðni keypti Þröstur gamla Hohner nikku sem var óspart notuð á böllum sem varðskipsmenn héldu oft úti á landi. Fengið var leyfi hjá sýslumanni eða hreppstjóra, hús leigt og strákar send- ir í hús með auglýsingu. Frítt fyrir dömur. Nikka þessi var orðin mjög lúin og gaf upp öndina eftir um 2 ár. Um fimmtugt eignað- ist Þröstur Yamaha tveggja borða orgel með áttund í fótbassa og innbyggðum "skemmtara". Orgel þetta hafði hann með sér á sjóinn bæði á Tý og Ægi. Sumir töldu aw að æfingar skipherrans á þetta hljóðfæri hefðu í för með sér vaxandi vind og versn- andi veður og var því oftast kallað Vind- harpan um borð. Næsta tilraun orgeleigandans til laga- gerðar kom svo í Orgelskóla Yamaha. Kennarinn Guðmundur Haukur gaf nem- endum sínum fyrirmæli um að koma með frumsamið lag í næsta tíma-eftir viku. Þröstur var vanur því að fyrirmælum væri hlýtt en var samt eini nemandinn er skilaði lagi á nótum í næsta tíma. Lag þetta heitir Dúra (gælunafn eiginkonunnar) og er eitt 5 laga eftir Þröst á geislaplötunni Lagasafn 7, Tyrkland, sem Stöðin ehf gaf út 1999. Kona Þrastar og aðal tónlistargagnrýn- andi er Guðrún Pálsdóttir frá Vestmanna- eyjum. Séra Sigtryggur gaf þau saman í kirkjunni á Núpi 22.maí 1954, hans síðasta prestverk. Börn þeirra eru Margrét Hrönn, Bjarnheiður Dröfn og Sigtryggur Hjalti. Barn Þrastar með Láru Árnadóttur frá Borgarfirði Eustri er Kolbrún Sigríður. Lagið sem hér fylgir var upphaflega samið við afmælisljóð vinar Þrastar Torfa Ólafssonar til vinkonu sinnar en það þótti nokkuð persónulegt og e.t.v. torskilið öðr- um. Kristján Hreinsson hljóp undir bagga. Þröstur sendir öllum lesendum blaðs- ins bestu kveðjur og nýju blaði hugheilar árnaðaróskir. Vindurínn vaknar Lag: Þröstur Sigtryggsson Texti: Kristján Hreinsson Ég sigli um hafið er sefur þú vært ég sakna þín meira en lítið, að sættast við guð minn ég sjálfsagt hef lært en samt finnst mér lífið svo skrítið. Ég hvísla í vindinn mín kveðja er hlý að kvöldi er stjörnurnar skína og svo þegar vindurinn vaknar á ný ég veit þú færð kveðjuna mfna. Er leggst ég í koju og ljósið það dvín ég læt mig í einrúmi dreyma, þá bið ég að kveðjan mín berist til þín sem bíður á ströndinni heima. Ég hvísla í vindinn mín kveðja er hlý að kveldi er stjörnurnar skína "og svo þegar vindurinn vaknar á ný ég veit þú færð kveðjuna mína."

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.