Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ LAG BLAÐSINS þétti vel og hleypi ekki lofti en verst er ef þau vindast og jafnvel rúllast upp. Ég er viss um ef þið tækjuð sundur eldri harm- oniku mynduð þið sjá dæmi um þetta.Þjóðverjar leystu vandamálið og var það í Klingenthal, sem þá taldist til Austur-Þýskalands, og bjuggu til plast- þynnur sem leystu skinnið af hólmi. ftalir aftur á móti eru nýfarnir að nota plast og enn ekki alveg komnir upp á lagið með að líma það á tónplöturnar. Þetta eru þó smámunir á við það sem hrjáði harmon- ikurnar á árunum fram eftir tuttugustu öldinni. Pietro Deiro sagði frá því að á tónleikaferðalögum varð hann að taka með sér verkfæri svo hann gæti lagað það, sem úrskeiðis fór. Krækjur festu saman dískantbelg og bassahluta og þvf var auðvelt að komast að kórunum. Þeg- ar Toralf Tollefsen kom til íslands þurfti hann strax að leita til Jóhannesar G. ]ó- hannessonar viðgerðarmanns, sem kom hljóðfærinu f lag svo tónleikaferðin gæti hafist.Nú til dags eru ítalskar harmonikur orðnar svo vandaðar að með góðri með- ferð ættu þær að duga heila mannsævi minnst. Mig hefur oft langað að eiga við þá orð sem kenna á harmoniku, því þeir hafa alveg sleppt því að kenna nemend- unum meðferð hljóðfæranna. Það þurfa allir að vita hvernig meðhöndla á þau. Taka sundur á réttan hátt skipta um skinn eða láta vindgust leika um kórana ef fjaðrir eru að festast. Högni Jónsson JÓN ÁRNI SIGFÚSSON Á þessum diski leikur Jón Árni Sigfússon í Mývatnssveit 19 huglúf lög sem flestir þekkja. Fjögur laganna eru eftir Jón sjálfan. Með honum leikur dóttursonur hans Gunnar Benediktsson á Óbó. Gunnar hefur leikið með afa sínum frá því að hann var 9 ára. Upplýsingar í síma 464 4396 Baldur Geirmundsson á ísafírði Lagahöfundur blaðsins að þessu sinni er Baldur Geirmundsson. Baldur er fæddur að Látrum í Aðalvík þann I5.október 1937. Flutti í Hnífsdal, sem nú tilheyrir ísafjarðarkaupsstað, vorið 1946 þá 9 ára gamall. Baldur byrjaði ungur að fikta við hljóðfæri og lék í fyrstu hljómsveitinni aðeins 16 ára gamall. Árið 1958 hófst svo tímabil sem kennt er við Baldur og nefn- ist B.G.-tímabilið sem stóð nær óslitið til ársins 1995. Þekktasta hljómsveitin á þessu tímabili mun án efa hafa verið B.G. og Ingibjörg. Baldur er enn að og leikur á dansleikjum og árshátíðum. Baldur! fivenœr byrjaðir [m að fást við ftarmonifiuspil? Ég var svona 11-12 ára þegar ég byrj- aði að fikta við harmoniku bróður míns, sem var þá á síldarvertíð fyrir Norður- landi. Ég fór svo að spila á dansleikjum í Hnífsdal 13-14 ára. Erfitt var að nálgast lög á þessum tíma, ekki til segulband eða plötuspilari og fór ég þess vegna í að læra nótnalestur, keypti mér norskan harmonikuskóla og fór að grúska í hon- um. Þetta kom svona smátt og smátt og fór ég þá að kaupa nótnabækur með danslögum td. hefti með lögum eftir Karl Jónatansson, Carl Billich og fleiri. Hvenær fiófst þinn filjómsveitarferill? Ég var 16 ára þegar ég byrjaði í fyrstu hljómsveitinni þá með Karli Einarssyni (harmoniku) og Bær- ing Jónssyni (tromm- ur) svo hætti Bæring og kom þá Karl Geir- mundsson bróðir minn á trommurnar, þá aðeins 15 ára. Karl spilaði með mér á gítar allt B.G.-tíma- bilið (sem byrjaði 1958) þ.e. B.G. og Gunnar Hólm, B.G. og Árni, B.G. og Ingi- björgog B.G. flokkur- inn sem hætti 1995. Mér sfdlst að fiarm- onikan hafi efái verið Baldur Geirmundsson. þitt eina hljóðfæri um dagana, er það re'tt? Já, ég lék einnig á hljómborð og saxó- fón í B.G.-böndunum og samdi nokkur lög sem eru á plötum með B.G. og Ingi- björgu, td. Baldursbrá og Hesta-Jói. Und- anfarin 6-7 ár hef ég leikið á dansleikjum og árshátíðum með söngkonunni Mar- gréti Geirsdóttur (Baldur og Margrét) Ég lék árum saman í Lúðrasveit ísafjarðar, en leik nú í jassbandi með Villa Valla og félögum. Á þessu ári samdi ég lagið „Landsmót 2002" sem notað var sem titillag Lands- móts harmonikuunnenda á ísafirði í sumar. Við birtum hér í opnu blaðsins lag Baldurs Landsmót 2002. J.J. Baldri og Villa Valla er ýmislegt til lista lagt. Auk þess að vera mjög góðir harmonikuleikarar eiga þeir ekki í neinum vandræðum með að blása í saxafón. Á trommur leikur Gunnar Hólm Sumarliðason. tm

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.