Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 14
PISTILL HARMONIKUBLAÐIÐ bands af mótinu og Vernharð jósepsson í ísafjarðarbæ, að sjá um hljóðkerfi og hljóðstjórn á mótinu. Einmuna veðurblíða varð til þess að fyrstu gestir komu allnokkrum dögum fyr- ir mótið en það voru hjónin Ingrid og Bragi Hlíðberg og má segja að þau hafi verið frumbyggjar á tjaldstæðinu. Strax á þriðjudag voru komnir allmarg- ir húsbílar og tjaldvagnar, en á fimmtu- degi má segja að látlaus straumur bíla hafi verið til bæjarins og um kvöldið mátti heyra harmoniku og söng hljóma um tjaldstæðið. Kl. 20.30 það kvöld hélt rússneski harmonikusnillingurinn Júrf Fjodorov tónleika í Hömrum sal Tónlistarskólans. Margir komu í upplýsingamiðstöð mótsins til að kaupa miða á tónleika og fá í hendur Dagskrárblað mótsins. Fyrsti dagur mótsins, föstudagur 5.júlí rann upp með einmuna veður- blfðu.Hljóðprófanir hófust kl.9.00 um morguninn. Mótið var sett á Silfurtorgi kl. 13.00. Formaður Harmonikufélags Vestfjarða Ásgeir S.Sigurðsson bauð mótsgesti vel- komna, en formaður S.Í.H.U., lóhannes jónsson, flutti ávarp og setti mótið. Ungir harmonikuunnendur úr Tónlist- arskóla ísafjarðar léku tvö lög undir stjórn Messíönu Marsellíusardóttur. Að lokum léku viðstaddir harmonikuleikarar lag Baldurs Geirmundssonar „Landsmót 2002" undir stjórn höfundar. Viðtökur 1HMM©MEU= Méíusm (BTONÁ VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNA í SÍMA 567 0046 SAMJ |DS fsu^a* m á Formaður S.Í.H.U. afhendir Ásgeiri S. Sigurðssyni formanni Harmonikufélags Vestfjarða blómvönd í lok tónleikanna á laugardag. Þakklætisvottur til hans og félaganna fyrir gott landsmót. voru slíkar að lag- ið var flutt öðru sinni. Fjölmenni var við setningar- athöfnina. Tónleikar fé- laganna hófust í íþróttahúsinu á Torfnesi kl„ 14.00. Sjö harmonikufé- lög fluttu fjöl- breytta dag- skrá.einleik, dúet- ta og hljóm- sveitarlög. Kl. 17.00 var opn- að harmonikusafn Ásgeirs S. Sig- urðssonar og hljómplötusafn Sigurjóns Hrafnabjörgum í Gamla Sjúkrahús- inu. Um kvöldið voru dansleikir í danshúsum bæjarins og á bílastæði við Landsbankann. Laugardaginn 6. júlí hófust hljóðpróf- anir kl. 9.00 en tónleikar harmoniku-fé- laganna kl. 13.30. Sjö félög fluttu fjöl- breytta dagskrá einnig komu fram gesta- spilarar, frá Ítalíu, Renzo Ruggieri og frá Skotlandi, David Nisbet. Tónleikar heiðursgesta frá Svíþjóð, Anniku Andersson, Lars Karlsson og Tomasar Andersson hófust laust eftir kl. 17.00, fluttu þau fjölbreytta dagskrá. Kl. 22.00 hófst stórdansleikur í íþróttahús- inu á Torfnesi. Þar var stiginn dans við leik hinna ýmsu hljómsveita harmoniku- félaganna til kl.3.00. Sunnudaginn 7. júlí var sama veður- blíðan eins og hina mótsdagana, ánægjulegt var að sjá hve margir gest- anna lengdu dvölina og nutu veðurblíðu og samvista við kunningja. Meðan mótið stóð yfir voru hljóðfæra- verslun Leifs Magnússonar og E.G.-tónar með kynningar á harmonikum sem þeir eru með umboð fyrir. Þegar við vorum að undirbúa mótið gerðum við ráð fyrir að allt að 800 gestir kæmu til Vestfjarða af því tilefni. Tel ég að það hafi nokkurn veginn staðist, 7-800 manns sóttu tónleika á föstudag og laug- ardag og liðlega 1000 manns lokadans- leikinn á laugardagskvöld. Varðandi umfjöllun fjölmiðla meðan mótið stóð yfir, er þetta að segja. Svæðis- útvarpið á ísafirði var lokað vegna breyt- inga á húsnæði, en fréttamaður þess Guðrún Sigurðardóttir kom a.m.k. tveim- ur fréttum að í Sjónvarpinu með allgóð- um myndskeiðum, Bæjarins Besta á ísa- firði gerði mótinu góð skil, bæði með stöðugri umfjöllun á fréttavef meðan mótið stóð yfir og myndum í næsta blaði. Eina blaðið sem sendi blaðamann á mót- ið var ICELAND REVIEW og hefur þegar birst í blaðinu vegleg frásögn með mynd- um, Morgunblaðið og D.V. sýndu þessu lítinn áhuga. Við mótshaldarar erum ánægðir hvernig til tókst. Sérstaka athygli heima- manna vakti prúð framkoma mótsgesta og snyrtileg umgengni á tjaldstæðum. í október 2002 Ásgeir S. Sigurðsson. Þessar skemmtilegu myndir fékk blaðið sendar frá Rafni Jónssyni, formanni Harmonikuunnenda Vesturlands. bær sýna alla formenn þeirra frá upphafi. EEDP

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.