Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 14
Minningar HARMONIKUBLAÐIÐ Bréf frá Hrafnistu Hér fer á eftir bréf sem blað- inu barst fyrir skemmstu frá einum af dyggustu áhangend- um sumarmóta harmonikufé- laganna á undanförnum árum. Hrafnistu Reykjavík í maí 2003 Kæru harmonikuunnendur! Ekki get ég látið frá mér penna án þess að huga að ýmsum ferðaminningum í gegnum árin. Við hjónin ég og konan mín jóna Ingibjörg, sem lést í ársbyrjun 1993, ferðuðumst mikið í gegnum árin, við átt- um yfirleitt auka bíl til ferðalaga, t.d. hús- bíla, er við vorum í Félagi húsbílaeig- enda. Einnig áttum við nokkra gamla bíla er við vorum í Fornbílaklúbbnum, sá síð- asti sem ég átti var af gerðinni Dodge Coronet-440 árg.1967, sem var síðasti einkabíll Ingólfs vinar míns á Ystafelli, en hann lést snemma á þessu ári. Þetta eru aðeins stiklur úr lífshlaupinu. Síðustu tíu ár hef ég ásamt Elísabetu systur minni eingöngu snúið mér að samkomum harmonikuunnenda víðsveg- ar um landið og það vil ég segja að öllu öðru ólöstuðu að hvergi hef ég skemmt mér betur en með þessum félögum, eða Sverrir Meyvantsson. fundið mig betur kominn til þess að njóta lífsins. Ég hef verið 9 sinnum með Félagi Harmonikuunnenda Reykjavík. um versl- unarmannahelgar, sex sinnum með Harmonikuunnendum Vesturlands í Þverárhíð og Fannahlíð og síðast en ekki síst með Eyfirðingum og Þingeyingum að Breiðumýri í Reykjadal 8 sinnum, einnig með Selfyssingum og nágrönnum að Minni-Borg í Grímsnesi og Básnum í Ölf- usi, að ógleymdum rútuferðum frá Reykjavík í Hornafjörð á slóðir Nikkólínu fyrir vestan, í Skagafjörð og víðar. Ekki má gleyma landsmótunum, á Siglufirði 1999, og svo á ísafirði árið 2002 sem eru mér ógleymanleg. Ég mun halda áfram að vera með ykkur öllum meðan ég get þrátt fyrir litla orku og háan aldur nærri 84ra ára. Ég læt hér fylgja fyrripart og botn sem varð til á Breiðumýri 25. júlí 1998. f.p. Harmonikunnar töfra tónar, tengja saman tryggðabönd. botn Nú fást ei lengur trekktir fónar, sem fluttir voru víða um lönd. Og vísu sem varð til á Breiðumýri í júlí 2000. Oft er þörf fyrir loft og þel, Þingeyingum til handa. Eyfirðinga með þeim ég vel, því engu vil ég granda. Ég þakka öllum harmonikuunnendum, mér veitta gleði á umliðnum 10 árum. Sverrir Meyvantsson Harmonikuunnendur Hin árlega Breiðamýrarhátíð H.F.Þ. og F.H.U.E. veröur aö Breiöamýri 25.-27. júlí 2003. Fyrirkomulag hátíðarinnar verður með svipuðu sniði og áður. Hátíðin hefst á föstudagskvöld með einhverjum uppákomum og dansleik. Að öllu óbreyttu munu gestir frá Noregi og Kanada koma fram á tónleikum eftir hádegi á laugardag. Um kvöldið verður grillað og síðan dansaö frá kl. 22 til 03. Miðaverði verður stillt mjög í hóf. Við vonumst til oð sjá sem flesta spilora og oðra sem áhugo hafa á harmonikutónlist. f.h. stjórna félaganna, Aðalsteinn ísfjörð Jóhann Sigurðsson am

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.