Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 11

Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 11
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleikur suma, bæði sjóveiki og dulbúin sjó- hræðsla.sem fer ekki vel saman. Sfðan var snúið við og haldið til hafn- ar á ný og lagaðist þá bæði sjóveikin og sjóhræðslan, en í leiðinni komið við í Kiettshelli, sem er stór sjávarhellir í Ysta- kletti og er þar frábær hljómburður. Þar var leikið á harmoniku og klarinett og notið hljómburðarins í þessari náttúru- gerðu tónleikahöll um stund og var síðan siglt til hafnar. Klukkan eitt átti að mæta í skoðunar- ferð með rútunni góðu um Eyjuna. Skoð- aðir voru allir merkisstaðir eins og Stór- höfði ,sem skartaði sínu fegursta í sólinni og logninu og vissi ekki hvaðan stóð á sig veðrið. Lystigarðurinn í hrauninu var líka skoðaður og einnig stafkirkjan á Skansin- um. Þar var óvænt uppákoma ,sem var þó ekki uppákoma, en þegar stafkirkjan hafði verið skoðuð, komu tveir jólasveinar ak- andi á litlum pallbíll og var pallurinn full- ur af ískældum bjór. Þegar jólasveinarnir sáu harmonikuliðið heimtuðu þeir harm- onikuspil og voru tekin nokkur hress eyjalög og urðu allir að þiggja bjór og sleikibrjóstsykur að launum .Þetta var vel þegið í veðurblíðunni. Síðan var haldið í Hraunbúðir, sem er dvalarheimili eldri borgara og spilaði Léttsveitin þar nokkur lög fyrir gamla fólkið. Þaðan var haldið á gististaðina og farið að gera sig klára fyrir kvöldveisluna sem átti að vera í Höllinni. Hún hófst kl. sjö og var hreint frábær, flottur matur og frábær þjónusta. Okkur til ánægju mætti formaður harmonikufélags Vestmanna- eyja ásamt nokkrum félögum og tóku þátt í borðhaldinu með okkur. Kl. tíu hófst dansleikur á vegum félagsins, sem var frábær, nema að alltof fáir eyjaskeggj- ar mættu. Það skipti okkur svo sem engu máli, við vorum í skemmtiferð, en óneit- anlega hefði verið meira gaman ef fleiri hefðu mætt á ballið. Sunnudagur rann upp og var fólki frjálst að skoða sig um og fóru margir á Náttúrugripasafn Vestmannaeyja og höfðu mjög gaman af, en aðrir tóku það rólega. Klukkan fjögur var haldið til Þorlákshafnar með Herjólfi og var nú sléttur sjór og enginn sjóveikur. Síðan þegar komið var til Þorlákshafnar kvödd- ust félagar og þölckuðu hver öðrum fyrir frábæra og ógleymanlega ferð og héldu hver til síns heima. J.B.H. Pistill frá Húnvetningum Frá okkur Húnvetningum er allt gott að frétta. Þetta ár hefur verið svipað um- fangs og næstliðin ár. Hauststarf hófst með jólahlaðborði undir lok nóvember og var vel sótt, enda matur góður hjá Veisluþjónustunni. Hið árlega hagyrðingakvöld var síð- asta vetrardag, en svo hefur verið undan- farin ár og húsfyllir, enda fjúka ærið oft skondnar vísur manna á milli. Við skruppum til Hólmavíkur 31. maí og spil- uðum í gamla bragganum sem nýlega er búið að gera upp og er gott að spila þar, hljómburður góður. Húnavershátíð var haldin um |óns- messuna í fimmta skiftið, og fer fólkinu fjölgandi með hverju árinu sem líður. Þessi hátíð er af mörgum talin hafa tekist afskaplega vel enda til hennar vandað sem kostur var. Matthías Kormáksson mætti ásamt vinum sínum og kom öllum í gott skap með snilldar spilamennsku og ljúfri framkomu. Síðan í lok dagskrár kom hann aftur á svið og þá með vini sína með sér og léku þau og sungu í lokin við mikla hrifningu. Jón Þorsteinn Reynisson ungur snill- ingur úr Skagafirði kom sá og sigraði með leik sínum og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Einar Guðmundsson er árviss með harmonikusýningu en hann gerir líka fleira fyrir okkur, nú kom hann með Ingu Eydal með sér, en þau tóku syrpu á ball- inu á laugardagskvöldinu, og gerðu mikla lukku. Á laugardeginum töluðum við um það við Einar, hvort hann ætti ekki eitthvað í pokahorninu. Það þurfti ekki annað en nefna það, hann sótti Gretti Björnsson og Braga Hlíðberg og á svið fóru þeir félagar Bragi og Grettir með hnappanikkur og Einar með píanónikku og var ekki að heyra að þetta væri neitt óvenjulegt þetta kom bara sí svona. Stefán R. Gíslason harmonikukennari úr Varmahlíð kom með sveit nemenda sinna og er þar gott lið á ferð og ánægju- legt að sjá svo marga efni- lega nemendur á ferð. Jón Gíslason og hljóm- sveit létu gamminn geysa, EEflP Hinn efnilegi harmonikuleikari úr Skagafirði, )ón Þorsteinn Reynisson. Matthías Kormáksson harmonikuleikari ásamt vinum sínum Einari Rafni Þórhallsyni, sem lék á didgeridoo, sem er ástralskt frum- byggjahljóðfæri, og Sunna Jóhannesdóttir sem söng með þeim félögum. enda samvalið lið á ferð, einnig léku þeir saman Jón Gíslason og Alli ísfjörð og ættu allir að geta ímyndað sér allt það tónaflóð sem þeir létu frá sér fara. Nú fer að líða að haustfundi þegar þetta er ritað og haust og vetrarstarf fé- laganna að hefjast að fullum krafti. Við hjá H.U.H. þökkum allar ánægju- legar samverustundir á þessu ári og von- um að allt gangi með sem glæstum brag í framtíðinni hjá öllum okkar félögum um allt land. Með harmonikukveðju frá Blönduósi. Þórir Jóhannsson ritari F.v. Bragi Hlíðberg, Einar Guðmundsson og Grettir Björnsson.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.