Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ Lagahöfundur Lag bladsins Að lokum langar mig að óska Félagi Harmonikuunnenda Skagafirði til ham- ingju með Landsmót ungra harmoniku- leikara sem þeir héldu í Félagsheimilinu Árgarði Skagafirði 22. maí síðastliðinn. Þó svo undirritaður hafi ekki verið á staðnum þá hafa fregnir borist um að vel hafi til tekist og þeir sem mættu hafi ver- ið mjög ánægðir með hvernig til tókst. Eiga Skagfirðingar heiður skilið fyrir að þeir skildu halda sínu striki þó svo þátt- takan væri langt frá því að vera ásættan- leg miðað við þær undirtektir sem þessi hugmynd fékk í upphafi þegar ákveðið var að hrinda þessu í framkvæmd. Nú er vonandi að áframhald verði á þessu því nauðsynlegt er að styðja vel við bakið á því unga fólki sem vill leggja harmonikuleik fyrir sig og við verðum einnig að vera dugleg að láta heyra frá okkur og því ágæta starfi sem fer fram í harmonikufélögum vítt og breytt um landið. Kveðja frá Neskaupstað, Egill Jónsson. Svanhildur Leósdóttir. 'Jóœiím.aifLÍl&uÍLátLó (Jt^i^ltlcLaLlLULi^ 2004 helgina 17.-18. júlí Snillingurinn Svanhildur Sumarrós Leós- dóttir (Rósa) er fædd á Akureyri 4. ágúst 1940 en ólst upp á Mýr- arlóni, sem var sveitabær er til- heyrði Akureyri. Hún býr nú í Ytra-Krossanesi þar sem Karl lónatansson bjó fyrrum. Svanhildur byrj- aði mjög ung að syngja og leika á gítar, kom fyrst fram 10 ára og hefur stundað það síðan, ásamt því að syngja í kvenna- og kirkjukórum. Hún hefur í áratugi komið fram með hljómsveit sinni er nefnist „Tríó Svanhild- ar" en þar er eiginmaður hennar Kristján H. Þórðarson harmonikuleikari og sonur þeirra Brynjar trommuleikari, hann hefur spilað með þeim frá 12 ára aldri .fæddur 1975. Svanhildur hefur fengist mikið við texta og lagagerð og hefur gefið út einn hljómdisk, er nefnist „Perlur mynning- anna". Einnig hefur hún tekið þátt í hag- yrðingamótum bæði í Ríkisútvarpinu og víðar. Það hefur m.a. birtst efni eftir hana í II bindi bókarinnar „Kvæði og stökur", sem er eyfirskur fróðleikur og gam- I Igor Zavadsky r ' frá Ukraínu snýr aftur flöfum fyrirliggjandi hinar frábœru Golden Cup harmonikur af ým$um sfaerðum og gerðum á ómótsfcEðilegum verðum. Cinnig bjóðum við hinar vönduðu ftölsku fantini harmonikur. Ofangreindar harmonikur fást með KJ Model breytingu (A-A breytingu á nótnaborði). Harmonikumiðstöðin s. 5 5 3 4 0 7 6 - jonatank@ist.is www.thing.is/accordionfestival anmál. Hún hefur verið dugleg við að semja og flytja gamanvísur um félaga sína í Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð en hún er einn af stofnendum þess og starfar sem gítarleikari með hljómsveit F.H.U.E. „Dansinn laðar og lokkar" var framlag Svanhildar í laga- keppni FHUE í tilefni af 20 ára afmæli fé- lagsins og varð það þar í öðru sæti. Lag- ið var flutt á landsmótinu á ísafirði árið 2002 af hljómsveit FHUE í útsetningu Björns Leifssonar. Dansinn laðar og lokkar Ljóö: Svanhildur S. Leósdóttir Hér er vín - glens og grín geisla yndisþokkar Baugaltn - með fötin fín og fólk, sem ákaft rokkar. Þtí ert mín - sólarsýn, senn er dansinn okkar, laðar hann og lokkar, léttir geð og eyðir pín. V/ð gðlfin hdl - töf er tál, taktinn finnum taman. Ekkert prjál - þýð og þjál þegar laus við amann. Hjartans mál - heillar sál, hendur tengjast saman nú er gleði og gaman glceðist ástarinnar bál. Þig ég sá - seiðir þrá söngsins tðnaróma, þú ert mér hjá - hýr á brá, hlýr með ilminn blóma. Ein þig á - ei fer þér frá, fögru augun Ijðma, við harmonikuhljóma heldur fjörið áfram þá. Tríó Svanhildar ásamt Hannesi Arasyni á bassa. Myndin er tekin fyrir nokkrum árum. ELfk"

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.