Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 11

Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 11
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleikur F.v. Helga Jónsdóttir söngur, Gestur Friðjónsson harmonika, Snorri Hjartarson trommur og Ole H. Östergaard, gítar. Danshljómsveit á Akranesi um og eftir 1950 unarferðum, fararstjóra okkar til fullting- is. Á kvöldin var stundum spilað í „Lobbí- inu" á hótelinu. Síðasta kvöldið, 13. júlí, var svo matarveisla í sérstökum sal á hót- elinu fyrir okkur. Þá var þeim jónsvein og ísak ásamt eiginkonum þeirra boðið. Nokkuð var til skemmtunar og Færeyjafé- laginu færðar þakkir fyrir frábærar mót- tökur. Að endingu var stiginn dans. Losa þurfti hótelherbergi ki. 10.00 á miðvikudagsmorgni, og var því farið í rút- unni niður í bæinn. Fólkið gat svo skoðað sig um en rútan fór á stæði við ferjustað- inn. Um kl. 17.00 var lagt upp heim til fs- lands, þá hafði verið smávegis súld rétt áður, en allan tímann í eyjunum var mjög gott veður. Þá var einnig spilað um þorð á heimleiðinni, en nú ruggaði ferjan nokkuð. Ræst var um kl.7.00 til að losa klefana. Komið var til Seyðisfjarðar í ágætis veðri. Strax var svo lagt upp til heimferð- ar eftir að komið var í land. Stansað var á Egilsstöðum og þar voru Egill fararstjóri og kona hans Sigurlaug Sveinsdóttir, kvödd og þökkuð frábær viðkynning og fararstjórn. Á heimleiðinni var komið við í „Bláa lóni" þeirra Mývetninga og það skoðað. Komið var til Akureyrar um Síðasta kvöldið á Hótel Færeyjum. ísak N Jacobsen og kona hans, Edna í kvöldverðar- boði FHUE. kl. 16.00 þann 15. júlí, þar endaði ferðin þar sem hún byrjaði, á bflastæðinu hjá „Kaupangi". Þar kvöddust félagarnir, og ég held ég megi fullyrða að allir hafi ver- ið mjög ánægðir í ferðalok. Þá vil ég að endingu þakka fyrir hönd FHUE, stuðning „Fitur" og Akureyrarbæjar við þessa ferð okkar, sem farin var bæði til menningar og skemmtunar. Með bestu kveðju til samferðafólksins. Sigurður indriðason Á þessum tíma starfaði lítil danshljóm- sveit á Akranesi og nágrenni sem kallaði sig „Fjarkann". Frumkvöðull að þessu starfi var danskur maður að nafni Ole H. Östergaard, gítarleikari og mikill áhuga- maður um dansmúsik. Fékk hann til liðs við sig ýmsa hljóðfæraleikara ,sem þarna voru til staðar ,og þar á meðal undirritað- an sem starfaði með honum og fleirum í nokkur ár. Yfirleitt vorum við fjögur sam- an, en þó kom fyrir að sá fimmti bættist í hópinn. Þessi fjögur voru: Ole H Öster- gaard gítar, Helga Jónsdóttjr, kona hans, söngur, Snorri Hjartarson trommur og Gestur Friðjónsson harmonika. Ríkharð- ur Jóhannsson var annað slagið og lék á altosax og klarinet. Óskar Indriðason var líka stöku sinnum og lék á harmoniku. Það var óhapp sem olli því að Ole kom hingað til lands, en hann lenti í slysi um borð í skipi sem hann var á og þurfti að dvelja um hríð á sjúkrahúsi, en dvöl hans varð lengri en því nam og dvaldi hann hér á landi til æviloka, en hann er látinn fyrir allmörgum árum. Ole gekk í Iðnskóla Akraness og lauk síðan námi í vélvirkjun hjá Vélsmiðju Þorgeirs og Ellerts á Akra- nesi. Hann varvel látinn af starfsfélögum sínum en hafði alla tíð sínar sérstöku skoðanir á málunum. Ole var snjall gítar- isti og einn örfárra á þeim tíma sem lék á „Havai"-gítar. Mun vera til upptaka af leik hans á það hljóðfæri er hann lék undir fyrir sönghópinn „Öskubuskur" einhvern- tíma á þessu árabili. Myndin sem fylgir þessum orðum er tekin á þessum árum og er af þeim fjórum sem oftast unnu saman eins og fyrr er getið. Gestur Friðjónsson, fv. form. F.H.U.S. VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUMAÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUDNAÍSÍMA 567 0046 ŒBf

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.