Harmonikublaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 4
Fróðleikur HARMONIKUBLAÐIÐ Af Oddnýju Björgvinsdóttur Tvær kynslóðir leika saman. |ón á Syðri-Á og Oddný. Ánægjan skín úr augum beggja. Fyrir tveimur árum birtist í blaðinu frásögn Oddnýjar Björgvinsdóttur frá Akranesi „Harmonikustelpan" þar sem hún segir frá námi sínu við Tónlistarháskólann í Osló og tildrögum þess að hún lét þann draum sinn rætast. Hér birtum við grein eftir Svenn Engelund þar sem hann segir frá próf- tónleikum Oddnýjar Björgvinsdóttur sumarið 2004. Oddný Björgvinsdóttir (20) hélt próf- tónleika í norska Tónlistarháskólanum síðastliðiö sumar, eftir tveggja ára nám. Nemandinn var vel undirbúinn, spil- aði iétt og leikand, ásamt Karen Flesvig á selló, Andreas Björkás og Erlend Viken á fiðlur. Oddný byrjaði á að leika fyrstu þættina úr Svein Hundsnes, Nocturne og Dansefantasi. Þetta verk, sem samið var eftir pöntun af Olav Ullestad íVoss, er alls fimm þættir. Því næst komu Sónata í e-moll eftir Domenico Scarlatti (1685-1757) og Preiúdía og fúga í f-moll úr „Das Wohltemperierte Klavier II" eftir johan Sebastian Bach (1685-1750). Vekið „Kalina Krasnaya" eftir Vlatislav Semjonov (1946-) var skrifað undir áhrif- um af dauða kvikmyndaleikstjórans Vasili Sjusjins og í því er unnið með þekkt lag úr frægustu kvikmynd hans „Kalin krasn- ay". Semionov hefur svo samið sitt eigið þema sem síðan myndar kontrapunkt við kvikmyndatónlistina. Þar næst kom „Miniatyrer frá Lapp- landi. 1. Vinternatt 2. Aktisk morgen og 3. Várbekk", eftirVeiko Huuskonen. Veiko Huuskonen er finnskur og hefur samið fleiri verk fyrir harmoniku, m.a. konsert fyrir harmoniku og hljómsveit. Að lokum flutti hún „introduktion und allegro" eftir Matyas Seiber (1905-'60). Seiber kenndi við harmonikutónlistar- skóla í London og skrifaði þess vegna töluvert af tónlist fyrir harmoniku. Fædd á íslandi Oddný Björgvinsdóttir er fædd á Akranesi þar sem hún byrjaði að spila á harmoniku 9 ára gömul, en hún hafði strax 6 ára ákveðið að læra á harmoniku. Hún spilaði á blokkflautu fyrstu árin, þar sem enginn harmoniku- kennari var á staðn- um. Síðar kom kenn- ari sem kenndi á harmoniku og hann vakti áhuga hjá fleir- um, og að lokum var orðin til harmoniku- hljómsveit með 20 meðlimum. Á þess- um tíma spilaði Oddný á venjulega píanónikku. Síðar skifti hún yfir í hnappanikku með norskum gripum og rússneskum böss- um. Hún hitti )on Faukstad á Master Class námskeiði í Reykjavík og líkaði vel við kennslu hans. Hún sótti því um að komast að í Tónlistarháskólanum í Osló árið 2002. Enn sem komið er kostar hún nám sitt sjálf með töku námslána frá ís- landi. Hún hefur enn ekki ákveðið til hvers hún muni nota nám sitt, en hún vill spila eins mikið og hægt er og kannski kenna líka einhvern tíma. Hún hefurgóðan tíma til umhugsunar því enn eru tvö ár eftir af náminu. Greinin er lauslega þýdd úr „Trekk- spillnytt" og birt með góðfúslegu leyfi höfundar. J.j. Nú er Oddný á þriðja ári í Norges Musikkhogsskole að læra klassískan harmonikuleik með )on Faukstad sem aðalkennara. Mér leikur forvitni á að vita hvernig henni sækist námið og ákveð þess vegna að spyrja hana um lífið, tilveruna og tónlistina í útlandinu. - Hvemig hefur þér líkað námið? „Mér finnst alveg sérstaklega gaman að koma út í skóla þar sem bara tónlist og fög tengd tónlistinni eru kennd og geta bara einbeitt mér að þvf. En frá því að ég byrjaði og þangað til núna hefur fækkað mjög mikið í deild- inni, sem er ekki alveg nógu gott og nú sem komið er, er ég sú eina sem er að læra klassískan harmonikuleik í skólan- um en það voru mun fleiri þegar ég byrj- aði. En ég er alls ekki eini harmoniku- nemandinn í skólanum því að þjóð- lagatónlistardeildin er mjög vinsæl og það eru miklu fleiri sem sækja um í þá deild en í klassísku deildina. Hér er nefn- inlega mikill áhugi á þjóðlagatónlist og löng hefð fyrir henni. En vonandi er þetta fámenni í klassísku deildinni bara tíma- bundið." mr

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.