Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 12

Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 12
Fróðleiksspjall HARMONIKUBLAÐIÐ „Höski, .... ball á Spjall félaga Harmonikuunn- enda Norðfirði við Höskuld Stefánsson, hljómlistarmann og fv. kaupmann. Norðfirðingar eiga sér langa tónlistar- fiefð og hér er sittfivað rifjað upp frá þeim tíma sem fialla má endurreisnartúnabil tónlistarinnar, er fyrsta láðrasveitin var stofnuð og dansfilfómsveitir tóku við af nikkunni. Höskuldur Stefánsson, átti ný- lega 75 ára afmæli. Þetta viðtal er í tilefni afmælis ftans og væntanlegs Landsmóts Sambands íslenskra Harmonikuunnenda sem ítaldið verður í Neskaupstað t jtílt n.k. Þetta samtal fór fram í pásu milli æfinga ftjá Félagi fiarmonikuunnenda í Norðfirði, ftjrir skömmu á Egilsstöðum. Höskuldur Stefánsson er fæddttr t Nes- kaupstað 21 .maf. 1930. Hann er búsettur á Egilsstöðum, en bjó lengst afíNeskaup- stað og var j)ar mikilvirkur t tónlistarlífinu á árutn áður. Hann var verslunarmaður um árabil. Hann var, auít þess að spila t ýmsum dansíiljómsveitum, organisti við Norðfjarðarkirkju um árabil og er vt'ða þekktur ftjrir tónlistarfiæfileika st'na. Kona ftans er Halla Valgerður Stefánsdóttir og börnin eru fimm öll uppkomin. Sonttr Höskuldar, Stefán Ragnar, fiefur getið sér gott orð sem flautuleíkari og leikur nú við Metropolitan Operuna í Neu’ York. Við komum inn í samtalið, í æfingar- pásu, þar sem Höskuldur var hvattur til að koma í heimsókn á Norðfjörð með nikkuna með sér. „Já það væri gaman, annars er næsta verkefni hjá mér að fara að spila fyrir gamla fólkið hér á Egilsstöðum". „Það er nú ekki vandi að lána þér harmoniku maður, ef þú kemur niðureftir", segir einn af félögunum. „Tja... maður kann nú best við sína nikku. Annars er ég búinn að eiga mörg hljóðfæri um dagana. Ég var að eignast gamla píanóið mitt aftur. Það er búið að vera í þrjátíu ár á Norðfirði og nú keypti ég það aftur, haldið’i að það sé nú!" Á nú að fara að hljóðrita eitthvað? „Höskuldur", segir Egill lónsson stjórn- andi. „Segðu þeim nú frá því þegar þú varst að byrja á þessu". Og það er strax spurt; „Hvernig voru fyrstu árin Höskuld- ur, þegar þið voruð að byrja með harm- onikur og svona spilerí? Hvar lærðir þú á harmoniku?" „Ég veit ekki hvað ég á að segja um það", segir Höskuld- ur íbygginn, bætir svo við: „Hva af hver- ju eruð þið að þessu, á að fara að hljóðrita eitthvað? Ha?" Bætir síðan við: „Nei ég man nú ekki, eða átta mig ekki á því, en það var bara svona, ég eignaðist nikku bara si svona þegar ég fermdist. |á þá fór ég bara að spila, pabbi gaf mér nikku, og það var bara eins og það var. Það var ítölsk nikka, hún var ósköp létt og fín, svo fór maður bara í útvarpið og valdi eitt tvö lög, og EEG®' „Fjórtán ára landformaður og nikkari." eftir!." lærði þau utan að. Þá náði maður erlend- um stöðvum, það var helst Radio Lux- emburg, en það var eina stöðin sem náð- ist vel. Svo var bara farið af stað og spil- að. Ætli ég hafi ekki verið fimmtán ára þegar ég fór að spila á böllum". Og hann bætir við: „Ég byrjaði fyrst að spila, með Magga, hann var bróðir hans Halla (Haraldar Guðmundssonar) sem átti eftir að koma mjög við sögu á árun- um eftir 1954, hann var málari og kallað- ur Maggi málari, hann spilaði á mandólín eða eitthvað svoleiðis. Svavar Ben kom líka annað slagið og svona var maður, strákurinn, innan um þessa kalla. Ég man eftir einum góðum; Gvendi fimmfalda. Maður byrjaði sem barn að hlusta á hann spila og settist bara fyrir utan húsið hjá honum. Hann hét Guðmundur Guð- mundsson og var frá Hornafirði. Hann var geysilega flínkur og allt flott sem hann gerði. Hann var kallaður Gvendur fimm- faldi því hann lék á fimmfalda nikku. Það var sko fimmföld hnappanikka. Þegar ég fékk nikkuna fór ég bara að æfa mig, tók upp lögin úr radíóinu, en það var ekki svo mikið hægt að gera í þá daga. Svo spilaði maður í Gúttó. Síðar komu rekstrasjónir og voru í Grænuborg. Það var á sunnu- dögum milli fjögur og sex." Það versta var að bera nikkuna... „Svo fór ég auðvitað suður, og var þar fyrst part úr vetri, eða einn vetur. Kynnt- ist þar Guðna Guðnasyni, sem útvegaði mér spilamennsku. Við vorum í spila- mennsku á Akranesi og víðar. í Vest- mannaeyjum þegar ég var f námi þar, og lærði fyrir Landsprófið, þar spilaði ég talsvert. Ég man að Vestmannaeyingarnir sögðu alltaf spela, um að spila, voðalegt að heyra það. „Spelaðu, spelaðu"! |á, svona var það". En svo varstu í Samvinnuskólanum í Reykjavík? Nú voru menn komnir í hörku samræður. „Iá ég spilaði þar á böllum. Á þeim tfma kynntist ég Eyþóri Þorlákssyni. Hann var geysiflínkur og ég lærði mikið af honum. Hann spilaði í öllum tóntegund- um og ýmsa skala. Gasalega fær. Ef þú kynnist einhverjum góðum manni, þegar

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.