Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ Afmæli Harmonikufélag Rangæinga 20 ára Það er með harmonikufélög eins og mannfólkið að þau eiga afmæli. Oftast halda fé- lögin upp á þau tímamót þeg- ar afmælið hljóðar upp á heil- an eða hálfan tug. Fjögur félög stóðu í þeim sporum á árinu. Eitt þessara félaga er Harmon- ikufélag Rangæinga. Að kvöldi laugardagsins 24. septem- ber bauð félagið fjölda manns til sam- kvæmis að Árhúsum Hellu í tiefni að 20 ára afmæli þess fyrr á árinu. í hópi gesta voru formenn og fulltrúar flestra harmon- ikufélaga landsins, sem þá um daginn höfðu setið aðalfund SÍHU á staðnum. Að sjálfsögðu var mökum þeirra líka þoð- ið í samkvæmið en þeir höfðu einnig not- ið leiðsagnar heimamanna um nágrennið og fræðst um margt merkilegt meðan fundarmenn sátu á rökstólum. Þegar gestir höfðu komið sér fyrir á veislu- staðnum setti ióhann Bjarnason, for- maður félagsins samkomuna og bauð gesti velkomna og síðan var snædd dýr- indis máltíð. Þegar leið á borðhaldið stigu gestir í pontu og færðu gjafir. Harm- onikufélag Rangæinga hefur verið virkt innan SÍHU og hefur verið í góðum tengslum við harmonikufélög víða um land, þetta kom glöggt fram í þessu af- mælishófi því margar ræður voru haldnar og félaginu færðar margar góðar gjafir og fluttar árnaðaróskir. Það var ekki laust við að lóhanni for- manni þætti þetra ef kvenfólkið afhenti gjafirnar einhverra hluta vegna og virtust sem margir öfunduðu hann vegna stöðu hans þetta kvöld. Veislustjóri var séra Sigurður Jónsson í Odda, sem stjórnaði samkomunni af mikilli fagmennsku og kryddaði bæði með bundnu og óbundnu máli, en það var í takt við það sem fram var borið þetta kvöld, því margir kvöddu sér hljóðs í tilefni þessara tímamóta. Þessu skemmtilega kvöldi lauk síðan með fjörugum dansleik sem stóð fram á nótt. Meðal þess efnis sem flutt var þetta kvöld var samantekt Sigrúnar Bjarnadótt- ur f.v. formanns úr 20 ára sögu félagsins, sem birt er hér. ).). í kvöld fögnum við 20 ára afmæli Harmonikufélags Rangæinga og skyggn- umst til baka aftur í tímann. Valdimar). Auðunsson bóndi, harmonikuleikari og lagasmiður var mikill áhugamaður um harmonikutónlist. Hann unni hljóðfær- inu mjög og átti auðvelt með að hrífa aðra með sér á vængjum tónanna. Hon- um verður eflaust best lýst að hann hafi spilað með sálinni. Þann 11. des- ember 1984 í sjö- tugsafmæli Valdi- mars vargrunnur- inn að félaginu lagður. Þar skrif- aði hópur fólks sig á blað sem verðandi stofnfé- lagar. Næsta skref var svo undirbún- ingsfundur í Gunnarshólma. Formlegur stofnfundur var svo haldinn í Gunnarshólma 14. aprfl 1985. Stofnfé- lagar voru þá orðnir 80. Félagið hlaut nafnið Félag harmonikuunnenda í Rang- árvallasýslu. Valdimar ). Auðunsson var kjörinn fyrsti formaður félagsins. Auk hans í stjórn voru kosin Sigrún Bjarna- dóttir ritari, Grétar Geirsson gjaldkeri, Gunnar Guðjónsson og Guðmar Ragnars- son. Fyrstu árin sem félagið starfaði var starfsemin aðallega fólgin í dansleikja- haldi og æfingum fyrir slíkar uppá- komur. Reglu- bundnar samæf- ingar hafa svo verið hjá félaginu síðan haustið 1988. Hefur Grét- ar Geirsson verið stjórnandi okkar allan tímann. Færum við hon- um bestu þakkir fyrir. Á aðalfundi fé- lagsins 1988 var nafni félagsins breytt og heitir það síðan Harmonikufé- iag Rangæinga. Skemmtinefndir hafa ver- ið starfandi síðan 1988. Merkið okkar leit einnig dagsins Ijós 1988. Það er teiknað af Knúti Scheving á Hellu. Þegar merkið lá fyrir voru prentað- ir fánar félagsins. Landsmótið að Laugalandi í Eyjafirði 1987 var fyrsta Landsmót sem við tókum þátt í og spiluðu þá Valdimar Auðunsson og Grétar Geirsson fyrir félagsins hönd. Sfðan höfum við tekið þátt í þeim Lands- mótum sem haldin hafa verið. Árið 1996 kom í okkar hlut að halda Landsmót að Laugalandi í Holtum. Var það mikið ævintýri að halda slíkt mót eins og ég geri ráð fyrir að allir finni sem standa í þeim sporum .Eru Landsmótin einstök upplifun þeim er þar eru að minnsta kosti ef þeir upplifa harmonik- una eins og ég geri. Cunnar jónsso, Grétar Geirsson og Bragi Gunnarsson. Eflt Jóhann og Sigurður veislustjóri.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.