Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 9

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 9
HARMONIKUBLAÐIÐ Lagahöfundurinn Lag blaðsins Guttormur Sigfússon er mikill unnandi harmonikutónlistar, Ieikur sjálfur með ágætum á hljóðfærið og hefur samið mörg Iög sem sum hver eru vel þekkt amk. meðal harmoniku- unnenda. í tilefni þess að eitt laga hans birtist hér í Harmon- ikublaðinu þá var tekið hús á Guttormi og hann beðinn að segja aðeins frá sjálfum sér. Ætt og uppruni: „Ég er fæddur á Krossi í Fellahreppi 17. apríl 1938. Foreldrarmínirvoru Sigfús Guttormsson og Sólrún Eríksdóttir bændur á Krossi frá 1931. Ég er einn af níu systkinum sem öll eru á lífi. Ég ólst upp á Krossi og var þar mfn æskuár. Fað- ir minn fórst í flugslysi 1951 og næstu árin var ég ásamt Baldri og Páli bræðrum mínum fyrir búinu ásamt móður okkar. Árið 1965 tek ég við búinu á Krossi en það ár kvæntist ég konu minni Sigríði Sigfúsdóttur frá Staffelli í Fellum. Við eig- um fjögur uppkomin börn. Á Krossi búum við síðan til ársins 1993 en þá taka við búinu Einar sonur okkar ásamt konu sinni Hörpu Rós Björgvinsdóttur." Áhugamál í æsku: . „Snemma kviknaði áhugi minn á tón- list þó búskapurinn væri í fyrirrúmi. Á heimilinu var orgel sem faðir minn átti og spilaði hann ýmist eftir eyranu eða nót- um. Einnig var föðuramma mín á heimil- inu, hún var músíkölsk og spilaði á tvö- falda harmoniku þegar hún var ung. Þetta hafði áhrif á ungan dreng. Þess má geta að Björgvin Guðmundsson tónskáld minntist í æviminningum sínum á unga stúlku sem spilaði á tvöfalda harmoniku og það var einmitt amma mín, Oddbjörg Sigfúsdóttir, þá á Hauksstöðum í Vopna- firð." Tónlist á heimilinu: „Á Krossi var einnig eldri bróðir minn Páll, sem spilaði á orgelið og harmoniku sem hann keypti 1951 og segja má að harmonikan hafi heillað mig frá fyrstu tíð. Ég hlustaði á harmonikutónlist í útvarp- inu og hreifst mjög af ýmsum góðum Guttormur Sigfússon. harmonikuleikurum og þá sérstaklega Toralf Tollefsen, sem heillaði marga á þessum tíma og stækkaði hlustendahóp- inn þegar hann fór tónleikaferð um landið." Fyrstu skrefin í tónlistinni: „Fyrst spilaði ég á harmoniku Páls bróður míns sem leiðbeindi mér fyrstu skrefin. Fyrstu harmonikuna eignaðist ég 1956, þriggja kóra Serenelli. Ég var í Eiða- skóla 1954-1957 og þann tíma spilaði ég á flestum böllum skólans ásamt fleirum og má þar nefna Eyþór Stefánsson lækni frá Flögu í Skriðdal. Segja má að síðan hafi harmonikan verið þanin meira og minna jafnt heima, á böllum sem og víð ýmis önnur tækifæri. Þar fyrir utan þá lék ég einnig á trommur með Páli bróður mínum en við spiluðum saman í nokkur ár, fram til um 1960 eða fram undir „Bítla- tímann." Segja má að næstu tuttugu árin hafi lítið verið spilað á harmoniku eða allt til 1984 þegar Harmoníkufélag Héraðsbúa var stofnað." Frá þeim tíma hefur Guttormur verið iðinn við framgang félagsins ásamt spila- mennsku og að semja lög. - Hvað varð til þess að þú fórst að semja lög? „Segja má að danslagakeppni SKT hafi orðið til þess að ég fór að semja lög en það var þó ekki fyrr en á áttunda áratugn- um sem fyrstu lögin urðu til og má þar nefna lagið Minningu með texta Helga Seljan, sem var á snældunni „Draumsýn," sem HFH gaf út á 10 ára afmælinu." Guttormur áætlar að hann hafi gert allt að 20 lög og telur hann að lögin beri keim af skapi höfundar hverju sinni. - Hvað getur þú sagt mér um lagið „Léttfeta"? „Lagið er samið á því tímaskeiði þegar Tatu Kantomaa var hjá mér og ég upptek- inn af marsuka lögum. Þetta lag sendi ég svo í lagakeppni sem Félaga harmoniku- unnenda við Eyjafjörð hélt í tilefni af tutt- ugu ára afmæli félagsins árið 2000 og lenti það í þriðja sæti." Tónlistarlíf á Héraði fyrr og nú: „Við stofnun HFH varð mikil breyting á þann veg að harmonikan kom meira við sögu heldur en á því tímabili sem kennt hefur verið við „Bítlana". Einnig má segja að með lagakeppnum komu menn lögum í umferð sem mörg hver væru líklega enn í skúffu eða ósamin." Skemmtilegar minningar úr tónlistinni og félagslífi: „Efst í huga mér er koma Tatu Kantomaa og vera hans hér ásamt lands- móti SÍHU á Egilsstöðum 1993 en þá var Tatu heiðursgestur landsmótsins ásamt öðrum ungum manni, Daniel Isaksson frá Svíþjóð. Frá þessum tíma hefur Tatu ver- ið vel þekktur á íslandi enda einn besti harmonikuleikari okkar tíma." Önnur áhugamál: „Landsbyggðamál höfða enn til mín fyrir utan lestur góðra bóka bæði í bundnu og óbundnu máli". - H vað ert þú að fásl við í dag? „Ég er húsvörður við flugstöðina á Egilsstöðum og þar fyrir utan hlusta ég á góða tónlist ásamt því að spila á harm- onikuna." Svona í lokin má geta þess að Gutt- ormur var einn af stofnendum HFH og formaður félagsins í fimmtán ár á tíma- bilinu frá 1985 til 2004 og er heiðursfélagi þess frá 2004. Harmonikublaðið þakkar Guttormi fyrir sig og óskar honum velfarnaðar á komandi árum. QW

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.