Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 12

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 12
Samantekt HARMONIKUBLAÐIÐ Landsmót í Neskaupstað Landsmót SÍHU það níunda í röðinni var haldið í blíðskapar- veðri í Neskaupstað dagana 7.-10. júlí. Mótið var mjög vel sótt og framkvæmd þess Fé- lagi harmonikuunnenda Norð- firði til mikils sóma. Vert er að þakka Guðmundi Skúlasyni formanni og hans fólki fyrir þá miklu vinnu sem þau lögðu á sig svo mótið mætti takast sem best. Framkvæmdastjóri móts- ins Ómar Skarphéðinsson hafði líka í mörg horn að líta enda margt sem hvíldi á herð- um hans. Sigurður Rúnar Ragnarsson var kynnir mótsins og fórst honum það vel úr hendi. Á þriðja hundrað hljóðfæraleikara komu fram á tónleikum þá þrjá daga sem mótið stóð. Lokatónleikarnir voru svo með hinum unga heiðursgesti mótsins Sören Brix frá Danmörku, sem heillaði áheyrendur upp úr skónum. Það er samdóma álit manna að sjald- an eða aldrei hafi hljómsveitir félaganna komið jafnvel undirbúnartil móts eins og nú. Það sama má segja um þá aðra sem ekki flokkuðust í hljómsveit. Gömlu meistararnir svo sem Bragi Kynnir mótsins, Sigurður Rúnar Ragnarsson. Hlíðberg og Reynir lónasson sýndu að þeir hafa engu gleymt, en eins af gömlu meisturunum var sárt saknað, en það var Grettir Björnsson sem ekki gat mætt sök- um veikinda. Ekki má gleyma þeim mörgu ungmennum sem fram komu, þau stóðu sig með stakri prýði og sýndu svo ekki verður um villst að þau ætla sér að halda uppi merki harmonikunnar í fram- tíðinni. Eina hljómsveitin sem skipuð var ungmennum eingöngu var frá Félagi harmonikuunnenda Reykjavík undir stjórn Guðmundar Samúelssonar, vel spilandi og samstillt hljómsveit. Það er hægt að ræða endalaust um framgöngu þeirra ungmenna sem komu fram á þessu landsmóti og það sem þau gáfu okkur sem á hlýddum, en sjón er sögu ríkari og hvet ég alla þá sem vilja njóta áfram þess sem þau höfðu fram að færa að verða sér úti um þær upptökur sem gerðar voru af landsmótinu, þær er bæði hægt að fá á myndspólum og mynddiskum. Blaðið birtir viðtöl við tvö af þeim ungmennum sem fram komu á mótinu, þau Ara Magnússon og Fjólu Oddgeirsdóttur. Ari er þrettán - Hvenær byrjaðir þú að lœra á harmoniku? Ég byrjaði um páskana árið 2000. Amma mín sem hefur alltaf haft mikinn áhuga á harmonikutón- list ýtti mér af stað og vakti áhuga minn. Ég hef alltaf lært hjá Sigurði Alfonssyni frænda mínum enda hægt um heimatökin, var hann boðinn og búinn að kenna mér. - Hvernig fannsl þér að koma á landsmótið í Neskaupstað og fivað fannst \>ér skemmtilegast við mótið? „Mér fannst það mjög gaman það sem mér fannst standa uppúr voru allir tón- leikarnir og ferðalagið austur. Þetta var fyrsta landsmótið mitt og örugglega ekki það síðasta," segir Ari. - Hefur \>ú oft komið fram áður og þá hvar? ara Kópavogsbui Ari Magnússon. „Ég hef oft komið fram t.d. hjá Karli lónatannsyni bæði í Hveragerði og í Ráð- húsi Reykjavíkur, líka í Kópavogsskóla og á landsmótinu." Ari er í harmonikufélag- inu Léttum tónum. - Áttu þér önnur áhugamál en harmonik- una? „Það er ekki mikill tími fyrir önnur áhugamál, ég er búinn að velja golf sem mína íþróttagrein, námið í skólanum er númer eitt golfið kemur númer tvö, mest allur minn tími fer í að sinna þessu fyrir utan harmonikunámið." Fjóla er 15 ára gömul og býr í Reykjanesbæ - Hvenær byrjaðir þú að læra á harmoniku? „Ég byrjaði þegar ég var átta ára og hef lært hjá þó nokkrum kenn- urum, en núna í augnablikinu er ég að læra hjá Germani Hlop- in." Fjóla Oddgeirsdóttir. Hvernig fannst þér að koma á landsmótið í Neskaupstað og hvað fannst þér skemmtilegast við mótið? „Mér fannst það bara mjög spennandi að fá að koma og það var gaman að sjá allt fólkið og sjá hvað það voru margir á mínum aldri að spila." -Varþetta fyrsta landsmólið þitt? „|á, og vonandi ekki það síðasta." - Hefur þú oft leikið opinberlega? „]á, ég hef oft komið fram bæði á Tón- fundum og svo hef ég verið fengin til að spila á opnunum og við fleiri tækifæri. - Ertu í harmonikufélagi? „Ég er nú ekki neinn meðlimur í félagi en ég hef spila með Harmonikufélaginu á Suðurnesjum og kannski ég verði með- limur þar einhvern tímann." - Áltu þér önnur áhugamál en harmonik- una? „Já, ég er að æfa klassískan ballett f Listdanskóla íslands og hef verið að æfa í u.þ.b. 10 ár og svo er ég alltaf að læra fyrir skólann og mér finnst mjög gaman að lesa og teikna." ).). IBSf

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.