Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 14
Minning HARMONIKUBLAÐIÐ Minningarorð Hákon Jónsson Fæddur 06. 08. 1918 - Dáin 25. 01. 2005 Þráður sem í þrautum var þolinn vanda greiddi, oss til ljóss að ending bar og til dyra leiddi. Það er ætíð sárt að sjá á bak góðum vini, traustum félaga og samferða- manni. Það fengum við í Harmonikufé- lagi Þingeyinga að reyna þriðjudaginn 25. janúar s.l., þegar okkur barst and- látsfregn félaga okkar og vinar Hákonar lónssonar frá Brettingsstöðum í Laxár- dal. En það er huggun harmi gegn hvað við eigum margar hlýjar og bjartar minn- ingar frá liðnum samverustundum. Hákon Jónsson var fæddur 6. ágúst 1918aðVíðum ÍReykjadal. Hann var þar til sex ára aldurs en ólst síðan upp á Brettingsstöðum í Laxárdal og var þar bóndi til ársins 1945. Síðan bóndi í Tungugerði á Tjörnesi til ársins 1958. Þá fluttist hann með fjölskyldu sína til Húsavíkur og settust þau að í Þórshamri. Hákon var einn af stofnendum Harmonikufélags Þingeyinga 4. maí 1978 hann var kosinn í stjórn félagsins 29. maí 1981 og æ oftar síðar. Hann var ávallt ritari félagsins meðan hann sat í stjórnum þess, enda með af- burða góða rithönd og stíllist, hann var einnig ritari Verkalýðsfélags Húsavíkur til margra ára. Oft var leitað til Hákonar að skrifa fréttabréf og frásagnir fyrir félagið sem komust á prent í blaðið „Harmon- ikan" eftir að það hóf göngu sína. Honum fórst það vel úr hendi sem annað ritmál. Hákon skrifaði æviminningar sínar sem komu út haustið 2003 í bókinni „Brotinn er nú bærinn minn", sem fengið hefur mjög góða dóma fyrir fróðlegar og lifandi frásagnir frá æviskeiði hans. Tónlist einkenndi allt líf Hákonar og var hans gleðigjafi alla ævi. Um fimm ára aldur kynntist hann fyrst harmonikumús- fk heima í baðstofunni á Víðum er þar var haldið ball síðla vetrar og spilað á ein- falda harmoniku af Hallgrími Hallgríms- syni í Hólum í Laxárdal. Ungur að árum fékk Hákon tilsögn á orgel hjá Guðfinnu frá Hömrum en síðar fór hann til Reykjavíkur einn vetur í orgelnám hjá Páli ísólfssyni. Hákon hafði mjög góða tenórrödd og tók mikinn þátt í tónlistarlífi Suður-Þing- eyinga, bæði með söng sínum, orgelspili og síðast en ekki síst með harmoniku- leik. Árið 1948 eignaðist Hákon fyrstu harmonikuna og var honum ekkert vandamál að spila á hana þar sem hann var búinn að læra allmikið á orgel og kunni nótnalestur. Hann fór upp úr því að spila fyrir dansi í sinni heimasveit og víðar. Eftir að Harmonikufélag Þingeyinga var stofnað spilaði Hákon bæði kamermúsík og dansmúsík heima í héraði, á landsmót- um og í heimsóknum á milli félaga vítt um landið. Eftir að Hákon varð vistmaður á Hvammi dvalarheimili aldraðra var hann ómissandi gleðigjafi þar með harmonik- una við hin ýmsu tækifæri, hvort heldur það voru þorrablót eða dinnermúsík til afþreyingar fyrir vistmenn, alltaf var hann tilbúinn að spila og leggja sitt af mörkum þótt lasleiki væri farinn að hrjá hann í seinni tíð. Hákon spilaði fyrir dansi á árs- hátíð harmonikufélagsins sem haldin var snemma í nóvenber 2004 í Ljósvetninga- búð, hafði hann þá að orði að ekki væri víst að hann gæti spila á næstu árshátíð því ellin væri óðfluga að færast yfir sig og unglingsárin liðin hjá. Hann taldi sig þó mjög sáttan, því þeir áratugir sem hann hefði spilað og starfað í Harmonikufélagi Þingeyinga hefði engin félagsskapur veitt sér aðra eins gleði, skemmtun og ógleymanlega ljúfar stundir. Það fór svo að þetta varð síðasti dansleikurinn sem Hákon spilaði á, enginn veit hvað hann spilaði á þeim mörgum um ævina. En vitað er að hann eignaðist samtals tíu harmonikur frá því 1948 auk orgels. Það væri síst að hans skapi að hér væri flutt langt lofsyrðamál.en virða skal ætíð það sem vel er gert. Hákon var harmonikufélaginu dugmikill og traustur félagi sem ávallt var reiðubúinn að vinna félagi sínu allt sem gæti stuðlað að sem mestum og bestum framgangi þess. Þar sem tónlistin var Hákoni í blóð borin var hann þrautseigur að æfa lög hvort heldur gömul eða ný. Margar stundir sat hann með nótnabækur fyrir framan sig og spilaði hin flóknustu verk, hann var líka fljótur að læra lög eftir eyr- anu og hafði gaman af miklum hljóma- lögum bæði í dúr og moll. Hann átti líka létt með að spila aðra rödd í lögum ef svo bar undir eða þegar hann spilaði í félagshljómsveitum á landsmótum og víðar. Hákon setti því sterkan svip á félagið með fjölþættum músíkhæfileikum, já- kvæðum félagsanda, trúmennsku og sannri gleði hvar sem hann fór. Við félag- ar hans og vinir vitum fullvel að mikið skarð var höggvið er heiðursfélaginn og gleðigjafinn Hákon lónsson kvaddi og lauk rösklega 26 ára starfsemi í sínu kæra harmonikufélagi. Harmonikufélag Þingeyinga þakkar heilshugar öll störf hans í þágu félagsins frá stofnun þess svo og allar björtu gleði- stundirnar. Nú er barns og unglingsár, innra lífsins gengið. En þá hefur andans aðall hár, æðra takmark fengið. Við félagar hans vottum sonum hans Jóni og Hólmgeiri og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Blessuð sé minning Hákonar. F.h Harmonikufélags Þingeyinga, Kári Árnason.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.