Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 15

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 15
HARMONIKUBLAÐIÐ Minning / Frétt Það urðu margir harm- onikuunnendur hnuggnir þegar það fréttist að Grettir Björnsson væri allur. Hann veiktist af krabbameini á vormán- uðum og háði hetju- lega baráttu við sjúk- dóminn. Hann hafði ráðgert að verða með hljómsveit á landsmót- inu á Neskaupstað en það varð að víkja. Sá sem þessar línur skrifar varð þeirrar ánægju að- njótandi að kynnast Gretti þegar hann með fjölskyldu sinni flutti heim frá Kanada skömmu eftir 1960. Hann var þá þegar umtalaður harmonikuleikari, hafði unnið til verðlauna í Kanada og margir mundu eftir honum frá því hann lék með hljómsveitum hér heima. Það lá því beint við þar sem ég þá hafði umsjón með harmonikuþáttum í Ríkisútvarpinu að hann yrði fenginn til að leika eina kvöldstund og það gerði hann með ljúf- mennsku og eftirminni- legum hætti. Það má fullyrða það að eftir að Grettir kom heim hafi stíll í harmonikuleik ís- lendinga tekið talsverð- um breytingum, orðið bæði léttari og nútíma- legri, fyrir utan það að margir fóru bein- línis að stæla meistara Gretti og gera margir enn. Það fór ekki hjá því að vax- andi starfsemi félaga um harmonikuna kallaði á starfskrafta hans, að stjórna og leiðbeina hljómsveitum og svo að fást við kennslu. Hljómplötur urðu einnig stór þáttur í ferli hans m.a. varð hann fyrstur innlendra spilara að fjölinnspila á harmonikuplötur. Þær urðu fjölmargar og njóta vinsælda. Það er ekki ofmælt að Grettir var afar vinsæll hljóðversmaður og setti persónulegan svip á þær upptök- ur sem hann tók þátt í. Þó Grettir Björns- son hafi skilið eftir sig mikið verk á sviði tónlistarinnar var aðalstarf hans á sviði húsamálunar, sem hann hóf á Kanadaár- unum og stundaði til æviloka. Ekkju og afkomendum Grettis sendir Harmoniku- blaðið samúðarkveðjur. Högni Jónsson. Okkur hjónunum langar til að minnast góðs vinar og félaga, Grettis Björnssonar og vottum Ernu svo og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Grettir var okkur sannur vinur alla tíð sem ávallt fylgdi bæði hlý- hugur og gleði. Sem frábær harmoniku- leikari lætur hann eftir sig skarð sem ekki verður fyllt í bráð. Hafðu þökk fyrir góð kynni á liðnum árum. Þín er sárt saknað. Bragi Hlíðberg og frú. Erfðaprins íslensku harmonikunnar allur Grettir Björnsson F. 2. maí 1931 > D. 20. október 2005 Fréttir af Harmonikufélagi Reykjavíkur Harmonikufélag Reykjavíkur saman- stendur að mestu af tveim sveitum þ.e. Stormi og Léttsveit. Mikil gróska hefur verið í starfsemi félagsins undanfarið og er það að mestu að þakka nýjum stjórn- anda sem kom til liðs við félagið um síð- ustu áramót en þá tók hann við stjórn hjá Storminum og fór með þeim sem stjórn- andi á landsmótið í Norðfirði sl. sumar. Þetta er Vadim Fjodorov en hann er annar af rússnesku tvíburunum sem komu sem gestaspilarar á Landsmótið á Siglufirði. Þeir bræður eru löngu orðnir þekktir fyrir harmonikuleik sinn. Síðast liðið haust tók Vadim einnig að sér stjórn Léttsveitar jafnframt því að kenna harm- onikuleik á vegum félagsins .Teljum við það mikla heppni að hafa fengið hann til liðs við okkur og er það greinilegt að hann hefur komið með nýja strauma með sér og væntum við okkur góðs af sam- starfinu við hann. Þann 27. nóv. var haldinn Dagur Harm- onikunnar í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem tókst með glæsibrag. Harmonikufélag Reykjavíkur er líka með dansleiki í Glæsibæ mánaðarlega og hefur ver- ið þar sl. sjö ár. í janúar hvert ár höld- um við þorra- blót sem alltaf hefur verið mjög fjölsótt og mörg undan- farin ár hafa vinir okkar úr Félagi Harmonikuunnenda á Suðurnesj- um samglaðst okkur og tekið fullan þátt í því að blóta með okkur þorra. Hið árlega þorrablót verður næst hald- ið þann 28. janúar í Glæsibæ. Á næsta ári verður Harmonikufélag Reykjavíkur 20 ára að því tilefni ætlum við að leggja land undir fót og halda til Gautaborgar en þar ætlum við að skoða stóra harmonikuverslun og harmoniku- safn. Við höfum fengið til liðs við okkur þaulkunnan mann sem lærði harmoniku- viðgerðir hjá þessu sama fyrirtæki. Ýmis- legt fleira verður sér til gamans gert við verðum í sambandi við harmonikufélag í Gautaborg einnig munum við hafa afnot af stórum sal á hótelinu er þar hægt að spila og dansa eins og hver og einn vill við hafa. Ferðin verður farin 17. - 21. maí nk. Ég er sannfærð um það að þetta verð- ur fróðleg og skemmtileg ferð. Við þökk- um öllu harmonikufólki fyrir samveruna á landsmótinu sl. sumar og þeim Norðfirð- ingum fyrir frábært landsmót. Nýjum formanni Landssambandsins óskum við til hamingju með embættið og þökkum Jóhannesi fyrrverandi formanni frábært starf í þágu sambandsins. Hittumst heil á nýju ári. Með kveðju frá Harmonikufélagi Reykjavíkur, Guðrún Guðjónsdóttir, form. Œlflf

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.