Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 17

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 17
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleiksspjall Nú vantar bara húsið... - Einstakt harmonikusafn á ísafirði Ásgeir S. Sigurðsson á senni- lega stærsta einkahljóðfæra- safn landsins og þótt víðar væri leitað. Harmonikurnar hans eru á annað hundrað, aðeins tvær þeirra eru eins og þær elstu frá um 1830. Safnið er heima hjá Ásgeiri á ísafirði, en hann hefur ákveðið að gefa ísafjarðarbæ safnið í þeirri von að því verði fundið húsnæði þar sem það verður opið almenningi. Tekið var hús á Ásgeiri til að forvitn- ast um þessa ástríðu hans. Aldrei lært á harmoniku „Það má trúlega segja að áhugi minn fyrir harmonikunni hafi kviknað í barn- æsku, því föðurbróðir minn sem bjó á heimilinu og spilaði mikið, var í eina tíð vinsæll og þekktur ballspilari á þessu svæði, Sjálfur hef ég aldrei lært neitt á hljóðfærið. Maður byrjaði svona að þreifa sig áfram en því miður varð það aldrei að neinu námi. Ég held ég hafi verið fimmtán ára þegar ég eignaðist mína fyrstu harm- oniku. Ég fékk frænda minn til að kaupa hana fyrir mig í Reykjavík, þetta var bara áhuginn fyrir að prófa þetta." Ásgeir er Þingeyingur, fæddur á Ljóts- stöðum í Laxárdal og uppalinn á Hólum hinum megin við Laxána, „Ólst bara upp við almenn sveitastörf", segirÁsgeir. „Hól- ar lágu frekar afskekkt, það kom hvorki vegur eða rafmagn þar fyrr en eftir að ég var farinn vestur". Ásgeir fluttist vestur til ísafjarðar árið 1961, en eiginkona hans, Messíana Marzellíusdóttir, var í Hús- mæðraskólanum að Laugum. „Við kynnt- umst þar og það varð útfallið að við flutt- umst hingað vestur og ég fór að læra hér járnsmíði hjá tengdaföður mínum Marzellíusi í Skipasmíðastöð M. Bern- harðsson. Ég tók með mér harmoniku sem ég átti þá, seldi hana svo þegar ég þurfti að fjármagna húsakaup að mig minnir og ég átti ekki harmoniku í nokkuð mörg ár. En ég held ég hafi aftur keypt mér harmoniku nokkru áðuren HarmonikufélagVestfjarða var stofnað hérna árið 1986. Þá fór ég að taka þátt í starfi þess og hef lengst af verið formaður félags- ins." Konan ekki hrifin í fyrstu Messíana, eiginkona Ás- geirs, vará þeim tíma píanókenn- ari og ekkert sér- staklega um harmonikuna gefið að sögn Ásgeirs. „Hún var lærður píanókennari og henni fannst nú ekki mikið til um harmoniku sem hljóð- færi og alls ekki held ég um mína músik", segir Ásgeir og hlær. „En svo fórum við á landsmót harmonikufélaga í Eyjafirði, okkar fyrsta landsmót árið 1987, og þá heyrði hún hvernig átti að spila á harmon- iku. Upp úr því skrifaði harmonikufélagið Tónlistarskóla ísafjarðar og hvatti til að héryrði hafin harmonikukennsla og einnig gáfum við skólanum tvær kennsluharmon- ikur. Þá vantaði kennara og úr varð að Messíana fór að kenna á harmoniku. Hún aflaði sér þekkingar hjá harmonikuleikur- um, fékk meðal annars tilsögn hjá Reyni lónassyni, harmonikuleikara." Eina hljóðfærasafn landsins „Eftir því sem ég best veit þá er þetta eina hljóðfærasafn landsins. Þetta byrjaði líklega fyrir 15 árum, en kona hér í bænum sem þá var að læra á harmoniku hjá kon- unni minni, var með harmoniku sem mað- urinn hennar sem var látinn hafði átt . Harmonikan var mjög illa farin og konan var að velta fyrir sér hvað hún ætti að gera við hana. Hún spurði mig hvort ég vildi taka við henni og eignast hana. Ég varð mjög spenntur og þáði hana að gjöf og gat með aðstoð góðra manna komið henni í allgott stand. Á næstu árum eignaðist ég nokkrar harmonikur, en það eru ekki nema sex, sjö ár síðan ég fór að gera eitthvað í því að safna harmonikum". Ásgeir sýndi harmonikurnar sínar á EEW landsmóti harmonikuunnenda sem var haldið á ísafirði árið 2002, en þá voru þær 64 talsins. „Ég fékk einar fjórar eða fimm afhentar á landsmótinu. Ein þeirra var með mjög mikla sögu á bak við sig. Ég hef lagt mikla áherslu á að skrá niður alla þá sögu sem vitað er um hverja harmoniku, hverjir hafa átt hana og spilað á hana og oft kemur í Ijós að það hafa verið margir eigendur og þetta eru hljóðfæri sem hafa verið notuð til að halda uppi skemmtun- um í heilu byggðalögunum", segir Ásgeir. -í dag eru harmonikurnar orðnar 109? „já, þæreru núna 109 og við hjónin höf- um verið með þetta í einu herbergi hér heima. Ég vil nú taka það fram að ég gæti ekki verið með þetta safn nema af því að konan mín hefur stutt mig eindregið og fórnaði stærsta herberginu í húsinu undir safnið. Við komum nú ekki nema um fimmtíu harmonikum fyrir í því, þannig að rúmur helmingur safnsins er alltaf í geym- slu. Ég hef reyndar verið svo heppinn að fá alltaf að vera með fjórar harmonikur til sýnis í Safnahúsinu og það hefur oft orðið til þess að fólk hefur samband til að fá að skoða. Og það eru allir hjartanlega vel- komnir. Ég vil nú taka það fram að það voru ansi margir sem skoðuðu safnið þarna á landsmótinu, það voru rúmlega 600 manns sem skrifuðu í gestabókina og það er vitað að það skrifuðu ekki allir í hana, þannig að það var ansi góð auglýs- ing fyrir safnið og upp úr því fékk ég mikið af harmonikum."

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.