Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 11

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 11
T MINNING Þorsteinn Pálmi Guðmundsson Fæddur 22. desember 1933 - Dáinn 18. mars 2011 Horfinn er á braut félagi okkar og vinur, Þorsteinn P. Guðmundsson, sem oft var þekktur undir nafninu Steini spit. Hann hóf ungur að leika á harmoniku og fljótlega fór hann að leika fyrir dansi á sam- komum, ýmist einn eða með góðum félögum. Hann sótti um tíma harmonik- unám hjá Karli jónatanssyni, en var að öðru leyti sjálfmenntaður í hljóðfæraleik. Kunnastur mun hann hafa orðið er hann lék um árabil með Hljómsveit Óskars Guð- mundssonar. Sú hljómsveit var geysi vin- sæl á þeim tíma hér sunnanlands og lék um flestar helgar árið um kring í hinum fjölmörgu félagsheimilum og samkomu- húsum víða um land um árabil. Með þeirri hljómsveit störfuðu gegnum tíðina ýmsir ágætir söngvarar og stundum tók Steini fram saxofóninn og blés nokkra blúsa og standarda sem vinsælir voru á þeim tíma. Síðar meir stofnaði Steini sína eigin hijóm- sveit, sem náði miklum vinsældum. „Hljóm- sveit Þorsteins Guðmundssonar leikur" heyrðist oft f útvarpinu; þangað var stefnt, þar dunaði dansinn og þar var gleðin við völd. Hann gaf út nokkrar hljómplötur með hljómsveit sinni og var hann þá jafnan söngvari og höfundur laganna og texta. Þessarplötururðu mjögvinsælará þessum árum sveitaballa menningarinnar. Þorsteinn starfaði íallmörgársem handa- vinnukennari á Selfossi og kenndi einnig talsvert á harmoniku, við tónlistarskóla Árnessýslu og í einkatímum. Árið 1991 komu saman á fundi á Selfossi nokkrir harmonikuleikarar og áhugafólk um harmonikuna og upp úr því var sfðan stofnaður félagsskapur sem nefndur var „Félag harmonikuunnenda á Selfossi og nágrenni - FHSN“, sem sfðar var breytt í „Harmonikufélag Selfoss - HFS“. Einn af þessum hópi var Þorsteinn Guðmundsson. Hann tók virkan þátt í störfum félagsins um árabil, eða þartil heilsan fór að bila. Hann varíþeim hópi sem viðsendum á Landsmót SÍHU á Egilsstöðum 1993, þvf fyrsta sem okkar félag tók þátt í. Sfðan á Laugalandi 1996 og Siglufirði 1999.Hann tók þátt í spilamennsku á böllum, sem félagið hefur haldið á nokkrum stöðum um árabilogvar þar góður liðsmaður. Við minnumst margra góðra stunda sem við áttum með honum Steina. Þökkum samfylgdina og sendum Unni og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur frá Harmonikufélagi Selfoss. A Varmalandi eru góð draghýsasvæði góður danssalur, sundlaug og gisting. Fjölmennum ogtökum með okkur góða gesti og gott skap. Félag harmonikunnenda í Reykjavík Harmonikuhátíðin „Nú er lag á Varmalandi" Hin arlega harmonikuhatið F.H.U.R. verður haldin á Varmalandi í Borgarfirði um verslunarmannahelgina 29. júlí til 1. ágúst. Glæsileg dagskra verður alla helgina, dansleikir, tonleikar, markaður, harmonikukynning ogýmislegt fleira. 11

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.