Fréttablaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 44
4. október 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
Alexander Rodchenko fæddist í St.
Pétursborg í Rússlandi árið 1891
og lærði málaralist í Kasan. Þar
kynntist hann eiginkonu sinni, Var-
vöru Stepanovu, og þau unnu mikið
saman upp frá því,“ segir Ragnheið-
ur Kristín Pálsdóttir, framleiðandi
sýningarinnar Bylting í ljósmyndun
sem verður opnuð á Kjarvalsstöð-
um á morgun. Á sýningunni gefur
að líta yfir 200 verk eftir listamann-
inn en þau eru frá Ljósmyndasafni
Moskvu.
„Þau hjón fluttu til Moskvu 1915
og bjuggu þar upp frá því,“ heldur
Ragnheiður áfram. „Þetta voru
byltingartímar og mikið umrót í
samfélaginu. Öflugur hópur lista-
manna í Moskvu, sem kenndi sig við
konstrúktívisma, þróaði nýja tákn-
fræði og nýtt sjónrænt tungumál
til að túlka hina breyttu tíma. Þetta
tímabil, árin á milli 1917 og 1930, er
bæði mikilvægt og merkilegt í rúss-
neskri listasögu og varð inspírasjón
fyrir Bauhaus og módernismann
sem komu á eftir.
Upp úr 1920 sneri Rodchenko
baki við málaralistinni, úrskurðaði
málverkið dautt, og einbeitti sér að
ljósmyndun. Hann var mikill frum-
kvöðull á því sviði og barðist fyrir
því að ljósmyndun fengi meira vægi
sem listgrein.“
Rodchenko og Stepanova hönnuðu
í sameiningu bókakápur, veggspjöld
og auglýsingar en á sýningunni,
sem er farandsýning sem sett hefur
verið upp víða um heim, er áhersla
lögð á ljósmyndir hans.
Skil urðu á ferli Rodchenko árið
1929 þegar Stalín gaf út þá tilskipun
að listsköpun í landinu ætti að falla
inn í sósíalrealískt mót sem væri
auðskilið öllum. Verk Rod chenkos
og Stepanovu þóttu of flókin og
framúrstefnuleg og upp frá því
fór að þrengja að þeim. Rodchenko
vann þó áfram við ljósmyndun allt
til dauðadags árið 1956. „Hann hélt
ótrauður áfram,“ segir Ragnheiður.
„En hann gat ekki fengið myndirnar
sínar birtar nema þær sem hann tók
að sér að taka fyrir flokkinn, sem
var nokkurs konar fréttaljósmynd-
un og heimildaskráning.“
Sýningin er að frumkvæði Ragn-
heiðar sem sá hana úti í London
árið 2008 og hefur síðan unnið að
því að koma henni upp hér. Hvern-
ig vaknaði áhugi hennar á verkum
Rodchenkos? „Ég kynntist myndum
hans í MÍR þar sem ég sá eitthvað
af þeim í bókum sem krakki. Ég er
með meistaragráðu í sögu Rúss-
lands og áhugaljósmyndari þar að
auki, þannig að þessi sýning sam-
einar áhugasvið mín.“
Sýningin verður opnuð klukk-
an 16 á morgun og á sunnudaginn
klukkan 15 munu Ragnheiður og
Goddur, prófessor í grafískri hönn-
un við LHÍ, flytja fyrirlestra um líf
og verk Rodchenkos.
fridrikab@frettabladid.is
Rodchenko þróaði nýtt
sjónrænt tungumál
Bylting í ljósmyndun nefnist sýning á verkum Alexanders Rodchenko sem
opnuð verður á Kjarvalsstöðum á morgun. Ragnheiður Kristín Pálsdóttir er
framleiðandi sýningarinnar hérlendis, enda hefur hún haft áhuga á verkum
rússneska ljósmyndarans frá unga aldri.
BYLTING Ragnheiður Kristín sá sýninguna Bylting í ljósmyndun í London fyrir fimm árum og hefur síðan unnið að því að hún
yrði sett upp hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mjódd l Salavegur l Hverafold l Grandi l Akureyri l Höfn
Grindavík l Reykjanesbær l Borgarnes l Egilsstaðir l Selfoss
Nicotinell fæst núna í öllum verslunum Nettó
1.199kr/pk - Fruit 799 kr/pk
Nýtt í Nettó!
NÝTT
Save the Children á Íslandi
BÆKUR ★★★★ ★
Hnefi eða vitstola orð
Eiríkur Örn Norðdahl
MÁL OG MENNING
Ljóðabókin Hnefi eða vitstola orð
eftir Eirík Örn Norðdahl minn-
ir mig einhverra hluta vegna á
Dag Sigurðarson heitinn. Hver er
staða ljóðsins? var eitt sinn spurt.
Er ekki búið að skipa Sigurð Páls-
son í hana? á Dagur að hafa spurt
á móti. Og orti í tilefni Dags ljóðs-
ins: Dagur, Dagur, Dagur ljóðsins.
Maður veltir nefnilega fyrir sér
stöðu ljóðsins þegar maður hend-
ist um í Hnefa og vitstola orðum –
hver er hún á tímum internets og
sms-skilaboða?
Bókin hefst á formála: Kreppu-
sonnettu: „IMF! IMF! IMF!“ all-
lengi og svo tekur við OMG! OMG!
OMG!“ í næstu línu. Fjórtán línur.
Eins og Sonnettan segir til um.
Og, hvar var ljóðið í hruninu?
Það virðist hafa verið í útlöndum.
Eiríkur Örn segir svo frá á bak-
síðu að hann hafi setið í útlöndum
og ort ljóðin meðan Ísland brann.
Hann endurhlóð fréttasíður í von
um nýjar og betri byltingar. Allt
bara bing búið Bara bara búmm
eftir Bara búmm, bara búmm
Bara bara búmm. Þarna er reiði
og örvinglan. Uppsetningin er í
stíl við það, ljóðlínurnar hlaupa út
undan sér og jafnvel ráðvilltar um
síðurnar. Og orðin eru ekki öll þar
sem þau eru séð. Syrgið með Þið
eygið ekki neitt. Orðaleikir. Þeir
heppnast ekkert alltaf en þegar vel
til tekst, þá tekst vel til. Talsvert
betri finnst mér knappari ljóðin en
þau þegar ljóðmælandinn setur á
miklar ræður, þegar setningarn-
ar hrúgast upp í belg og biðu og
í endurtekningu. Þá virðist sem
ljóðið sé að molast á öld offlæðis
(óþarfa) upplýsinga. Eiga ekki ljóð-
in að hlaupa í aðra átt og neita að
taka þátt í slíku? En, það má lengi
fletta í þessari bók, hún er í hand-
hægu broti og ekki rýr í roðinu.
Þetta er sjötta ljóðabók Eiríks
Arnar sem einnig hefur gefið út
fjórar skáldsögur og skemmst
náttúrlega að minnast stórvirk-
isins Illsku sem kom út í fyrra
en fyrir þá bók hreppti Eiríkur
Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Já, vel á minnst: Staða ljóðsins? Í
Hnefa og vitstola orðum má fylgj-
ast með gengisfimleikum Seðla-
bankans frá því seint árið 2007 og
fram á sumar 2013 efst á hverri
opnu bókarinnar en eftir því sem
krónan rýrnar þeim mun meira
vex máttur orðanna. Gaman að
segja frá því. Fyrirfram hefði ég
ekki gefið mikið fyrir stöðu ljóðs-
ins nú eftir hrun og á tímum inter-
nets þegar orðin flæða um allt. En,
Eiríki Erni tekst hið illmögulega
að rífa gengi ljóða upp í kolli þess
sem hér skrifar. Eiríkur, Ei ríkur,
Eiríkur ljóðsins. Nokkuð vel af sér
vikið. Nei annars, verulega vel af
sér vikið. Jakob Bjarnar Grétarsson
NIÐURSTAÐA: Eiríkur Örn vinnur vel
fyrir rithöfundalaunum sínum; hann
rífur upp gengi ljóðsins um leið og
hann fylgist með krónunni verða að
engu. Bráðskemmtileg ljóðabók.
Ei ríkur Eiríkur ljóðsins
MENNING