Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 94
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 58
TÍMAMÓT HJÁ HILDI
SIGURÐARDÓTTUR
FLEST STIG Í EFSTU DEILD KVENNA
1. Birna Valgarðsdóttir 5067
2. Anna María Sveinsdóttir 5005
3. Hildur Sigurðardóttir 4040
4. Linda Stefánsdóttir 3487
5. Kristrún Sigurjónsdóttir 3284
6. Guðbjörg Norðfjörð 3281
7. Hafdís Helgadóttir 3180
8. Alda Leif Jónsdóttir 2955
FLESTAR STOÐSENDINGAR Í EFSTU
DEILD KARLA OG KVENNA
1. Hildur Sigurðardóttir 1417
2. Jón Arnar Ingvarsson 1393
3. Jón Kristinn Gíslason 1359
4. Eiríkur Sverrir Önundarson 1308
5. Sverrir Þór Sverrisson 1300
6. Teitur Örlygsson 1168
7. Friðrik Pétur Ragnarsson 1101
8. Tómas Holton 1086
Hildur í efstu deild
Leikir 308
Stig 4040 (13,1 í leik)
Fráköst 2506 (8,1 í leik)
Stoðendingar 1417 (4,6 í leik)
STIGASKOR MEÐ LIÐUM
ÍR 169 (8,9 í leik)
KR 2284 (13,0)
Snæfell 1003 (13,7)
Grindavík 584 (14,6)
STOÐSENDINGAR MEÐ LIÐUM
ÍR 24 (1,3 í leik)
KR 793 (4,5)
Snæfell 450 (6,2)
Grindavík 150 (3,8)
SPORT
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Íslenska
h l a up a d r o t t n i n g i n A n í t a
Hinriksdóttir hefur verið í
algjörum sérflokki í sinni
aðalgrein á mótum sínum
á Íslandi undanfar ið og
oftast hlaupið keppnislaust í
frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Það breytist á morgun þegar Aníta
fær alvöru keppni í 800 metra
hlaupinu í frjálsíþróttakeppni
Reykjavíkurleikanna, RIG.
Samkeppnin verður vissulega
mikil í 800 metra hlaupi kvenna
en annar erlendu keppendanna,
Rose-Anne Galligan sem er 26
ára Íri, á betri tíma en Aníta í
greininni innanhúss. Aline Krebs
frá Þýskalandi verður einnig með
en bæði Galligan og Aníta eiga
betri tíma en sú þýska.
Galligan bætti 19 ára gamalt
írskt met í 800 metrunum á
Demantamóti í London síðastliðið
sumar þegar hún kom í mark á
tímanum 2:00,58 mínútum. Besti
tími hennar innanhúss er hins
vegar 2:02,84 mínútur. Íslandsmet
Anítu utanhúss er 2:00,49 mínútur
en met hennar innanhúss er
2:03,27 mínútur.
Aníta er ekki sú eina sem
fær erlenda samkeppni á þessu
móti. Hafdís Sigurðardóttir,
Íslandsmethafinn í langstökki
(6,36 metrar), reynir sig á móti
Sosthene Taroum Moguenera, 24
ára langstökkvara frá Þýskalandi,
en Moguenera á best 7,04 metra
frá því á síðasta ári. Hafdís fær
einnig hörkukeppni frá Bretanum
Amy Harris, bæði í langstökki og
í 60 metra hlaupi.
Kolbeinn Höður Gunnarsson,
spretthlauparinn efnilegi úr UFA,
fær að spreyta sig í 60 metra
hlaupi á móti Mark Lewis-Francis
sem var meðlimur í bresku 4x100
m boðhlaupssveitinni sem vann til
gullverðlauna á Ólympíuleikunum
í Aþenu árið 2004.
FH-ingurinn Kristinn Torfason
fær verðuga keppni í langstökki
karla en hann mætir þá Dananum
Morten Jensen og Bretanum
Daniel Gardiner. Jensen á best
8,25 metra frá árinu 2005 og fékk
bronsverðlaun á EM innanhúss
árið 2011. Daniel Gardiner keppir
líka í 60 metra hlaupinu.
F rjá lsí þrót takeppni R IG
fer fram milli 13.00 og 15.30 á
morgun en hápunkturinn er án
efa 800 metra hlaupið hennar
Anítu sem hefst klukkan 14.15.
Þar fær efnilegasta íþróttakona
Íslands vonandi mikla hvatningu
í baráttunni við sterka erlenda
keppendur. - óój
Hægt að sjá Anítu í
alvörukeppni í dag
Aníta Hinriksdóttir fær mikla samkeppni í 800 m
hlaupi í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna.
HITAÐI UPP UM SÍÐUSTU HELGI
Aníta Hinriksdóttir keppti á Meistara-
móti 15 til 22 ára í Laugardalshöllinni
og hér er hún í 200 metra hlaupi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Afreksstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsóknarfrestur vegna afreksstyrkja er til og með mánudeginum
10. febrúar 2014. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar
á landsbankinn.is.
Samfélagssjóður Landsbankans veitir þrjár milljónir króna
í afreksstyrki. Markmiðið með veitingu styrkjanna er að
styðja við bakið á afreksfólki sem iðkar einstaklings- eða
paraíþróttir. Einnig verða veittir styrkir til ungs íþróttafólks
sem á framtíðina fyrir sér.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra
verkefna. Árlega eru ferns konar styrkir veittir: Námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir,
samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir en afreksstyrkir eru veittir annað hvert ár.
Afreksstyrkir
Landsbankans
400.000 kr. hver styrkur.
Afreksstyrkir
framtíðarinnar
200.000 kr. hver styrkur.
KÖRFUBOLTI „Hún hefur algjörlega helgað
körfuboltanum líf sitt og það eru ekki
rosalega margar stelpur á Íslandi sem
hafa gert það. Hún hefur sett allt annað til
hliðar og það eina sem kemst að hjá henni
er karfan,“ segir Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari kvennaliðs Snæfells, um
fyrirliða og leikstjórnanda sinn, Hildi
Sigurðardóttur, sem náði tvennum
tímamótum á dögunum.
Hildur rauf þá bæði fjögur þúsund stiga
múrinn í efstu deild kvenna og komst upp
fyrir Jón Arnar Ingvarsson á listanum
yfir þá leikmenn sem hafa gefið flestar
stoðsendingar í efstu deild karla og
kvenna á Íslandi. Aðeins tvær konur voru
meðlimir í fjögur þúsund stiga klúbbnum
áður en Hildur tryggði sér aðganginn
á dögunum. Birna Valgarðsdóttir bætti
stigamet Önnu Maríu Sveinsdóttur á
síðasta tímabili en þær hafa báðar komist
yfir fimm þúsund stigin.
Hildur lék fyrst í efstu deild með ÍR
veturinn 1998-1999 og var þá kosin besti
nýliðinn. Hún fór árið eftir yfir í KR þar
sem hún hefur spilað stærstan hluta síns
ferils. Hildur lék einnig með Grindavík
og sem atvinnumaður í Svíþjóð en fyrir
tæpum þremur árum kom hún heim í
Stykkishólm og hóf að leika með Snæfelli.
„Hún hefur alla tíð verið íþróttastelpa
og aldrei liðið vel nema hún sé að æfa
þótt skrokkurinn sé núna farinn að kalla
aðeins á það að fara róa sig niður,“ segir
Ingi Þór sem hefur hjálpað Hildi að
sameina vinnu, skóla og körfuboltann í
vetur.
„Hún er leiðtogi fyrst og fremst í því
hvernig hún spilar og hvernig hún leggur
sig fram. Hún er ekki þessi „vókal“
týpa en það er samt að koma hjá henni.
Tölurnar segja að hún sé ofboðslega góður
leikstjórnandi og hún er líkamlega sterk.
Hún hefur í gegnum tíðina lært að nýta
sér íþróttahæfileika sína. Hún er góður
íþróttamaður, þekkir skrokk sinn vel og
þekkir jafnframt sín takmörk. Hún er ein
af lykilmanneskjunum hjá mér. Ég er með
góðan kjarna í höndunum en Hildur keyrir
þetta áfram og stýrir þessu,“ segir Ingi.
Hildur og félagar hafa fjögurra stiga
forskot á toppi Dominos-deildar kvenna
en liðið hefur unnið sex síðustu leiki sína.
Hildur er nálægt því að vera með þrennu
að meðaltali en hún er með 15,1 stig, 7,7
fráköst og 7,8 stoðsendingar að meðaltali
í leik.
Hildur er að ná þessum tímamótum
bæði með því að skora og búa til fyrir
liðsfélaga sína. „Hún býr mikið til og
gerir það bæði í hraðaupphlaupum og
á hálfum velli. Það er því ekki hægt að
stoppa eitthvað eitt hjá henni,“ segir Ingi
Þór að lokum. ooj@frettabladid.is
Tímamótadagar hjá Hildi
Hildur Sigurðardóttir hefur spilað frábærlega með toppliði Snæfells í Dominos-deild kvenna í körfubolta
í vetur og komst í vikunni í fámennan hóp kvenna sem hafa skorað yfi r 4.000 stig í efstu deild. Hildur tók
líka toppsæti af Jóni Arnari Ingvarssyni en enginn hefur nú gefi ð fl eiri stoðsendingar í efstu deild á Íslandi.
FRÁBÆR LEIKSTJÓRNANDI
Hildur Sigurðardóttir í leik
með Snæfelli í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI