Fréttablaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 34
18. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 visir.is Mera um leiki gærkvöldsins. SPORT MAGNAÐ MET Í ÞRENNUM Á TÍMABILINU Sautján þrefaldar tvennur í Dominos-deild karla í vetur og fimmtán af þeim voru íslenskar KÖRFUBOLTI Fréttablaðið hefur eins og aðrir fjölmiðlar verið duglegt að segja frá þrennu- afrekum íslenskra körfuboltamanna enda hefur verið full ástæða til. Þetta hefur verið algjört mettímabil og það sem gleður enn fleiri er að það eru íslensku strákarnir sem leiða þessa miklu sókn í þreföldum tvennum. Metið féll ekki bara því það kolféll og eftir lokaumferðina á sunnudagskvöldið varð það loks ljóst að gamla metið hafði verið slegið um heilar tíu þrennur. Gamla metið var sjö þrennur á einu tímabili eða jafnmargar og Pavel Ermonlinskij náði einn og sér í þess- um 22 umferðum Dominos-deildarinnar í vetur. Það setur þessar sautján þrennur í enn frekara samhengi að það voru jafn- margar þrennur á þessu tímabili eins og fjögur undanfarin tímabil til samans. Þrennuvaktin á karfan.is Hvort sem það var Hörður Tulinius sem kveikti í strákunum með þrennuvaktinni á karfan.is eða eitthvað annað þá var mikið líf í baráttunni um þrennukóng Dominos- deildarinnar á leiktíðinni. Endasprettur Pavels Ermonlinskij sýndi þó ungu strákunum Matthíasi Orra Sigurð- arsyni og Emil Barja að þeir eiga enn þá aðeins í land með að eiga eitthvað í „Herra þrennu“ í íslenskum körfubolta. Það var samt skemmtilegast við þessa baráttu að þarna voru þrír íslenskir leik- stjórnendur að sýna fjölhæfni sína og nýttu sér aukið mikilvægi íslensku leikmannanna nú þegar aðeins einn Bandaríkjamaður var leyfður í deildinni. Fyrsta þrennan 25 ára Þrefaldar tvennur þekktust ekki fyrstu tíu tímabilin í úrvalsdeild karla og sú fyrsta datt ekki inn fyrr en fyrir rúmum 25 árum. Hinn 20. október 1988 er því merkilegur dagur í sögu úrvalsdeildar karla. Þá varð Keflvíkingurinn Magnús Ívar Guðfinnsson fyrstur til að ná þrennu í leik. Magnús var þá með 17 stig, 10 fráköst og 10 stolna bolta í sigri í Keflavík. Keflvíkingar áttu báðar þrennurnar þetta tímabil, því fyrstu hefðbundnu þrenn- unni í úrvalsdeild karla náði Keflvíkingur- inn Jón Kristinn Gíslason í leik á móti KR 17. nóvember 1988 þegar hann var með 18 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar. Milton Bell, sem lék með Skagamönnum tímabilið 1995-96, varð fyrsti leikmaðurinn til að ná tveimur þrennum á sama tíma- bili en því náði hann með tíu daga millibili í nóvember 1995. Pavel Ermonlinskij var hins vegar fyrsti Íslendingurinn til að ná því þegar hann spilaði seinni hluta 2009- 2010 tímabilsins með KR-liðinu. Pavel Ermonlinskij var með fimm þrenn- ur síðasta tímabil sitt í úrvalsdeildinni (2010-11) og sló því sitt eigið met með því að ná sjö slíkum. Bæði Emil Barja (3. sæti með 4) og Matthías Orri Sigurðarson (4. til 8. sæti með 3) komust inn á topp fjögur á listanum með frammistöðu sinni í vetur. Emil komst líka í sögubækurnar Fram undan er úrslitakeppnin þar sem Pavel og Emil gætu bætt við „þrennuafrek“ sín en tímabilið hjá Matthíasi er hins vegar á enda. Bæði Pavel og Emil náðu þrennum á móti mótherjum sínum í átta liða úrslitunum, þar á meðal Pavel í báðum leikjum KR við Snæfell. Emil náði hins vegar þrennu í seinni leikn- um á móti Njarðvík og í leiknum á eftir setti hann sinn stimpil í sögubókina með því að vera fyrstur í sögunni til að ná þrennu á móti báðum Reykjanesbæjarliðunum á sömu leik- tíð. ooj@frettabladid.is Þrennuveturinn mikli Leikmenn Dominos-deildar karla settu glæsilegt met yfi r fl estar þrennur á einu tímabili í úrvalsdeildinni og þrír íslenskir leikmenn komust inn á topplistann yfi r þá sem hafa náð fl estum þrennum á einu tímabili. ➜ Flestar þrennur á einu tímabili Pavel Ermolinskij, KR 2013-2014 7 Pavel Ermolinskij, KR 2010-2011 5 Emil Barja, Haukum 2013-2014 4 Matthías Orri Sigurðarson, ÍR 2013-2014 3 Brenton Birmingham, Grindavík 1999-2000 3 Nate Pondexter, Hamri 2001-2002 3 Pavel Ermolinskij, KR 2009-2010 3 Maurice Miller, Tindastól 2011-2012 3 ÓTRÚLEGUR Pavel Ermolinskij er kominn með sjö þrennur á tímabilinu sem er met. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ➜ Þessir þrír voru duglegastir á þrennuvaktinni í Dominos-deildinni í vetur 2014 2013 2012 2011 2010 2009 2008 2007 2006 2005 2004 2003 2002 2001 2000 1999 1998 1997 1996 1995 1994 1993 1992 1991 1990 1989 2 1 1 1 1 1 1 1 1 12 2 2 22 4 45 5 5 5 5 5 3 3 3 íslenskir leikmenn erlendir leikmenn 1 1 6 6 Pavel Ermolinskij 7 þrennur 27 ára og 202 sm leikstjór- nandi úr Emil Barja 4 þrennur 22 ára og 192 sm leikstjórnandi úr Haukum Matthías Orri Sigurðarson 3 þrennur 19 ára og 185 sm leikstjórnandi úr ÍR 2 15 17 55 3 2 4 77 FÓTBOLTI Bandaríski framherjinn Chuckwudi Chijindu, betur þekktur sem Chuck, samdi við Þór til eins árs og spilar með liðinu í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í sumar. Þetta er mikill liðstyrkur fyrir norð- anmenn en Chuck spilaði með Þór í Pepsi-deildinni í fyrra og skoraði þá tíu mörk í átján leikjum. Þá skoraði hann fimm mörk í níu leikjum fyrir liðið í 1. deildinni árið 2012. Hann er væntanlegur til landsins í apríl en Þórsarar leika á meðal þeirra bestu annað árið í röð eftir að þeir héldu sér uppi sem nýliðar á síðustu leiktíð. - tom Chuck spilar með Þórsurum í sumar MARKAVÉL Chuck skoraði 10 mörk í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK FÓTBOLTI Stjörnunni hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni en liðið gerði í gær tveggja ára samning við Pablo Punyed, 24 ára leik- mann frá El Salvador. Punyed hefur spilað hér á landi undanfarin tvö ár, fyrst með Fjölni í 1. deildinni og svo Fylki í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Hann skoraði eitt mark í ellefu leikjum fyrir Árbæinga í fyrra en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum. Þetta eru góð tíðindi fyrir Stjörnumenn sem hafa misst nokkra fastamenn frá síðustu leiktíð. Liðið fékk einnig danska varnarmanninn Niclas Vemmel- und frá OB í síðasta mánuði. - esá Samdi við Stjörnumenn ÚRSLIT DOMINOS-DEILD KVENNA UNDANÚRSLIT, 2. LEIKUR VALUR - SNÆFELL 78-66 (41-32) Valur: Anna Alys Martin 38/7 fráköst/5 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir 13, Kristrún Sigurjónsdóttir 8, Ragnheiður Benónísdóttir 7/4 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6/5 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 2/8 fráköst/5 stoðsending- ar, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 2, María Björnsdóttir 2/4 fráköst. Snæfell: Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 20/9 fráköst, Eva Margrét Kristjánsdóttir 15/7 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 11/6 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 10/8 fráköst/9 stoðsend- ingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 8/15 fráköst/5 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 2. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1. Liðin mætast næst annað kvöld klukkan 19.15. KEFLAVÍK - HAUKAR 65-81 (32-30) Keflavík: Diamber Johnson 31/8 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 11/5 fráköst, Bryndís Guðmunds- dóttir 9/6 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 8, Lovísa Falsdóttir 5, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 1/8 fráköst. Haukar: Lele Hardy 21/15 fráköst/5 stoðsendingar, Auður Íris Ólafsdóttir 18/8 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 12/4 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 7, Íris Sverr- isdóttir 4, Inga Rún Svansdóttir 2, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2, Lovísa Björt Henningsdóttir 2. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Hauka. Liðin mætast næst annað kvöld klukkan 19.15. KÖRFUBOLTI Valur nýtti sér fjarveru Chynnu Brown í liði Snæfells og vann leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna í gær, 78-66. Staðan í undanúrslitarimmu liðanna er því 1-1. Snæfellingar byrjuðu betur en Valur komst yfir eftir góðan sprett undir lok fyrri hálfleiksins og lét for- ystuna aldrei aftur af hendi. Haukar eru í góðri stöðu í hinni rimmunni og leiða 2-0 gegn Keflavík. Valskonur jöfnuðu metin en Haukar standa vel að vígi SYSTUR Guðrún Gróa og Helga Margrét Þor- steinsdætur léku saman með Snæfelli í gær. Helga Margrét er þekktari fyrir afrek sín í frjálsum íþróttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ALLI FÓTBOLTI Didier Drogba snýr aftur á sinn gamla heimavöll er Chelsea tekur á móti tyrkneska liðinu Galatasaray í síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Drogba er mikil hetja í augum stuðningsmanna Chelsea en þessi 36 ára kappi var á mála hjá liðinu í átta ár og var spurður í gær hvað hann myndi gera ef honum lánaðist að skora sigurmarkið í leiknum. „Ég myndi líklega ekki fagna miðað við alla þá virðingu sem ég ber fyrir félaginu. En ég verð ánægður ef við vinnum leikinn,“ sagði Drogba. Real Madrid tekur svo á móti þýska liðinu Schalke en Madrídingar eru svo gott sem komnir áfram eftir 6-1 sigur í fyrri leiknum. Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, ætlar þrátt fyrir það ekki að hvíla Cristiano Ronaldo í kvöld. Leikirnir hefjast klukkan 19.45. - esá Drogba mun líklega ekki fagna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.