Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 54
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 BÆKUR ★★★ ★★ Fuglaþrugl og naflakrafl Þórarinn Eldjárn– Myndir: Sigrún Eldjárn VAKA-HELGAFELL Systkinin Sigrún og Þórarinn Eld- járn hafa nú sent frá sér spán- nýja myndlýsta ljóðabók fyrir börn, Fuglaþrugl og nafnakrafl. Samstarf þeirra á þessu sviði er landsmönnum vel kunnugt og má sem dæmi nefna bækurn- ar Óðfluga og Heimsk ringla sem tóku þátt í uppeldi kyn- slóðarinnar sem nú er farin að stofna fyrirtæki og gefa sjálf út bækur. Þær bækur hafa verið endurút- gefnar nokkr- um sinnum en vissulega er gleðiefni þegar ný systir fæð- ist. Fuglaþrugl og naflakrafl er eins og nafnið gefur til kynna stútfull af alls konar bulli. Hug- myndaflug Þórarins virðist óþrjót- andi brunnur og það sem honum dettur í hug er með ólíkindum. Oft er eins og ljóðaformið leiði hann áfram, eitt orð kalli á annað og úr verði einhvers konar heilaspuni sem Sigrún tekur svo við og mynd- lýsir. Augljóst er að bæði hafa þau gaman af leiknum og það skín í gegn við lestur bókarinnar. Þórarinn er hagyrðingur mikill, þekkir bragfræðina inn og út og ætla má að vísurnar velti upp úr honum. Og stundum [nú er ungur gagnrýnandi á hálum ís] er eins og það hafi hreinlega gerst, því sjáanlegur munur er á ljóðunum hvað innihald og framsetningu varðar. En því til varnar má segja að þannig breikki hugsanlega les- endahópur bókarinnar, einföldustu ljóðin höfða ekki til foreldranna og orðaflækjur hinna flóknustu kunna börnin kannski ekki jafn vel að meta. Glettni og gamansemi einkenna ljóðin umfram annað. Þórar- inn er, líkt og flestir vita, afar vel máli farinn og hann hefur líka skoð- anir á málfari landans – ja eða öllu heldur dýranna – en hvimleið þykir honum lenska sú að haninn segi gaggalagú og kýrnar segi mu, því hið rétta sé að sjálfsögðu að kýrnar segi MÖ og haninn gaggalagÓ. Sjálf- ur leikur hann sér með málið og er óhræddur við að nota slangur og styttingar, en þar hann hefur vissulega margt til síns máls. Orð eins og „sneddí“ er tilbrigði við málið sem ætti ekki að deyja út ógleymt, þrátt fyrir að vera ekki skjalfest og þinglýst í Íslenskri orðabók. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NIÐURSTAÐA: Ljóðabókin, uppfull af hugarórum og heilaspuna, er tilvalin til að auka orðaforða barna og kynna bragfræðina fyrir þeim. Einstök glettni í orðum og myndum. Bullið í honum Þórarni ÞÓRARINN ELDJÁRN „Hugmyndaflug Þórarins virðist óþrjótandi brunnur og það sem honum dettur í hug er með ólíkindum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Listasafn Íslands fagnar 130 ára afmæli safnsins í ár og efnir til afmælishátíðar með fjölbreyttri dagskrá sem mun standa út árið. Í tilefni afmælisins býður Lista- safn Íslands allri þjóðinni ókeypis aðgang í safnið dagana 16. til 19. október, um leið og Vasulka-stofa verður formlega opnuð sem ný deild í safninu til heiðurs Steinu og Woody Vasulka. Safnið gefur einn- ig út bók um Vasulka-hjónin sem er fyrsta íslenska útgáfan um verk þeirra. Opnun Vasulka-stofu á sér langan aðdraganda og það er Krist- ín Scheving sem hefur haft veg og vanda af framkvæmd hennar. „Innan safnsins hefur árum saman átt sér stað umræða um að þar þyrfti að gera meira fyrir raf- listir og það er ótrúlega gleðilegt að við skulum vera búin að koma stofunni á legg,“ segir Kristín. „Ég hef verið að vinna með Steinu í nokkur ár og við fórum að ræða möguleikann á því að opna svona stofu 2010 eða 2011. Ræddum það síðan við Halldór Björn Runólfs- son, forstöðumann Listasafns Íslands, og hann tók svo vel í þessa hugmynd, enda hafði hann sjálfur viljað gera meira fyrir raflistir og list Vasulka-hjónanna, að nú er hún orðin að veruleika, öllum til mikillar ánægju.“ Í tengslum við opnun Vasulka-stofu verður gest- um boðið að skoða stóra innsetn- ingu af verkum Steinu og Woodys Vasulka í safninu. Kristín segir fleiri lönd vera í sömu hugleiðingum varðandi verk Vasulka-hjóna og raflist almennt. „Í fæðingarlandi Woodys, Tékk- landi, stefna menn á að opna slíka stofu og hafa fylgst vel með því sem við erum að gera hérna. Í Vasulka-stofu verða síbreytileg- ar sýningar og við erum að sanka að okkur efni, bæði um þeirra verk og svo er stefnan að fara að safna upplýsingum um öll íslensk raflistaverk. Norskir aðilar sem eru staddir hér núna í tilefni af málþinginu fengu ríkisstyrk til að gera það sama þar. Verkefni þeirra heitir Videokunstarkivet og þeir eru í óða önn að safna upplýs- ingum um öll norsk raflistaverk. Þannig að við erum að skoða það sem þar er búið að gera og eins á öðrum Norðurlöndum.“ Kristín segir varðveislu raf- listaverka hafa verið upp og ofan í gegnum tíðina. „Því miður þá gleymist stundum að uppfæra og halda í verk. Það hefur stundum verið vandamál að finna gömul verk, þau hafa kannski lent í köss- um niður í kjallara eða upp á háa- loft eftir að listamenn fara frá okkur og það er orðið mjög brýnt að gera þetta núna.“ Steina og Woody hafa sjálf haldið vel utan um sín verk, að sögn Kristínar, þannig að þau eru aðgengileg. „Þau hafa verið mjög dugleg að halda utan um allar upp- lýsingar. Ég fékk afhent skjal með 1.400 færslum um verk og ýmis- legt sem þeim tengist, heimildar- myndir og annað, þannig að ég hef góða yfirsýn yfir þeirra verk. Í framtíðinni er svo stefnt að því að setja öll raflistaverk á stafrænt form. fridrikab@frettabladid.is Átak í söfnun og varð- veislu rafl istaverka Vasulka-stofa verður opnuð í Listasafni Íslands í dag til heiðurs Steinu og Woody Vasulka. Opnunin er liður í átaki safnsins til varðveislu og skráningar raf- og stafrænnar myndlistar. Kristín Scheving hefur yfi rumsjón með verkefninu. STÓR DAGUR Steina og Woody Vasulka verða viðstödd opn- unina í dag. Með þeim á myndinni er Kristín Schev- ing, sem hefur haft yfirumsjón með undir- búningnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLISVEISLA LISTASAFNS ÍSLANDS Fimmtudagur 16. október, kl. 16 OPNUN VASULKA-STOFU Í tilefni af 130 ára afmæli Listasafns Ís- lands verður Vasulka- stofa opnuð, sem deild í safninu, af Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmála- ráðherra. Um leið er gestum boðið að líta á stóra innsetningu af verkum Steinu og Woodys Vasulka í safninu. Listamenn- irnir verða viðstaddir athöfnina ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Föstudagur 17. október, kl. 12.15 HÁDEGISLEIÐ- SÖGN MEÐ SAFNSTJÓRA Hádegisleiðsögn með Halldóri Birni Runólfssyni, safnstjóra Listasafns Íslands, um Vasulka-stofu og innsetningu Vasulka- hjónanna. Laugardagur 18. október, kl. 11–17 ÞÉR ER BOÐIÐ Í AFMÆLIÐ MITT!– FJÖLSKYLDUDAGUR Í SAFNINU Kl. 11.30 Lifandi leiðsögn með sögum og tónum. Hlíf Sigur- jónsdóttir, fiðluleikari og dóttir listamanns- ins Sigurjóns Ólafs- sonar, leiðir gesti á ævintýralegan hátt um sýninguna Spor í sandi. Frá kl. 12.30 Vídeó- portrett: þátttöku- gjörningur. Vertu fyrir- mynd í verki Snorra Ásmundssonar. Kl. 13.00 „Við eigum afmæli í dag“ – afmælissöngur og kaka í boði fyrir gesti safnsins. Kl. 13.00 / 13.30 / 14.00 / 14.30 Innlit í listaverkageymslur safnsins. Ólafur Ingi Jónsson forvörður og Dagný Heiðdal, deildarstjóri listaverka- deildar, leiða gesti á bak við tjöldin. Kl. 16.00 Hugskot – Björk Viggósdóttir ræðir við gesti um verk sitt Samhljóm í Hugskoti, nýju fræðslu- og upp- lifunarrými safnsins. Takið þátt í skemmtilegri myndlistargetraun fyrir unga sem aldna– vegleg verðlaun í boði. Sunnudagur 19. október, kl. 11–17 SUNNUDAGUR Í SÖFNUNUM Safn Ásgríms Jóns- sonar, Bergstaða- stræti 74 Kl. 14.00 Rakel Pétursdóttir safna- fræðingur leiðir gesti um safn Ásgríms. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugar- nestanga Kl. 15.00 Birgitta Spur, fyrrverandi safn- stjóri, leiðir gesti um sýninguna Spor í sandi – Æskuverk Sigurjóns Ólafssonar. LILITH Úr vídeóverki Steinu Vasulka– Lilith 1987. MENNING VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ GRANDA OG MJÓDD DAG SEM NÓTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.