Akureyri - 20.03.2014, Side 20
20 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014
Af merkilegu korti
Ein dýrmætasta heimild sem til er
um Akureyrarkaupstað er kort frá
árinu 1809. Þar er landslagið dregið
upp með afar nákvæmum hætti og
gerð grein fyrir mannvirkjum af öllu
mögulegu tagi. Á kortinu má m.a.
sjá hús, girðingar, torfgarða, götu-
slóðir, vörður, örnefni og allskyns
kennileiti í náttúrunni.
Heiðurinn að þessum elsta
og merkilegasta uppdrætti
kaupstaðarins eiga tveir
Akureyringar. Þeir voru
reyndar af norskum upp-
runa og þar að auki land-
mælingamenn og lauten-
antar í danska hernum.
Vera þeirra á Akureyri var
liður í metnaðarfullu verk-
efni hersins í að gera sigl-
ingar út af Íslandsströnd-
um hættuminni. Í því skyni
var umræddum mönnum ætlað að
ferðast víða um land og halda áfram
við strandmælingar landsins sem
staðið höfðu yfir í nokkur ár.
Lautenantar koma til Akureyrar
Það var á köldum haustmánuðum
1807 að þreyttir og veðurbarðir
ferðalangar komu í kaupstaðinn
með farangur sinn í kistum og koff-
ortum. Ferðalagið frá Kaupmanna-
höfn hafði gengið afar illa. Hafís
lá við landið með þoku, kulda og
stórhættulegum siglingarskilyrð-
um. Hafís hafði reyndar legið við
ströndina mörg undanfarin sumur
og ástandið í landinu víða orðið afar
bágborgið. Grasspretta lítil, skepn-
ur horaðar og landsmenn óttuðust
yfirvofandi hungursneyð. Við þetta
bættist svo stríð í Evrópu sem gerði
siglingar hingað stopular.
Burt séð frá því þá
höfðu nú bæst við tvær
nýjar fjölskyldur í kaup-
staðinn. Annarsvegar
voru það lautenant Hans
Frisak 34 ára og kona
hans Magdalene Borck-
grevik 28 ára. Hins vegar
voru það lautenant Hans
Jacob Scheel 28 ára og
kona hans Anna Rebecca
Elisabet Sandberg 19 ára.
Koma þeirra hefur vafa-
laust verið mikið gleðiefni fyrir íbúa
Akureyrar því á þeim tíma bjuggu
aðeins um 40 sálir á eyrinni, þrátt
fyrir að Akureyri væri á þeim tíma
meðal stærsta þéttbýlisstaða Norð-
urlands. Þau fengu leigt yfirgefið
verslunarhúsnæði og settust þar að
með farangur sinn, tæki sín og tól.
Nýju heimkynnin.
Fyrsti veturinn á Akureyri var lang-
ur, harður og kaldur. Frisak var van-
ur þessum íslensku aðstæðum því
hann hafði starfað í mörg ár áður
við mælingar hér á landi. Þetta var
hins vegar fyrsta ferð Scheels og þá
má gera sér í hugarlund að konum
þeirra hafi nú litist misvel á sín nýju
heimkynni. Á grárri eyrinni stóðu
örfáar þyrpingar veðurbarðra timb-
ur- og torfhúsa en fyrir ofan báru
hálfgrónar brekkur við himin með
girðingarstubbum hér og hvar ásamt
nokkrum görðum. Aðeins var búið í
örfáum húsanna á eyrinni. Hitt voru
mannlausar vörubúðir, geymslur og
skemmur af ýmsum toga. Engar
bryggjur voru uppsettar en nokkrar
bátakænur lágu uppi á strandbakk-
anum.
Landmælingarmennirnir voru
báðir hæfileikaríkir. Frisak drátt-
hagur, vandvirkur og góður sam-
verkamaður. Scheel sprenglærður frá
Osló og hafði lagt sérstaka stund á
stærðfræði og mælingar. Þeir félagar
höfðu verið valdir sérstaklega hingað
til starfa vegna þekkingar sinnar á
fjallalandslagi, eitthvað sem kollegar
þeirra í Danmörku þekktu minna til.
Frisak og Scheel stunduðu allskyns
rannsóknir á Akureyri. Þeir skráðu
á hverjum degi niður ítarlegar upp-
lýsingar um veðurfar, s.s. hitastig,
vindafar, snjókomu og loftþyngd.
Þá stunduðu þeir einnig stjörnu-
athuganir, hnattstöðumælingar og
rannsökuðu skekkjur segulnála svo
eitthvað sé nefnt
Fyrsta kortið af Akureyri
Á árunum 1808 – 1809 mældu þeir
Frisak og Scheel Akureyri og ná-
grenni og bjuggu til afar vandað-
an uppdrátt. Til þess að allar mæl-
ingar yrðu sem nákvæmastar slógu
þeir saman fjöldamargar vörður
úr timbri á brekkubrúnunum ofan
kaupstaðarins og víðar til að setja
upp mælinet sitt.
Efst á kortinu hafa þeir teikn-
að inn Rögnvaldarhól, hæð eina í
Naustahverfi þar sem nú er Kletta-
tún. Í miðjum Rögnvaldarhól teikna
þeir þríhyrning með punkt í miðju en
þannig voru mælipunktarnir tákn-
aðir. Það gæti verið skemmtileg
dægradvöl fyrir íbúa Naustahverfis
að ganga á hólinn (þegar snjólétt er)
því mælipunkt þennan er þar enn að
finna. Þetta er lítill járnbolti múr-
aður fastur niður í klappirnar en
ofan á honum er þríhyrningsmerki
með punkti í miðjunni, alveg eins
og kortið sýnir. Rétt norðanundir
Rögnvaldarhól eru hinar gríðarstóru
mógrafir þar sem almenningur sótti
eldsneyti sitt um aldir. Á kortinu sést
hvernig Búðarlækur rennur inn í
miðjar mógrafirnar en hann kemur
ofan úr Naustatjörn. Lækurinn held-
ur síðan áfram í beygjum og sveigj-
um niður brekkurnar. Á leið sinni
sker hann skurði og gil í landslagið
og dregur efnið með sér til sjávar. Á
þeim stað þar sem lækurinn rennur í
Eyjafjörðinn hefur Akureyrin hlaðist
upp með tímanum. Kortið frá 1809
sýnir þessa landmótun ágætlega og
mun betur en við getum lesið úr nýj-
um kortum enda hefur landslagið
á Akureyri umbreyst þó nokkuð á
síðastliðnum 205 árum.
Á kortinu sést einnig hvernig þeir
hafa dregið upp bæina Eyrarland og
Naust með útihúsum sínum og tún-
görðum, sitt hvoru megin Búðargils-
ins. Frisak og Scheel létu heldur ekki
nægja að draga upp hús kaupstaðar-
ins heldur gerðu þeir jafnframt grein
fyrir efnivið þeirra. Vínrauði litur-
inn táknar t.d. timburhús en græni
torfhús. Þá hafa þeir samviskusam-
lega dregið upp glænýja kartöflu-
garða Levers kaupmanns norðan
við Búðarlækinn rétt ofan eyrinnar
en strandlínan sem sést á kortinu
er hér um bil þar sem Hafnarstræti
liggur í dag.
Hörmuleg tíð
Eins og komið hefur fram var
ástandið hér á landi hörmulegt á
þessum árum. Veturinn 1808-1809
var þar engin undantekning, bæði
kaldur og leiðinlegur. Hafís allstað-
ar við ströndina og skipakomur til
Akureyrar heyrðu nú alveg sögunni
til. Í Evrópu geysaði áfram stríð sem
aldrei fyrr og það fréttist seint og
síðar meir að Englendingar væru
nú búnir að sundursprengja Kaup-
mannahöfn og ræna af þeim öllum
skipaflota sínum. Frisak og Scheel
fengu nú engin frekari fyrirmæli frá
Danaveldi. Sem landmælingamenn
voru þeir orðnir einir og yfirgefnir á
Íslandi og hálfgerðir strandaglópar.
Nú valt allt á þeim sjálfum hvern-
ig framhaldið yrði. Í Eyjafirði voru
eintóm harðyndi og bændur voru
farnir að skera fé sitt til að missa
það ekki úr alveg úr hor. Frisak og
Scheel ákváðu að láta hér ekki staðar
numið og héldu strax og veður leyfði
út á land til frekari mælinga. Þeir
kvöddu konur sínar og börn og héldu
af stað frá Akureyri þegar liðið var
á júní 1809. Það mátti heita að kom-
ið væri sumar en tíðin var samt hin
versta, rigningarsöm og köld.
Innrás á Akureyri
Sumarið leið hægt og til-
breytingarlaust áfram í litla kaup-
staðnum. Það breyttist þó allt einn
dag um miðjan júlí þegar bæjarbúar
sáu einkennilegan hóp ríðandi manna
nálgast eyrina. Fremstur í flokki
sat vígalegur maður á hesti sínum
vopnaður pistólu og höggsverði en
á eftir honum riðu vopnaðir græn-
klæddir hermenn í bláum hempum.
Hersveitin átti erindi við þorpsbúa.
Kort Frisak og Scheels skyldu gerð
upptæk en ýmislegt fleira hékk á
spýtunni. En frá vopnaskaki því sem
fylgdi í kjölfarið verður sagt frá í
næsta blaði Grenndargralsins. a
GRENNDARGRALIÐ
KORT ÞEIRRA FRISAK og Scheel af
Akureyri dagsett árið 1809. Konunglega
bókhlaðan í Kaupmannahöfn.
ARNAR BIRGIR
ÓLAFSSON, liðsmað-
ur Grenndargralsins,
skrifar.