Austurland - 13.11.2014, Blaðsíða 4
13. Nóvember 20144
700IS Hreindýralandi
lokið í Sláturhúsinu
Dagana 25. október til 1. nóv-ember var videólistahátíðin 700IS Hreindýraland í Slát-
urhúsinu á Egilsstöðum. Hátíðin var
haldin í 9. sinn og var þemað í ár
ljóð á skjá, þar sem bæði var unnið
með listafólki sem vinnur með vídeó
og hljóð, en einnig sem vinnur með
texta og ljóð. Vídeoverk voru sett upp
um allt Sláturhúsið, eins og gert hefur
verið síðastliðin ár og var húsið sjálft
jafnvel notað fyrir sýningu utanhúss.
Verkin á sýningunni að þessu sinni
voru frá Íslandi, Finnlandi, Danmörku,
Frakklandi, Hong Kong, Þýskalandi
og Svíþjóð.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir myndlist-
arkona sem fyrir stuttu fékk verðlaun
og viðurkenningu úr Listasjóði Guð-
mundu S. Kristinsdóttur, fyrir fram-
lag hennar á sviði myndlistar, spilaði
ljóðaplötu sína á opnunarkvöldinu
og sýndi einnig vídeóverk sín. Snorri
Ásmundsson sýndi 50 portrait verk
og Sigga Björg Sigurðardóttir, Renaud
Perrin og 13 listamenn frá Hong Kong
sýndu vídeóverk í ýmsum rýmum í
Sláturhúsinu.
Tvær listakonur, þær Katarina Mis-
tall frá Svíþjóð og Marie Thams frá
Danmörku voru í listamannadvöl á
Fljótsdalshéraði, og þær heimsóttu
skóla á Héraði á meðan dvöl þeirra
stóð. Þær settu báðar upp verk sín í
Sláturhúsinu, en verkin voru blanda af
textaverkum, skúlptúrum og vídeólist.
Listrænn stjórnandi hátíðarinnar
er Kristín Scheving en hún opnaði
nýverið nýja raflistadeild í Listasafni
Íslands, sem heitir Vasulka-stofa.
Kristín er deildarstjóri þeirrar deildar.
Hefur hún reglulega sýnt vídeoverk frá
Hreindýralandshátíðinni í kaffistofu
Listasafns Íslands allt þetta ár.
Aðspurð sagði Kristín að hátíðin yxi
frá ári til árs en á tíu ára afmælinu á
næsta ári ætlaði hún að gefa út bók þar
sem farið yrði yfir sögu hátíðarinnar
frá upphafi. Hátíðin væri fyrir löngu
orðin víðfræg og búin að festa sig í sessi
og ólíklegt annað en að hún ætti eftir
að vera fastur hluti af menningarlífi
Austfirðinga og landsmanna allra um
ókomin ár.
LISTA-LJÓS Í MYRKRI
Í kvöld, fimmtudaginn 13. nóv-ember kl 18: 00, verður sýningin LiSTa-LJÓS Í MYrKri opnuð
á Hótel Héraði en þessi viðburður er
hluti af dagskrá Daga myrkurs sem
nú stendur yfir á Austurlandi. Um er
að ræða samstarfsverkefni þar sem
Lóa Björk , myndlistarmaður og list-
greinakennari í ME, hefur fengið til
liðs við sig í listsköpun nokkur ljóð-
skáld á Austurlandi ásamt Bjarna
Rafni tónlistarmanni og listanemum
í áfanganum Samtímalistir af list-
námsbraut ME. Skáldin sem taka
þátt í verkefninu eru Ásgrímur Ingi
Arngrímsson, Hrafnkell Lárusson,
Hulda Sigurdís Þráinsdóttir, Ingunn
Snædal, Sigurður Ingólfsson, Stefán
Bogi Sveinsson og Steinunn Friðriks-
dóttir. Þema verkefnisins er veturinn
og myrkrið og það hvernig tengja má
saman listgreinar eins og ljóðlist, tón-
list og sjónlistir.
Markmiðið er að kanna hvernig
má nýta skammdegið til uppsprettu
listsköpunar en ljósið og hið magn-
aða myrkur er útgangspunktarnir í
verkefninu. Lagt var til að ljóðskáldin
semdu ljóð þar sem veturinn væri í
aðalhlutverki eða nýttu eigin ljóð sem
tengjast því þema og í framhaldi af því
völdu nemendur sér ljóð til að vinna
með. Þegar undirbúningsferli og hug-
myndavinnu var lokið var farið í að
mynda verkin og vinna nánar með
textann og var hann þá ýmist lesinn
upp eða unninn á myndrænan hátt.
Nemendurnir vinna með ljóðin út frá
eigin hugmyndum með ýmsum hætti
þar sem blandað er saman líkamstján-
ingu og náttúrumyndum. Lóa hefur
hvatt þau til að fara ótroðnar slóðir í
myndsköpuninni og láta hugmynda-
flugið og þær myndir sem birtast þeim
í ljóðunum stjórna ferðinni. Listanem-
arnir hafa undanfarna daga verið að
mynda og klippa saman, ýmist leikin
atriði eða myndir teknar utanhúss í
mismunandi birtu og veðri.
Í kvöld má svo sjá afraksturinn þar
sem kvikmyndirnar verða sýndar, ljóð-
skáldin mæta og lesa upp milli þess sem
Bjarni Rafn leikur sér með raftóna sína
en hann er mjög efnilegur tónlistar-
maður. Hann hefur tekið þátt í hinum
ýmsu tónlistarviðburðum síðastliðin
ár og hefur meðal annars unnið með
hljómsveitinni Samaris.
Þess má einnig geta að í tengslum
við þetta verkefni gafst listanemendum
Lóu Bjarkar kostur á að kynnast
verkum, íslenskra og erlendra lista-
manna sem voru hér á vegum Krist-
ínar Scheving, stjórnanda hátíðarinnar
700.is. Hreindýraland nú á dögunum.
Þau fengu þannig innsýn í videóverk
þeirra en þema hátíðarinnar 700.is
nú var einmitt texti í mynd. Sú hátíð
var haldin í Sláturhúsinu en þar tóku
einnig á móti þeim 10 þýskir listahá-
skólanemar í masternámi og sýndu
þeim hvernig þau unnu verk sín og
voru þau ansi fjölbreytt. Lóa Björk
og Kristín Scheving hafa verið í sam-
starfi allt frá því videólistahátíðin 700.
IS hófst fyrir níu árum síðan og þar
hafa nemendur Listnámsbrautar ME
oft fengið að njóta góðs af en þeir hafa
tekið þátt í námskeiðum í videólist og
ýmsum spennandi verkefnum síðan sú
hátíð hófst hér á Austurlandi.
Ef vel gengur er stefnt að því að
verkið LJÓS Í MYrKri verði fram-
lag austfirskra listamanna og listnema
á Vetrarhátíð í Reykjavík 2015 þar
sem þemað þar er einmitt MaGNað
MYrKUr. Lóa Björk, höfundur ver-
kefnisins, hefur áður tekið þátt í þeirri
hátíð ásamt eiginmanni sínum Sigurði
Ingólfssyni með videóverkinu FLÆði,
sem varpað var upp á vegg í Sundhöll
Reykjavíkur við góðan orðstír. Þar
tengdu þau einmitt saman myndlist og
ljóð en verkið fjallaði um Lagarfljótið.
Á Vetrarhátíðinni í Reykjavík gefst
gott tækifæri til að kynna það sem við
hér á Austurlandi höfum fram að færa
í listsköpun og hver veit nema farið
verði með verkefnið enn lengra. Allt
er mögulegt. Menningarráð Austur-
lands hefur styrkt verkefnið og eru því
færðar þakkir fyrir það og sömuleiðis
Auði Önnu Ingólfsdóttur, hótelstýru
á Hótel Héraði, sem bauð hópnum
að halda þennan viðburð á Dögum
myrkurs í glæsilegu anddyri hótels-
ins. Lista- og ljóðaunnendur ættu ekki
að láta þennan viðburð fram hjá sér
fara en allir eru velkomnir og ókeypis
aðgangur. Lista-ljós í myrkri. Ljósmyndari: Elsa Katrín Ólafsdóttir
Fréttatilkynning frá Austurbrú:
Frumkvöðlasetur
rís á Djúpavogi
Frumkvöðlasetrið Djúpið var opnað á Djúpavogi 3. nóvem-ber síðastliðinn. Tilgangur set-
ursins er að styðja frumkvöðla við að
skapa ný atvinnutækifæri á Djúpavogi
og víðar á Austurlandi.
Það var síðastliðið vor sem Aust-
urbrú ses. , AFL Starfsgreinafélag
og Djúpavogshreppur undirrituðu
viljayfirlýsingu um stofnun frum-
kvöðlaseturs á Djúpavogi. Tilgangur
setursins er að styðja frumkvöðla við
að hrinda hugmyndum sínum í fram-
kvæmd og skapa ný atvinnutækifæri á
Djúpavogi og víðar í landshlutanum.
AFL Starfsgreinafélag leggur setr-
inu til að byrja með húsnæði í Sam-
búð, Mörkinni 12, á Djúpavogi auk
aðgangs að netttengingu. Djúpavogs-
hreppur leggur frumkvöðlasetrinu
til 250.000 kr. til að standa straum af
nauðsynlegum stofnkostnaði. Austur-
brú ses. veitir Djúpinu samræmda og
þverfaglega þjónustu tengda atvinnu-
lífi, menntun og menningu.
Efnt var til nafnasamkeppni í haust
til þess að finna frumkvöðlasetrinu
nafn. Alls bárust 33 tillögur að nafni
og varð nafnið Djúpið fyrir valinu.
Sem fyrr segir var Djúpið opnað
formlega í gær, 3. nóvember, og í
tilefni dagsins var boðið upp á nám-
skeiðið Sköpunarkjarkur sem byggt er
lauslega á bókinni Sköpunarkjarkur
eftir bræðurna Tom og David Kelly.
Kennari námskeiðsins var Karl Guð-
mundsson ráðgjafi í vöruþróun og
markaðsmálum og sóttu það fimmtán
nemendur.
Nánari upplýsingar um Djúpið
veitir Alfa Freysdóttir, verkefnastjóri
Djúpsins, í síma 894 8228 og í net-
fanginu frumkvodlasetur@djupi-
vogur.is
Horft inn í Djúpið á opnunarkvöldi.