Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 74
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 54
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir er fyrst
Íslendinga búin að tryggja sér þátttöku-
rétt á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016
en það gerði hún er hún setti nýtt Norður-
landamet í 200 m baksundi á Opna danska
meistaramótinu í sundi í fyrradag. Hún
synti þá á 2:09,86 mínútum og bætti þar
með Íslandsmet sitt í greininni um tæpa
hálfa sekúndu en lágmark Alþjóðasund-
sambandsins, FINA, inn á leikana í Ríó er
2:10,60 mínútur. Norðurlandametið, sem
var sex ára gamalt og í eigu Pernille Lar-
sen frá Danmörku, bætti hún um 0,41 sek-
úndu.
„Ég er himinlifandi með að hafa náð
þessu, alveg í skýjunum,“ sagði Eygló við
Fréttablaðið í gær en hún var þá nýbúin
að synda sig inn í úrslit í 50 m baksundi á
lokadegi mótsins.
Eygló virðist í afar góðu formi um þess-
ar mundir og stefnir á að bæta sig enn
meira á Íslandsmeistaramótinu [ÍM] í 50
m laug sem fer fram í Laugardalslauginni
10.-12. apríl.
„Ég gef venjuleg allt sem ég á í ÍM, þó
svo að það sé minni samkeppni en hér
úti, en ég er mjög spennt fyrir því að sjá
hvernig mér gengur,“ segir Eygló .
Léttir að vera búin
Eygló keppti á Ólympíuleikunum í Lond-
on árið 2012, þá aðeins sautján ára gömul.
Hún hafnaði þá í 20. sæti í 200 m baksundi
og miðað við að hún er enn að bæta sig í
greininni er ljóst að hún er líkleg til afreka
í Ríó.
„Það er vissulega léttir að vera búin að
ná lágmarkinu og nú þarf ég ekki að hafa
áhyggjur af því næsta eina og hálfa árið.
ÍM árið 2012 snerist eingöngu um að ná
lágmarki fyrir London og það var mikil
pressa á mér þá. Nú get ég fremur einbeitt
mér að tækninni og öðrum þáttum,“ segir
hún. „En auðvitað stefni ég mun hærra en
að ná bara lágmarkinu.“
Hugurinn getur gert margt gott
Hún segist hafa breytt aðeins til í æfingum
fyrir þetta keppnistímabil og sinnt æfing-
um „á þurru landi“ betur samhliða æfing-
um í lauginni. „Ég hef lyft meira og gert
ýmislegt á þurru landi sem hjálpar mikið
til. Þá er ég reynslumeiri líka sem hjálpar
til, enda getur hugurinn gert margt gott
en líka margt slæmt,“ segir hún. „En heilt
yfir líður mér mjög vel og ég hlakka til að
koma heim og æfa.“
HM í 50 m laug fer fram í Kazan í Rúss-
landi í sumar og þar verður Eygló Ósk á
meðal keppanda og stefnir hún hátt. Sem
stendur er Eygló með fimmta besta árang-
ur heimsins í 200 m baksundi og þann
næstbesta í Evrópu.
Eygló endaði síðasta ár af krafti er hún
vann allar sex einstaklingsgreinar sínar á
ÍM í 25 m laug og bætti hún als níu Íslands-
met á árinu. Nýja árið byrjar vel og og átti
hún von á því að ná svo góðum árangri svo
snemma á tímabilinu.
„Ég er aðeins á undan áætlun og það
boðar bara gott. Ég býst svo við að bæta
mig enn meira í sumar og ég vona innilega
að ég geri það. Þetta lítur vel út.“
eirikur@frettabladid.is
Vil meira en að ná bara lágmarkinu
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi bætti Norðurlandametið í 200 m baksundi á Opna danska meistaramótinu í sundi í fyr-
radag. Með því tryggði hún sér bæði þátttökurétt á HM í Kazan í Rússlandi sumar og í Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu á næsta ári.
RÚSSLAND OG RÍÓ Eygló er komin með lágmörk á næsta HM sem og næstu Ólympíuleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI „Heilsan hefur oft
verið betri,“ segir fyrirliði ÍBV,
Magnús Stefánsson, en lukkan
hefur ekki beint leikið við hann í
vetur.
Hann fékk heilahristing fyrr
í vetur og svo lenti hann líka í
árekstri í Vestmannaeyjum og
hefur vart verið góður síðan.
Óttast er að Magnús sé kviðslit-
inn en hann ætti að fá það staðfest
í dag. Fari svo þá er tímabilið hjá
honum fokið út um gluggann og
hann missir af úrslitakeppninni.
„Ég er talsvert kvalinn og á erf-
itt með gang. Þeir segja að ein-
kenni bendi til þess að ég sé kvið-
slitinn,“ segir Magnús en hann
yrði þá annar leikmaður ÍBV sem
kviðslitnar í vetur. Sindri Haralds-
son er einnig kviðslitinn.
„Þetta var nokkuð harkalegt bíl-
slys sem ég lenti í og einn læknir
hefur tengt það við meiðslin mín
í dag. Ég var farþegi í bíl og við
fengum annan bíl inn í hliðina.
Þetta var algert óhapp.“
Magnús var þá á leiðinni upp
á flugvöll í Eyjum að fljúga með
liðinu í leik. Hann fór með liðinu
þrátt fyrir slysið en þegar hann
byrjaði að hita upp fór hann að
svima og þá var hann settur í
hvíld. Engin áhætta tekin.
„Ég hef verið frekar slæmur
eftir slysið enda fékk ég talsvert
höfuðhögg. Þetta er mjög svekkj-
andi en liðið má ekki við neinum
skakkaföllum. Ég prófaði að spila
einn leik en var með verki,“ segir
Magnús, en talið er að hann hafi
fengið heilahristing í slysinu.
„Það er þá í annað sinn því ég
fékk líka höfuðhögg og heilahrist-
ing fyrr í vetur. Það var fyrir pás-
una í deildinni og ég fékk því tíma
til að jafna mig.“
Magnús er ekkert allt of bjart-
sýnn á að spila meira í vetur.
„Ég get ekki hreyft mig nokk-
urn skapaðan hlut núna. Ef ég er
kviðslitinn þá er þetta líklega búið.
Þetta er búið að vera erfitt tímabil
með meiðslin en mér tókst þó samt
að vinna bikarinn með ÍBV sem
var ágætt. Við viljum samt meira
þó svo það hafi verið á brattann að
sækja í síðustu leikjum.“ - hbg
Búinn að fá tvisvar
sinnum heilahristing
Tímabilið er líklega búið hjá Magnúsi Stefánssyni.
LEMSTRAÐUR Magnús hefur lent í miklum skakkaföllum í vetur en náði þó að
verða bikarmeistari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er
verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn
í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi
kr. 98.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M)
og kaffihúsa.
Næturlíf eins og það gerist best.
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint flug frá Keflavík og Akureyri
14.-17. maí
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
9
-B
C
D
0
1
4
5
9
-B
B
9
4
1
4
5
9
-B
A
5
8
1
4
5
9
-B
9
1
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K