Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 13
RITST JÓRNARGREIIUAR Að fá biskup í augað Miklar umræður hafa spunnizt í kjölfar alvarlegra höfuðáverka sem hlutust í hnefaleikakeppni hérlend- is í nóvember 2003, og ekki að ófyrirsynju. Það var ekki spurning um hvort slíkt myndi gerast heldur hve- nœr. Þrjár atlögur voru gerðar að því á alþingi á síð- asta kjörtímabili að fá áhugamannahnefaleika lög- leidda á íslandi og eftir heiftarlegar sennur þar sem daufheyrzt var við öllum skynsamlegum rökum gegn málinu var það því miður samþykkt í febrúar 2002. Undirrituð sat á þingi það kjörtímabil fyrir Reykvík- inga og var eini læknirinn á þingi og talaði þrjá langa og þrjá breiða svo til höfuðáverka af þessu tagi þyrfti ekki að koma. Þrátt fyrir það var málið kýlt í gegn í þremur lotum. Höfuðáverkar koma læknum við. Það er skylda þeirra að vara við hættulegum áverkum og reyna eftir fremsta megni að fyrirbyggja þá. Höfuðáverkar koma víða fyrir, til dæmis í íþróttum en þá yfirleitt sem slys því sjaldnast er gert ráð fyrir því í íþróttum að högg komi á höfuð. Þessu er öðruvísi varið í hnefaleikum. Högg á höfuð er hluti af leiknum og flestir boxarar segja að verði ekki leyft að slá í höfuð þá sé ekki leng- ur um box að ræða. í atvinnumannahnefaleikum eru stórar fjárhæðir með í spilinu eins og öllum er ljóst. Höfuðhögg í keppni geta farið leynt ef keppandinn leitar ekki hjálpar, fer ekki til læknis, neitar einkenn- um eða hafnar rannsóknum af því að þá verður hon- um meinað að taka þátt í keppnum um hríð. Áhuga- mannahnefaleikar urðu til upp úr atvinnumanna- hnefaleikum og er nokkur munur á þessu tvennu. Flestar breytingar hafa orðið til góðs. Lotur eru styttri og færri, glófarnir öðruvísi og skylt er að bera höfuðhlífar sem þróaðar hafa verið þannig að áverk- um á ytra byrði höfuðs og augu hefur fækkað til muna. Það sem ekki hefur breytzt eru líkur á heila- áverkum og afleiðingar þeirra. Högg á höfuð getur skaðað heilann varanlega af því að við högg hreyfist heilinn til inni í höfuðkúpunni og viðkvæmir vefir hans geta skaddazt hvort sem hjálmur er til staðar eða ekki. Þess vegna geta áverkar á heila orðið alvar- legir hver sem aðdragandinn er. Þuríður Jónsdóttir taugasálfræðingur ritaði grein í Morgunblaðið 15. desember sl. um nýjar rannsóknir (2003) sem sýna að heilinn starfar óeðlilega jafnvel í kjölfar þess sem telja má vægan heilaskaða. Keppni í áhugamannahnefaleikum á að fara fram í viðurvist læknis, þótt mér sé ekki ljóst hvort eftir því sé farið hér á landi, en þar er hvort sem er um falskt öryggi að ræða, einkum hvað áverka á heila snertir. Þegar högg hefur lent á höfði hefur heilinn kannski þegar skaðazt. Þá þarf vel útbúin taugaskurðdeild að vera í fárra mínútna fjarlægð frá keppnisstað. Al- þjóðasamtök lækna hafa samþykkt að beila sér fyrir banni á hnefaleikum og Evrópusamtök lækna tóku undir þá áskorun haustið 2001. Læknasamtök margra landa hafa tekið afstöðu gegn hnefaleikum og má meðal annars nefna að brezka læknafélagið hefur sýnt málinu sérstakan áhuga og eru harðorðar álykt- anir þess sérlega athyglisverðar. Læknafélag Islands hefur sömuleiðis tekið afdráttarlausa afstöðu gegn hnefaleikum. Þar til bann við boxi nær fram að ganga hefur því verið beint til Alþjóðaólympíunefndarinnar og boxsambanda um allan heim að bannað verði að slá í höfuð þegar keppt er í boxi, bannað að slá fyrir ofan viðbein. Segja má að fyrirmyndin komi frá þeirri reglu að bannað sé að slá fyrir neðan beltisstað, en hún kom án efa til vegna þess að högg undir beltisstað getur skaðað ytri kynfæri. Öllum þykir slfkt bann sjálfsagt. Hnefaleikanefnd ÍSÍ hefur ákveðið að herða reglur hérlendis vegna atviksins í nóvember en á þeirri ákvörðun eru vankantar sem Leifur Jónsson læknir fjallaði skilmerkilega um í grein í Morgunblaðinu 15. desember 2003 og þarf engu við orð hans að bæta. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að við úttekt á áverkum og slysum skuli menn telja fjölda tilvika án þess að taka tillit til þess hve margir stundi tiltekið at- hæfi, eða þess tíma sem keppni tekur og svo framvegis. Sé dæmið reiknað á þann hátt, eins og til dæmis brezka læknafélagið hefur gert, kemur í ljós að hnefaleikar, bæði atvinnumanna- og áhugamannahnefaleikar, eru svo til efst á blaði yfir hættulegt athæfi. í bandarískri slysaskrá sem mikið hefur verið vitnað til lentu hnefa- leikar hins vegar neðarlega, þar á meðal á eftir klapp- stýrum, en það eru ungar stúlkur sem þramma um til skrauts í upphafi kappleikja í amerískum fótbolta og ekki ljóst af hverju þær ættu að verða fyrir hnjaski yfirleitt, hvað þá að það geti verið sambærilegt við höfuðáverka í hnefaleikum! í sjónvarpinu laugardaginn 13. desember síðast- liðinn gerði Spaugstofan óspart grín að þeirri fullyrð- ingu að slys ættu sér stað í öllum íþróttum. Þar á með- al var nefnt að skákmenn gætu slasazt ef þeir féllu fram á taflborðið, þeir gætu fengið biskupinn í augað. Mér finnst nauðsynlegt að kalla hlutina sínu rétta nafni, kalla slys slys og íþrótlir íþróttir. Ég vek athygli á áliti brezka læknafélagsins sem telur box ekki vera íþrótt og undirstrika að áverkar sem hljótast af hnefa- leikum geta ekki taiizt slys. Ég hvet alla lækna með sómatilfinningu til að taka ekki þátt í þeim hráskinns- leik sem box er. Að lokum skora ég á ÍSÍ að taka mark á því fagfólki sem bezt þekkir til höfuðáverka og afleiðinga þeirra og róa að því öllum árum að bannað verði að slá fyrir ofan viðbein í hnefaleikum. Lokatakmarkið hlýtur þó að vera að einn góðan veðurdag heyri hnefaleikar sögunni til. Karín Fjeldsted Höfundur er heimilislæknir. Læknablaðið 2004/90 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.