Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 11
RITSTJÓRNARGREINAR Að rata um frumskóginn Flestir taka það sem sjálfgefið að öll börn fæðist heil- brigð og þroskist og dafni eðlilega. Því miður er þetta ekki alltaf svo einfalt. Sum börn fæðast með fötlun sem getur verið ljós frá upphafi eða birtist á fyrstu árum ævinnar. Önnur verða fyrir áföllum, svo sem sjúkdómum eða slysum, sem geta haft alvarlegar af- leiðingar í för með sér. Með aukinni þekkingu og tækniframförum á sviði læknavísinda lifa fleiri börn af nú en áður. Má þar nefna mikla fyrirbura og börn sem greinast með flókna og alvarlega sjúkdóma sem þarfnast erfiðrar og flókinn- ar meðferðar. Þessi börn glíma oft við umtalsverðan heilsuvanda og/eða vanda á sviði þroska og hegðunar síðar meir á lífsleiðinni (1). Nýleg íslensk rannsókn á afdrifum lítilla fyrirbura sýnir að við fimm ára aldur býr meirihluti þeirra við umtalsverð þroskafrávik en fjórðungur þeirra er óaðgreinanlegur frá jafnöldrum (2). Fleiri börn greinast með einhverfu en áður (3) og algengi hegðunarraskana, svo sem ofvirkni, virðist hafa aukist til muna hérlendis sem víðar. Börn með frávik í þroska og/eða hegðun þurfa á sérstakri þjónustu að halda sem er mismikil allt eftir eðli og umfangi vandans. Snemmtæk íhlutun skiptir máli fyrir framtíðarhorfur þessara barna (4). Því fyrr sem gripið er inn í því betra fyrir barnið og fjölskyldu þess. Til að meðferð verði markviss þarf greiningu á þroska og hegðun barnsins. Meðferðin miðar að því að bæta þroskastöðu, hegðun og líðan barnsins og styðja fjölskylduna. Þjónustan fer fram ýmist innan skólakerfisins (í leikskólum og grunnskólum), á stofn- unum eða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Sum börn þurfa hjálpartæki, sérútbúna bfla og/eða sér- hannað húsnæði. Foreldrar þurfa ráðgjöf og stuðning, bæði félagslegan og fjárhagslegan. Þeir sérfræðingar sem veita þjónustuna koma frá mörgum stofnunum og mismunandi kerfum. Að minnsta kosti þrjú ráðu- neyti koma að málefnum barna með sérþarfir, heil- brigðis-, félagsmála- og menntamálaráðuneytið. Til hagræðingar má skipta þjónustunni í fyrsta, annað og þriðja stig þar sem heilsugæsla, leikskólar og grunn- skólar eru á fyrsta stigi. A öðru stigi eru margir mi- smunandi aðilar, svo sem sjálfstætt starfandi sérfræð- ingar, Miðstöð heilsuverndar barna og sérfræðingar leikskóla og skólaskrifstofu. Sérhæfðar stofnanir, svo sem Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Barna- og unglingageðdeild, Barnaspítali Hringsins og barna- deild FSA, eru á þriðja stigi en þeim er ætlað að sinna flóknustu tilvikunum. Fleiri stofnanir og sérfræðingar sinna málefnum barna með sérþarfir, svo sem Heyrn- ar- og talmeinastöð íslands, Sjónstöð, Félagsþjónust- an, Svæðisskrifstofa málefni fatlaðra og Trygginga- stofnun ríkisins. Misjafnt er hvar og hvenær grunur vaknar um frá- vik í þroska eða hegðun. Áhyggjur geta vaknað hjá foreldrum, við skimun í ung- og smábarnavernd, í leikskóla eða í grunnskóla. Það getur verið tilviljana- kennt hvar frumgreining, það er fyrsta greining, á vanda barnsins fer fram. Hún getur farið fram innan skólakerfisins sem samkvæmt lögum á að sinna grein- ingu, ráðgjöf og meðferð (5), hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum og/eða hjá greiningarteymum innan heilsugæslunnar. Sama barnið getur þurft athugun hjá barnalækni, gjarnan sérhæfðum barnalækni eða barnageðlækni. Það þarf þroskamat hjá sálfræðingi og ef til vill fleiri fagaðilum, svo sem hjá talmeinafræð- ingi, sjúkraþjálfara og/eða iðjuþjálfa. Heyrnarmæling og athugun hjá augnlækni er gjarnan hluti af grein- ingarferlinu. Foreldrar þurfa ráðgjöf og stuðning til dæmis hjá félagsráðgjafa og/eða sálfræðingi. Sumum börnum þarf síðan að vísa áfram á þriðja stigs stofn- anir (GRR, BUGL) í frekari athuganir, ráðgjöf og meðferð. Athugunaraðilar geta þannig verið allmarg- ir og foreldrar geta þurft að fara á marga mismunandi staði. Á örfáum stöðum á landinu, fyrir utan GRR og BUGL, eru þverfagleg teymi með sérfræðingum sem þarf til að greining geti farið fram á einum og sama staðnum. Má þar nefna Greiningarteymi á Mið- stöð heilsuverndar barna, Ofvirkniteymi á Akranesi, sem er samstarfsverkefni skólaskrifstofu og heilsu- gæslu og þroskateymi á barnadeild FSA. Hjá flestum greiningar- og meðferðaraðilum er biðtími langur, frá nokkrum vikum upp í marga mánuði. Þá er allur gangur á því hvort viðkomandi fagaðilar hafa samráð sin á milli og nýta niðurstöður hvers annars barninu til góða í meðferð og ráðleggingum. Reyndar eru athug- unaraðilar og meðferðaraðilar stundum ómeðvitaðir um hvað aðrir eru að gera og vita ekki hver af öðrum. Sama barnið getur verið á bilista á mörgum stöðum án þess að foreldrar eða aðrir geri sér grein fyrir því. Oftar en ekki er enginn einn sem hefur góða heild- aryfirsýn málefni barnsins og enginn einn ber ábyrgð á meðferð og eftirfylgd. Þegar kemur að meðferð er reynt að koma sérúrræðum, þjálfun og sérkennslu sem mest inn í leikskóla og grunnskóla. Hins vegar Katrín Davíðsdóttir Höfundur er barnalæknir í Greiningarteymi Miðstöðv- ar heilsuverndar barna og formaður Félags íslenskra barnalækna. Læknablaðið 2004/90 739
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.