Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR Að skima eftir ristilkrabbameini Hvers vegna, hvernig og hvenær? Á undanförnum árum hefur víða verið rætt um ristilkrabbamein þar eð niðurstöður stórra slembi- rannsókna (1-3) hafa sýnt að unnt er að fækka dauðsföllum af völdum sjúkdómsins með því að skima eftir blóði í hægðum. Þá eru vísbendingar um að ekki skipti máli hvaða leitaraðferð sé beitt (blóðskimun í hægðum, stutt ristilspeglun, alrist- ilspeglun eða röntgenmynd af ristli), allar skili nokkrum árangri, en mismiklum. Margt bendir til að besta rannsóknin sé alristilspeglun. Sú rannsókn krefst verulegs undirbúnings, dýrs tækjabúnaðar og flókins, sérmenntaðra starfskraftra, og góð aðstaða þarf að vera fyrir hendi. Rannsóknin sem kostar um 30 þúsund krónur er ekki án fylgikvilla (hol- götun, blæðing), en alvarlegir fylgikvillar sjaldgæfir (dauðsföll 0,01-0,03%). Innan fárra ára er að vænta niðurstaðna úr slembirannsóknum varðandi stutta ristilspeglun (sigmoidoscopy). Skoðunin er takmörkuð og all- nokkur fjöldi meinsemda finnst ofar og hægra megin í ristlinum (4, 5) og greinist því ekki við þessa skoðun. Nýjar rannsóknaraðferðir, svo sem breyttir erfðavísar (DNA) í hægðum og sýndar- ristilspeglun -(tölvusneiðmynd af ristli) koma ef til vill að notun við skimun eftir ristilkrabbameini og forstigum þess í framtíðinni. Margar þjóðir hafa þegar tekið upp skimun eftir ristilkrabbameini og greiða fyrir hana. í Finnlandi er hafin skipulögð skimum fyrir blóði í hægðum með slembirannsóknarívafi. í Bandaríkjunum hefur áróðri fyrir skimun verið haldið uppi í mörg ár. Þátttaka þar hefur aukist, dánartíðni lækkað svo og nýgengi sjúkdómsins sem ef til vill má rekja til aukinna skimunaraðgerða. Á vefsíðu landlæknis eru klínískar leiðbeiningar um ristilkrabbamein. Þar kemur fram hverja á að skima eftir krabbameini og hvernig. Fyrir nokkr- um árum fór fram fræðsluátak fyrir almenning um ristilkrabbamein, alfarið kostað af einkaaðilum, um áhættuþætti þess og mögulegar rannsókn- araðferðir. Tvær þingsályktunartillögur hafa séð dagsins ljós hér á landi um auknar forvarnir gegn krabbameinum í meltingarvegi (Árni Ragnar Árnason heitinn alþingismaður) og um að hefja skimun eftir ristilkrabbameini (Drífa Hjartardóttir alþingismaður). Sú síðari var samþykkt á Alþingi og vísað til heilbrigðisnefndar en hefur ekki verið afgreidd úr nefndinni af óljósum ástæðum. Ristilkrabbamein er þriðja algengasta krabba- meinið hér á landi (115 tilfelli greind á ári) og önnur algengasta dánarorsök af völdum krabba- meina (55 dauðsföll á ári). Þrátt fyrir áhuga alþing- ismanna hefur baráttan gegn sjúkdómnum ekki skilað sér í forvarnaraðgerðum. Landlæknir hefur mælt með skimun sem forvörn (6) og áætlar að hún geti komið í veg fyrir 8-10 dauðsföll árlega. I þessu tölublaði Læknablaðsins er grein um samnorræna slembirannsókn á skimun eftir ristil- krabbameini með alristilspeglun (colonoscopy). Greinin er áhugaverð og birtist jafnframt í lækna- blöðum hinna Norðurlandanna (7). Þetta er fram- tak hóps sem kallar sig NordlCC (Nordic Initiative on Colorectal Cancer) eða Norrænt framtak um krabbamein í ristli og endaþarmi og hefur hannað fjölsetra slembirannsókn á skimun með ristilspegl- un. í greininni er bent á að þörf sé frekari rann- sókna á öðrum og betri leitaraðferðum. Alspeglun er kjörrannsókn til að greina sjúkdóma í ristli. Tækjabúnaði hefur fleygt fram á síðustu árum og nú er hægt að greina örsmárar meinsemdir og taka sýni til vefjagreiningar. Víða er mælt með alspegl- un í skimun eftir ristilkrabbameini og forstigum þess þegar um tilfellaleit (case finding) er að ræða. Þó skortir vísindalegar upplýsingar um hvers má vænta við framkvæmd víðtækra skimunaraðgerða með speglun eins og bent er á í greininni. Það er skynsamlegt fyrir stjórnmálamenn að veita fé til skipulagðra slembirannsókna til að sjá hvort slík skimunaraðferð skilar árangri. í ljósi fenginnar þekkingar er skynsamlegt að byrja skipulagða skimun hérlendis með athugun á blóði í hægðum. Jafnframt er þátttaka í skipulagðri langtíma slembirannsókn, til að bera saman árang- ur ristilspeglunar við leit að blóði í hægðum með til- liti til lækkunar dánartíðni og nýgengi ristilkrabba- meins, mikilvæg. Hér á landi er mikil þekking og reynsla af krabbameinsleit sem auðveldar þátttöku Ásgeir Theodórs atheodor@simnet. is Screening for Colon Cancer: Why-How-When Director of Medical Affairs and Chairman of Department of Gastroenterology, St. Joseph's Hospital, Hafnarfjordur, Iceland. Staff Gastroenterologists, Department of Gastroenterology, University Hospital, Iceland. Höfundur er sérfræðingur í meltingarsjúkdómum á St. Jósefsspítala, 220 Hafnarfirði, Landspítala við Hringbraut, 101 Reykjavík. Læknablaðið 2006/92 515
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.