Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 32
– fyrst og fre mst ódýr! 998kr.kg Verð áður 1498 kr. kg Kindasnitsel og kindagúllas 33%afsláttur ÍSLENSK T Hvernig datt þér fyrst í hug að sigla yfir úthaf? Eftir að hafa menntað mig ferð- aðist ég víðsvegar um heiminn og vann við hjálparstörf, meðal ann- ars fyrir sænsku hjálparstofnunina Chiparamba í Zambíu. Verkefni hennar er að finna fólk sem getur kennt börnunum í samfélaginu og í leiðinni verið góðar fyrirmyndir. Stofnandi Chiparamba var að fara að róa yfir Atlantshafið og vissi að ég hafði keppt í róðri svo hann bauð mér með. Ég hafði bara róið á ám áður en þarna opnaðist alveg nýr heimur fyrir mér. Hvernig líður manni eftir svona ferð? Ferðin tók mjög mikið á. Indlands- haf er erfiðasta úthafið að ráða við því það er svo ófyrirsjáanlegt. Við ætluðum að enda í Kenýa en það kom upp stríðsástand þar svo við stefndum á Tanzaníu. Þá lentum við í fellibyl og hörðum straumum svo það náðist ekki, sem voru vonbrigði. Við urðum að sigla niður með ströndum Kenýa en þar eru sjóræningjar stöðug ógn við sæfara. Ef sjóræningjar hefðu náð okkur hefðum við samt verið nokk- uð öruggir því Jamie Douglas- Hamilton, hertoginn af Skotlandi, var með í för. Það þýðir að ef við hefðum verið teknir höndum hefði okkur verið bjargað. Á endanum náðum við svo til Seychelles-eyja- klasans. En ferðin tók mjög mikið á, miklu meira en ég bjóst við, og þess vegna naut ég hennar ekki jafn mikið og ég hefði viljað. Skipta heimsmet máli? Nei. Það sem skiptir mestu máli er að vera forvitinn og upplifa hlut- ina eins og barn, vera stöðugt að læra nýja hluti. Það eru ekki sjálf metin sem heilla mig við þennan heim, heldur ævintýrin sem fylgja þeim. En það virkar oft betur, sér- staklega í fjölmiðlum, að tala um heimsmet. Ég er alltaf spurður út í erfiðleikana en það sem dregur mig áfram og heillar mig við þenn- an heim er þroskinn sem hann færir manni. Ég vil bara alltaf vera að læra eitthvað nýtt í lífinu, bæði um heiminn og sjálfan mig. Þannig að það er leiðin að metinu sem skiptir máli? Já, hiklaust. Ferðalagið er eins og lífið sjálft og þess vegna verður maður að taka því af æðruleysi ef það fer ekki allt eins og maður ætlaði. Sýn manns á lífið verður til að mynda allt önnur eftir að hafa horfst í augu við dauðann. Eftir þann tímapunkt lærir maður að forgangsraða í lífinu. Maður spyr sjálfan sig hvort maður hafi nýtt tímann til að gera það sem virki- lega skiptir mann máli og maður uppgötvar hvað það er sem skiptir máli. Og hvað skiptir þig mestu máli? Að lifa lífinu til fulls. Það er svo mikið til af fólki sem lifir leiðin- legu lífi, fullu af málamiðlunum. Það er algjör hryllingur í mínum huga. Frekar vil ég horfast í augu við dauðann úti á hafi en að eyða lífinu í að vera hálfdauður inni á einhverri skrifstofu. Lífið er of dýr- mætt til að lifa því ekki. Ég ákvað fyrir löngu að elta mína drauma og eyða ekki tímanum í að gera hluti sem samfélagið vill að ég geri. Og hvernig lifir þú lífinu til fulls, þegar þú ert ekki að setja heimsmet? Það er ekkert svo mikið af hlutum sem heilla mig. En mér finnst gam- an að ferðast og uppgötva eitthvað nýtt. Eftir að hafa menntað mig í arkitektúr og kennslufræðum fór ég á ferðalag um heiminn. Ég eyddi miklum tíma í Himalaja- fjöllunum, Austur-Afríku og svo Grænlandi. Mér líður mjög vel með frumbyggjum því ég dáist að lífsspeki þeirra og hvernig þeir lifa lífinu. Veraldlegir hlutir skipta þá engu, heldur lærdómurinn sem Fiann Paul er heimsmeistari í róðri yfir Atlantshaf og Ind- landshaf, auk þess að vera ljósmyndari, arkitekt og að reka barnaskóla í Himalajafjöllunum. Hann stefnir á að róa yfir Kyrrahafið á næsta ári og verða þannig fyrsti maðurinn til að eiga hraðamet yfir þrjú úthöf. Heimsmetin sjálf skipta hann ekki máli heldur sá persónulegi lærdómur sem hann dregur af þeim. Fiann hefur búið á Íslandi í 9 ár og vill hvergi annarsstaðar vera. Upphaflega samanstóð áhöfnin af átta ræðurum, eins og hönnun bátsins gerir ráð fyrir. Einn ræðarinn mætti ekki við upphaf ferðarinnar, einn slasaðist og þurfti að yfirgefa bátinn, annar slasaðist einnig, en ákvað að halda áfram að róa þrátt fyrir það. Tveir menn urðu að hætta róðri og taka við stjórn bátsins þegar sjálfstýringin bilaði. Vill frekar deyja úti á hafi en inni á skrifstofu þetta líf gefur okkur og sem fylgir okkur í það næsta. Og hvernig endaðir þú hér, á Ís- landi? Upphaflega voru það skýin sem drógu mig hingað. Á Íslandi er eitt fallegasta skýjafar í heimi og það er auðveldlega hægt að sjá það á ljósmyndunum mínum hversu heillaður af þeim ég er. Ég hef verið heillaður af skýjum síðan ég var lítið barn en á Íslandi er himininn skýjaður 70% af tímanum miðað við 5% á meginlandi Evrópu. Hér eru alveg einstök ský því hér mætast há-og lágþrýstingur sem gera þau svo skýr og dramatísk. Mig langaði aldrei til að setjast að í Póllandi og hafði verið á ferðalagi um heiminn í nokkurn tíma þegar ég kom til Íslands fyrir níu árum síðan. Ég heillaðist gjörsamlega og í dag lít ég á mig sem Íslending. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Róið var frá Ástralíu til Afríku og tók ferðin 57 daga og 11 klukkustundir. Síðustu vikuna þurfti mikið átak til að koma bátnum á leiðarenda. Venjan var að menn reru í 12 klukkutíma og hvíldust í 12 klukkutíma, en þessa viku urðu menn að róa í 16 klukku- tíma og hvílast í 8. 37 tilraunir hafa verið gerðar til að komast yfir og 16 þeirra hafa náð yfir til Máritíus, ein til Madagaskar og tvær til eyjaklasans Seychelles. Enginn hefur náð til meginlands Afríku. Fiann keppti fyrir hönd Íslands en restin af áhöfninni var skosk. Á seglbáti notar þú seglið til að komast í rétta átt en á róðrarbáti veltur allt á mannlegum styrk. Til að komast í rétta átt þarftu alltaf að ná jafnvægi með öldum og vindi. Nokkrar stað- reyndir um Fiann  Heimsmethafi í róðri yfir Atlantshaf og Indlandshaf, sá fyrsti í heimi.  Fæddur í Póllandi en hefur búið á Íslandi í 9 ár og er íslenskur ríkisborgari.  Menntaður í arkitektúr og kennslufræðum.  Byrjaði að stunda kappróður í menntaskóla í Póllandi en byrjaði að keppa þegar hann bjó í Afríku.  Vinnur við ljósmyndun þegar hann er ekki að róa um úthöf heimsins.  Bjó í tvö ár í þorpi í Himalaja- fjöllunum þar sem hann hefur hann nú sett á fót barnaskóla. http://www.foundation.fiann- paul.com/  Hann er grænmetisæta því hann vill ekki borða dýr sem hann gæti ekki drepið sjálfur.  Stundar ekki sjósund en syndir þó allavega einu sinni í viku einn hring í Nauthólsvík.  Fyrirmyndir Fians í lífinu er særæðarinn Aanders Svedlund. Áskoranir á leiðinni  Misstu þrjá ræðara.  Óvenju mikill kuldi.  Stjórnmálaástandið í Kenýa.  Sjóræningjar.  Hákarlaárás.  Rákust á hval.  2 fellibyljir með 10 metra háum öldum.  Rákust næstum því á stórt gámaskip. 32 viðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.