Þjóðlíf - 01.11.1986, Blaðsíða 41
Bauhaus 1919-1933:
Kennaraliðið í Bauhaus 1928, talið
frá vinstri: Josef Albers, Hinnerk
Schepper, Georg Munche, Mo-
holy-Nagy, Herbert Bayer, Joost
Schmidt, Walter Gropius, Marcel
Breuer, Wassily Kandinsky, Paul
Klee, Lyonel Feininger, Gunta
Stölzl, Oskar Schlemmer.
Vagga
fúnksjónal-
ismans
í meira en hálfa öld hefur fúnksjónalisminn, eða „nytja-
stefnan“ eins og það útleggst á íslensku, verið mótandi
afl í húsagerðarlist og hönnun. Hann á rætur að rekja í
nítjándu öldinni en blómstraði á þeim tímum þjóðfé-
lagslegs umróts og örvæntingar, sem kenndur er við
Weimar-lýðveldið í Þýskalandi. Hugmyndafræðin að
baki hans var sameining lista og handverks og nýting
nýrrar tæknigetu til að veita slíkri listsköpun inn í
daglegt líf almennings.
L
ÞJÓÐLÍF 41