Vísbending


Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 30

Vísbending - 23.12.2013, Blaðsíða 30
30 afa, Þorbergur langafi minn, mun hafa sótt lífsbjörg í sjó, en fallið útbyrðis af opnum báti og drukknað ekki alllangt frá landi. Þótt sagnir hermi að landnámsmenn margir næstum þúsund árum fyrr hafi verið annálaðir sundgarpar, hafði því eins og öðru farið aftur hér á landi síðan, og enginn gat lengur bjargað sér á sundi. Afi mun þá hafa verið á sjöunda árinu. Og langamma þar með orðin ekkja, með nokkur börn í örnæliskotinu. Þá voru ekki aðrar velferðarstofnanir en hreppurinn, menn voru sagðir til sveitar, amma var sett niður á einn bæ þar skammt úti með strönd og hafði með sér eitthvað af börnunum, hin fóru annað, og afi var sjö ára gamall orðinn húsmaður á Laugalandi í Nauteyrarhreppi þar á Snæfjallaströnd. Þar eru örnefni mörg heldur kalsaleg eins og tilheyrir strönd sem svona heitir; Skjaldfönn og Kaldalón eru skammt undan. En þetta er þó græn og grösug sveit á vestfirskan mælikvarða og þessi héruð hafði lengi byggt dugnaðarfólk. En lífið var fátæklegt og frumstætt fyrir barnungan og einstæðan dreng; afi sagði mér næstum öld síðar og með hlátur sem suðaði oft í raddböndum hans: „Ég var látinn sjá um allt fullorðna féð!“ Frá sjö ára aldri að því er mér skilst. Og svo verið settur til annarra og erfiðari verka eftir því sem hann hafði aldur til. Á Laugalandi var fyrir hálfsystir afa, sammæðra; langamma átti hana áður en hún tók saman við Þorberg langafa. Hálfystir þessi var A fi, Einar Kristján Þorbergsson, fæddist semsé á ofanverðri nítjándu öld inni í Ísafjarðardjúpi, þann 18. júlí 1891 nánar tiltekið, í rafmagnslausu örreitiskoti, á svæði þar sem engin merki var að finna um þær framfarir sem orðið höfðu í okkar heimsálfu á liðnum öldum. Þarna var vegleysa og einangrun, menn reru til fiskjar á árabátum með fornu sniði, börðu gras af þúfum með handverkfærum; fólkið þreyði langa dimma vetur við týru frá tólgarkerti eða lýsiskolu, geymdi mat í súrtunnum, það voru týnd egg á vori og fugl snaraður í háf og þá var hátíð í bæ, annars ekki. Ég held að kotið þar sem afi fæddist hafi heitið Tunga, það er löngu komið í eyði og þess sést varla stað lengur, en mun hafa verið nokkurnveginn þar sem þjóðleiðin vestur liggur nú, nánar tiltekið þar sem vegurinn ofan af Steingrímsfjarðarheiði kemur niður á Djúpveginn; þar halda flestir hiklaust áfram eftir malbikinu í átt að Arngerðareyri og áfram um sunnanvert Djúpið með stefnuna á Ísafjarðarkaupstað og Bolungavík, en það er líka hægt að beygja til hægri, til norður og vesturs inn á Snæfjallaströnd. Þarna er sjávargata skömm eins og annarsstaðar á byggðu bóli Vestfjarða; einhver sagði í bók að það kölluðu Vestfirðingar grundir sem hægt væri að standa nokkurnveginn jafnfætis. Og pabbi aFI FæddIST Á mIðöLdum ég hef það fyrir satt að afi minn og nafni hafi komið fyrst til Reykjavíkur einhverntíma á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar, þá sem háseti á litlum sæbörðum mótorbát, en þótt ákaflega lítið til höfuðborgarinnar koma. Sem í fljótu bragði má merkilegt heita því að mér hefur fundist að hann hafi eiginlega verið fæddur á víkingaöld, og þó varla það. því að þótt samfélagsgerð og búskaparhættir á hans slóðum og bernskutíð hafi verið með svipuðum hætti og tíðkaðist á fyrstu árum Íslandsbyggðar þá má segja að breytingar síðan þá hafi flestar verið til verri vegar; húsin höfðu minnkað, landkostir rýrnað, veðrið versnað. EINaR KÁRaSON RITHöFuNduR

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.