Þjóðlíf - 01.12.1990, Blaðsíða 12
INNLENT
Spilafíkn íslendinga
FÍKN ÁN FÍKNIEFNIS
Sálfrœðilegi og félagslegi þátturinn í málinu: Oft stutt á milli saklauss gamans
og sjúklegrar fíknar. Um 3% einstaklinga eru taldir verða sjúklegri fíkn að bráð.
Vaxandi fjöldi kvenna haldinn fíkn. Jakob Smári sálfrœðingur: Fíknin elur á
hjálparleysi
„Alvarlegustu áhrifin eru að þetta elur á
hjálparleysi hjá ungu fólki og þeirri hug-
myndafræði að örlög einstaklinga ráðist
af heppni en ekki eigin gerðum.“ Þannig
kemst Jakob Smári sálfræðingur við
Geðdeild Landspítalans að orði er hann
var inntur eftir þeim áhrifum sem auking
í sölu skyndihappdrætta kann að hafa á
fólk hér á landi.
á ekki leiða að því líkur að aukin
útbreiðsla skyndihappdrætta verði
til þess að fleiri en ella missi stjórn á sér og
ÞÓRDÍS LILJA JENSDÓTTIR
verði spilafíkn að bráð? Veðmál, fjár-
hættuspil og happdrætti hafa fylgt mann-
inum frá því sögur hófust. Til eru heim-
ildir sem sýna að í Egyptalandi hafa veð-
mál verið stunduð síðan árið 2000 fyrir
Kristsburð. Ekki ófrægari menn en Geor-
ge Washington og Fyodor Dostoevsky
þjáðust af óstjórnlegri fíkn til þess að
leggja peninga undir í spilum. Löngum
hefur verið ríkjandi andúð á veðmálum og
fjárhættuspilum og þau talin andfélagsleg
iðja.
„Ásóknin í að leggja peninga undir og
freista gæfunnar getur verið allt frá því að
vera „krydd í tilveruna" og yfir í að vera
stjórnlaus fíkn einstaklinga“ segir Jakob
Smári og heldur áfram: „Erfitt er að draga
mörkin þar sem hegðunin hættir að vera
saklaus og verður sjúkleg. Þó má segja að
þegar atferli einstaklingsins er farið að
hafa neikvæðar afleiðingar í för með sér
fyrir hann sjálfan og umhverfi hans þá er
litið á það sem sjúklega hegðun.“
Þrátt fyrir að mikið hafi verið fjallað
SPILAFÍKN ÍSLENDINGA. BINGÓ! BINGÓ!
ingur er fyrir bingó í sjöttu umferð. Vinn-
ingur í fimmtu og sjöundu umferð er
25.000 krónur og í þeirri áttundu 10.000
krónur. Níunda umferðin er sú sem allir
bíða eftir; þá er spilað um Stóra pottinn
sem byrjar í 200.000 krónum en hækkar
um 10.000 kr. í hvert sinn sem hann geng-
ur ekki út. í kvöld er potturinn 420.000
krónur. í tíundu umferð er spilað um
100.000 kr. og í þeirri elleftu og síðustu
um 75% af andvirði seldra miða í þeirri
umferð. Oft eru margir um sama vinning-
inn og þá kemur ekki mikið í hlut hvers og
eins. „Þetta er happdrætti," segir Krist-
inn og brosir kankvís.
Vinningarnir eru greiddir út með sér-
stökum bingópeningum, bréfseðlum sem
ekki er skipt fyrr en gestirnir halda heim.
Það sparar talsverðan tíma þar sem margir
kaupa ný blöð fyrir vinningana. „Við er-
um skrefi á undan Seðlabankanum eins og
þú sérð,“ segir Kristinn og veifar 10.000
króna bingópeningaseðli.
Bingóblöðin eru prentuð erlendis. Að
sögn Guðlaugs Sigmundssonar eru vinn-
ingslíkur algjörlega tilviljunarkenndar og
ekkert í forriti tölvunnar segir til um hlut
bingósins. „Sum kvöld töpum við, önnur
kvöld tapar fólkið,“ segir hann. „Ég vil
samt geta þess að í bingói ganga allir vinn-
ingar út, en þannig er því ekki farið hjá
öllum happdrættunum."
vert bingóblað með þremur reitum
kostar 50 kr. og hefur ekki hækkað í
verði í sex ár. Sömu sögu er að segja í
bingóinu í Templarahöllinni en það er
rekið af stjórn Templarahallarinnar. í
henni sitja sex fulltrúar þingstúku Reykja-
víkur og formaður Stórstúku íslands.
Templarahöllin hefur lengi starfrækt
bingó þrjú kvöld í viku. Veltubær hefur
haft opið tvisvar í viku þar til í sumar en þá
var einu kvöldi bætt við. Templararnir
hafa jafnframt gætt þess að hafa opið til
skiptis þannig að ekki sé samkeppni um
bingógesti. Reyndar er hægt að spila bin-
gó á hverju kvöldi vikunnar því að Iþrótta-
félagið Þróttur rekur bingó í Glæsibæ eina
kvöldið sem templararnir sitja heima, þ.e.
á þriðjudagskvöldum.
Að jafnaði spila um 200 manns bingó í
Vinabæ hvert kvöld sem opið er. Fjöldinn
getur þó náð allt að 350 manns, allt eftir
því hve Stóri potturinn er hár og hvaða
tími mánaðarins er.
„Það kemur fyrir að Stóri potturinn
gengur út kvöld eftir kvöld og þá töpum
við auðvitað,“ segir Guðlaugur Sigmunds-
son. „Stundum, eins og núna, helst hann
inni í margar vikur.“
En hvað er það sem raunverulega dreg-
ur fólk hingað? Spilafíkn og ásókn í
spennu eða eingöngu leit að félagsskap?
Guðlaugur verður fyrstur fyrir svörum:
„Við viljum alls ekki viðurkenna að hér
spili fólk af einhverri fíkn sem líkja mætti
við áfengisfíknina. Hér tapa menn
kannski peningum, yfirleitt ekki miklum
þó, en þeir tapa að minnsta kosti ekki
glórunni eins og þeir gera sem þjást af
áfengisfíkninni.“
Kristinn tekur undir þetta sjónarmið.
„Auðvitað sækjast margir eftir spenn-
unni, en flestir koma vegna félagsskapar-
ins, sérstaklega eldra fólkið. í spilavítum
erlendis tapar fólk aleigunni á einu kvöldi.
Slíkt gerist aldrei hér. Ég hefði ekki unnið
við bingórekstur í öll þessi ár ef ég teldi að
hann ætti eitthvað skylt við áfengisfíkn-
ina. Það er ekki hægt að snúa til baka úr
áfenginu en hér getur hver sem er staðið
upp og gengið út þegar hann kærir sig
, __ ((
um.
Það er orðið áliðið og 11. umferð er að
ljúka. Margir bingógestanna eru að tygja
sig til heimferðar. Enginn krækti í Stóra
pottinn í kvöld. Á föstudagskvöldið verð-
ur hann 430.000 krónur. Kannski gengur
hann út þá, kannski ekki...
0
12 ÞJÓÐLÍF
Örvæn ting grípur oft um sig meðal þeirra sem
verst eru farnir og fjölskyldur þeirra verða
einnig fyrir barðinu.
almennt um spilafíkn hafa fáar rannsóknir
verið gerðar á útbreiðslu hennar og eðli.
Fyrir fáum árum var gerð í New York
rannsókn sem náði til 1000 manns. Sér-
staklega útbúnir spurningalistar voru
sendir út og af svörunum réðu menn síðan
í útkomuna. Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar eiga um 3% af fullorðn-
um einstaklingum við spilafíkn að stríða.
Niðurstöðurnar studdu það að greina
verður ásókn fólks til þess að spila í sjúk-
lega fíkn annars vegar og saklaust gaman
hins vegar. Einnig var leitt í ljós að flestir
þeirra sem áttu við sjúklega spilafíkn að
stríða voru ungir lítt menntaðir einstak-
lingar úr lægri stéttum þjóðfélagsins. Þó
er þetta vandamál sem snertir alla þjóðfé-
lagshópa að einhverju leyti. Hlutfall karla
og kvenna sem eiga við spilafíkn að stríða
hefur verið áætlað 1 kona á móti 5 körlum.
Fjölgun virðist vera í hópi þeirra kvenna
sem stunda þessa iðju og er það m.a. tengt
vaxandi þátttöku þeirra í atvinnulífinu. í
rannsókninni í Bandaríkjunum kom fram
að konur leita síður meðferðar við spila-
fíkn en karlar.
Ymis atriði virðast vera sameiginleg
hjá þeim sem ánetjast spilafíkn. í
fræðibókum sem um þetta fjalla kemur
fram að þeir einstaklingar sem koma úr
fjölskyldum þar sem lögð er mikil áhersla
á veraldleg gæði eiga það meira á hættu en
aðrir að verða háðir spilafíkn. Kannanir
hafa sýnt að hjá þeim sem eiga við spila-
fíkn að stríða eru meiri líkur til að finna
önnur vandamál eins og þunglyndi og of-
neyslu áfengis.
Algengt er að foreldrar spilasjúklinga
hafi átt við sama vandamál að stríða og/eða
verið áfengissjúklingar. Einstaklingar
með lélega hvatastjórn virðast vera við-
kvæmari fyrir því að ánetjast spilafíkn.
Ytri aðstæður og tilviljanir virðast ráða
miklu í lífi þeirra. Auk þess má rekja hvat-
ir til spilamennskunnar til keppnisgleði,
ágóðavonar og þrár eftir spennu. Spilafíkn
er leið einstaklinga til þess að útiloka nei-
kvæðar hugsanir og flýja raunveruleik-
ann.
Spilafíkn hefur stundum verið nefnd
„fíkn án fíkniefnis“. Menn hafa séð margt
líkt með spilafíkn og áfengis- og vímu-
efnaneyslu. Það að stunda spilamennsku
eða veðmál af einhverju tagi getur haft
hvetjandi og róandi áhrif á þann sem er
spilafíkninni háður. Spilasjúklingar hafa
lýst því að áhrifin komi samtímis og virð-
ast þeir komast í vímu líkt og þekkt er í
áfengis- og vímuefnaneyslu. Þeir sem
stunda þessa ið ju þrífast á áskorun og mik-
illi spennu.
„Þau sjónarmið, að líkja megi spilafíkn
við áfengis-og fíkniefnaneyslu, eru mjög
athygliverð. Orsökin fyrir því er sú að það
hefur beint sjónum manna að því að efnið
sjálft er ekki orsök að nema hluta fíkninn-
ar í áfengis- og fíkniefnaneyslu. í spilafíkn
er ekki um neitt fíkniefni að ræða og þann-
ig hefur fengist nýtt og gagnlegt sjónar-
horn á aðrar fíknir“ segir Jakob Smári.
Utbreiðsla á skyndihappdrættum hef-
ur aukist til muna á íslandi undan-
farin ár. Skyndihappdrættin eru ólík
venjulegum happdrættum að því leyti að
ef vinningur (umbun) er fyrir hendi kem-
ur hann strax eða fljótlega í ljós. Bent
hefur verið á að slík happdrætti og einnig
spilakassar ýti meira undir fíknina heldur
en þau happdrætti sem bíða þarf í nokk-
um tíma eftir niðurstöðu. Vinningur af og
til (umbun með óreglulegu millibili)
styrkir enn frekar kaup á skyndihapp-
drættum. Tilhneigingin er nefnilega sú að
taka frekar eftir því sem gerist (vinningur)
heldur en því sem ekki gerist (ekki vinn-
ingur). Áreitin í umhverfinu eru mörg og
fólk á erfitt með að komast hjá því að verða
fyrir áhrifum. Auglýsingar þar sem fólk er
hvatt til að freista gæfunnar eru alls staðar,
ekki síst í fjölmiðlum.
Aðspurður um þessi atriði segir Jakob
Smári: „Spilafíkn er ekki það eina alvar-
lega sem hlotist getur af skyndihapp-
drætta áróðri. Það sem ekki síður er alvar-
legt er að þetta elur á hjálparleysi og pen-
ingahyggju hjá börnum og unglingum.
Einnig má nefna að þetta elur á þeirri
hugmynd að velgengni í lífinu sé ekki
undir einstaklingnum sjálfum komið
heldur heppni hans í spilum. Slík uppeld-
isleg áhrif eru mjög slæm.“
Ríkjandi er mikil hjátrú í þessum efn-
um. Vitað er til þess að fólk telur meiri
líkur á vinningi ef það fær sjálft að velja sér
miða úr bunka. Einnig er vel þekkt að fólk
ÞJÓÐLÍF 13